Fiskifréttir


Fiskifréttir - 19.12.1997, Page 25

Fiskifréttir - 19.12.1997, Page 25
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997 25 Bretar við Island Framh. af bls. 23 að senda flugvélar til leitar strax í birtingu morguninn eftir. Ljóst þótti þá þegar að litlar lík- ur voru á því að einhver af áhöfn togaranna tveggja hefði komist lífs af. Talið var að engir möguleikar hefðu verið á því að sjósetja björg- unarbáta og því var eina vonin að einhverjir hefðu komist í gúmbát- ana. En jafnvel þótt það hefði tek- ist voru lífslíkur manna mjög litlar í því hafróti og þeim fimbulkulda sem var á svæðinu. Engir neyðar- sendar voru þá komnir í slíka báta og leit að þeim því nánast eins og leit að nál í heystakk. Um kvöldið var Slysavarnafélagið í stöðugu sambandi við togarana fyrir vestan og naut við það aðstoðar Isafjarð- arradíós. Sögðu togaramenn, að á þeim slóðum þar sem þeir héldu sjó, væru um 10 vindstig og hauga- sjór. Hins vegar var ekki mikil ís- ing þar sem þeir voru og töldu þeir skipin ekki vera í hættu. Egill rauði strandar Um kvöldmatarleytið barst enn ein slysafréttin þennan sorgardag. Togarinn Egill rauði frá Neskaup- stað var strandaður undir Grænu- hlíð en þangað hafði hann leitað landvars. Ægilegt brimrót var á strandstaðnum og áhöfn skipsins í bráðri hættu. Fyrst eftir strandið var loftskeytasamband við togar- ann en það rofnaði um hálfri klukkustundu síðar. í síðasta skeytinu frá Agli rauða greindi Axel Óskarsson loftskeytamaður frá því að sjór væri kominn í loft- skeytaklefann og að dautt væri á ljósavélum skipsins og það því með öllu Ijóslaust. Þegar í stað hófst leit að strandstaðnum og fundu togarar sem þarna voru fljótlega strand- staðinn sem var um eina sjómflu fyrir innan innra hornið á Grænu- hlíð. Reyndu þeir að lýsa upp stað- inn með ljóskösturum og farið var á björgunarbátum upp undir strandstaðinn en ekki komust bát- arnir það nærri að viðlit væri að bjarga mönnunum af sjó. Björgun- arsveit frá ísafirði lagði fljótt af stað og fór með tól sín og tæki með vélbátnum Heiðrúnu frá Bolung- arvík yfir Djúpið. Varðskipið Ægir kom einnig á vettvang en það hafði legið við akkeri inni á Önundar- firði er fréttin um strandið barst. Um nóttina tókst björgunarmönn- um að komast í land við Hesteyri og lögðu þeir síðan af stað fótgang- andi á slysstaðinn. I þennan björg- unarleiðangur fóru 10 skipverjar af togaranum Austfirðingi, 9 menn úr björgunarsveitinni á Isafirði og Helgi Hallvarðsson sem þá var 2. stýrimaður á Ægi en síðar þekktur skipstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Fóru leiðangursmenn eftir fjör- unni en víða gekk sjór alveg á land og urðu þeir þá að klífa upp í snar- brattar og glerhálar fjallshlíðar til þess að komast leiðar sinnar. Var þessi ferð mikil þrekraun. Morguninn eftir strandið, nokkru áður en björgunarleiðang- urinn, sem fór landleiðina kom á slysstaðinn, heppnaðist að skjóta línu í flak Egils rauða frá vélbátn- um Andvara frá Isafirði sem siglt var eins nærri flakinu og framast var unnt þar sem það lá í brimgarð- inum. Tókst að draga 13 skipbrots- menn um borð í Andvara en einn losnaði úr björungarstólnum, fór í sjóinn og drukknaði. Eftir að leið- angurinn úr landi kom á staðinn gekk greiðlega að skjóta línu um borð í togaraflakið og ná þeim 16 mönnum, sem enn voru lifandi, um borð í land. Því björguðust samtals 29 menn af togaranum en fimm fórust, fjórir Austfirðingar og einn Færeyingur en margir Fær- eyingar voru á skipinu eins og raunar á flestum íslenskum