Fiskifréttir


Fiskifréttir - 19.12.1997, Side 26

Fiskifréttir - 19.12.1997, Side 26
26 FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997 Bretar við Island Framh. af bls. 25 anna týndust. Ég vil og láta í ljós samúð með fjölskyldum þeirra sem fórust. Breska þjóðin þakkar hjálp þá sem Slysavarnafélag Is- lands, varðskipið Ægir og flugher Bandaríkjanna veittu við leit að skipunum meðan óveðrið stóð. Björgunartilraunir Slysavarnafé- lagsins og Landhelgisgæslunnar hafa jafnan sýnt hver bræðrahugur ríkir í garð sjómanna annarra þjóða í anda hinnar bestu sjó- mennsku.“ Þótt togaraeigendur í Hull og Grimsby