togur- um á þessum tíma. Björgun skipbrotsmanna af Agli rauða þótti hið mesta þrekvirki og ljóst að margir lögðu sig í lífshættu við hana. Þegar afreksverðlaun sjómannadagsins voru veitt árið 1955 var ákveðið að verðlaunin féllu í hlut björgunarmannanna og voru þau afhent yngsta þátttak- andanum í landleiðangrinum, Gísla Jónssyni frá Isfirði. Hann var aðeins 17 ára en var samt aðalleið- sögumaður leiðangursins á leið- inni frá Hesteyri að strandstaðn- um, enda ættaður frá Sléttu og hafði dvalið þar á barnsárum sín- um. Umfangsmikil leit bar ekkiárangur Víkur þá aftur sögunni að leit- inni að bresku togurunum Lorella og Roderigo. Nóttina eftir slysið var Slysavarnafélagið í stöðugu sambandi við togarana sem voru út af Vestfjörðum. Þótt mesti ofsinn væri úr verðrinu þegar líða tók á nóttina var þar enn illviðri og háskasjór. Undir morgun tilkynnti t.d. skipstjórinn á Lancella að á svæðinu, þar sem skipið var statt, væru um níu vindstig. Skyggni var hins vegar skárra og taldi hann leit mögulega úr lofti. Varð að ráði að fimm flugvélar frá Keflavíkurflug- velli færu til leitar og voru þær komnar yfir svæðið strax í birt- ingu. Þrátt fyrir að skilyrði væru enn erfið leituðu þær fram í myrk- ur en án árangurs. Aðfaranótt 28. janúar gekk óveðrið niður og gerði Veðurstofa Islands ráð fyrir sæmilegu veðri daginn eftir. Var þá ákveðið að herða enn leitina, senda til hennar flugvélar og leita á sjó og gáfu margir breskir og íslenskir togarar sig fram til hennar. Aftur fóru fimm flugvélar frá Varnarliðinu í Keflavík til leitarinnar og fóru yfir víðáttumikið svæði um daginn. Var leitað út í Grænlandshaf og allt suður undir Reykjanes en á þessum tímum vissu menn lítið um hugsanlegt rek gúmbáta og talið var að þeir hefðu getað rekið lang- an veg undan illviðrinu. Þegar leit var að ljúka og þær flugvélar, sem voru enn fyrir norðan og vestan, voru að leggja af stað heimleiðis tilkynnti ein þeirra að hún hefði séð ljósglampa norðaustur af Skaga. Þótt ótrúlegt mætti teljast að ljósið gæti verið frá skipbrots- mönnum í gúmbát var samt hert leit á þessu svæði og farið vandlega yfir það. Ekkert fannst en hins vegar sást til ferða breska togarans Kingston Zircon á svæðinu og þótti þá líklegt að ljósið hefði verið frá honum. Strax og birti af degi þ. 29. jan- úar var leitinni haldið áfram og enn leituðu flugvélar frá Keflavík víðáttumikið svæði. Þennan dag voru leitarskilyrði hin ákjósanleg- ustu, bjart og kyrrt veður og því var hægt að þrautkanna það svæði sem flogið var yfir. Um miðjan dag bar leitin þann árangur að togarinn Hallveig Fróðadóttir, sem var eitt skipanna sem leitaði út af Vest- fjörðum, tilkynnti að hún hefði fundið gúmbát á reki. Var bátur- inn útblásinn en á hvolfi þegar hann fannst. Tókst að ná bátnum um borð í togarann og þótt hann væri ómerktur þótti fullvíst að hann væri af Lorella eða Roder- igo. Engin ummerki voru í bátnum um að menn hefðu komist í hann. Þvert á móti virtist ljóst af festing- arlínunni að hún hefði slitnað af miklu átaki og því þótti líklegt að báturinn hefði blásist út og slitnað frá skipinu eftir að það var sokkið. Síðdegis töldu flugmenn einnar leitarvélarinnar sig sjá skipsflak á reki grunnt út af Geirólfsgnúp á Ströndum. Myrkur var að skella á er þeir komu auga á rekaldið og gátu þeir því ekki kannað það ítar- lega. I birtingu morguninn eftir fóru menn af bæjum í Reykjarfirði á Ströndum á svæðið þar sem flug- mennirnir töldu sig hafa séð flakið. Þá var bjartviðri og gott skyggni til hafsins. Ekki fundu þeir brak úr skipi en komu hins vegar auga á viðarrek sem tilsýndar var svipað því sem flugmennirnir höfðu lýst. Skipulagðri leit að Lorella og Roderigo var hætt að kvöldi 30. janúar og skipin talin af. Með þeim fórust 40 sjómenn, langflestir fjöl- skyldufeður frá Hull, menn á besta aldri. Vakti fregnin um skipsskað- ana mikla athygli í Bretlandi og í senn sorg og reiði. Spjótum beint að íslendingum Reiði Breta beindist ekki síst gegn Islendingum. Þegar íslend- ingar færðu landhelgina út í fjórar sjómílur árið 1952 og friðuðu flóa og firði fyrir ágangi togara hófst hálfgert styrjaldarástand í fisk- veiðimálum milli þjóðanna. Bretar settu löndunarbann á íslensk skip en Islendingar svöruðu aðgerðum þeirra fullum hálsi og létu hvergi undan. A þeim tíma sem Rorella og Roderigo fórust var hafin um- ræða um útfærslu landhelginnar í 12 sjómflur og notuðu sumir bresk- ir fjölmiðlar þetta sorglega slys til þess að efla andúð gegn íslending- um. Eitt bresku dagblað- anna, Daily Mail, gekk fram fyrir skjöldu og birti langa grein um sjó- slysin þar sem það var beinlínis gefið í skyn að Islendingar bæru ábyrgð á manntjóninu. Þeir hefðu sett 12 mflna bannsvæði umhverfis landið og inn á það gætu bresku togararnir ekki siglt án áhættu að verða teknir og færðir til hafn- ar. Umfjöllun breskra fjölmiðla, og þó sérstak- lega umrædd grein, vakti mikla ólgu hérlendis. Eðlilega þótti íslending- um ómaklega að sér veg- ið þar sem farið var með staðlausa stafi og raunar fjallað um málin, annað- hvort gegn betri vitund eða af ótrúlegri van- þekkingu sem m.a. mátti sjá af því að sama blað hafði greint frá því að breskir togarar hefðu leitað landvars í um- ræddu óveðri og aðstoð- að við björgun áhafnar- innar af Agli rauða. Það sem mörgum íslending- um sárnaði hvað mest var að vera ásakaðir um láta sig öryggi sjófarenda litlu skipta. Svo mögnuð var gremja Islend- inga yfir hinum makalausa frétta- flutningi og greinarskrifum að sendiherra Breta á Islandi, J.T. Henderson, sá sig knúinn til að fara þess á leit við Ríkisútvarpið að fá að flytja íslensku þjóðinni ávarp. Var því útvarpð 10. febrúar og hóf sendiherrann mál sitt með því að segja að engir ábyrgir aðilar í Bretlandi létu sér það til hugar koma að ásaka Islendinga um hvernig farið hefði. Síðan sagði sendiherrann m.a.: „Allir réttsýnir Islendingar munu sjálfsagt skilja það, að breskum sjómönnum virð- ist svo, sem íslenskum sjómönnum mun einnig virðast, að skipum og skipshöfnum sé hættara við óveðr- um í opnu hafi vegna þess að regl- urnar frá 1952, geri bæði íslenskum og erlendum skipum erfiðara að leita landvars, þegar stormar eru í aðsigi. Ég vil leggja áherslu á það, að það ríkir sorg í Englandi vegna þess að íslenskir sjómenn fórust á sama tíma og áhafnir bresku togar- Framh. bls. 26 Hörmuleg sjóslys við ísland urðu til þess að vekja umræðu í Bretlandi um ástand togar- anna sem voru sendir á þessi hættulegu mið. í þeim um- ræðum kom fram að sumir togaranna voru komnir mjög til ára sinna og töldust varla sjóhæfir. Myndina af einum slíkum kláf, Lord Montgom- ery frá Fleetwood, tók Snorri Snorrason er skipið var á sigl- ingu út af Hornafirði 1. sept- ember 1958. Líf sjómannanna á bresku síðutogurunum var enginn dans á rósum. Oft stóðu þeir vaktir 18 tíma á sólarhring en fengu samt lítið í aðra hönd. Myndin er tekin í borðsal síðutogara kringum 1960; hafa menn gripið í spil þegar stund var milli stríða og er greinilega spilað upp á eldspýtur.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.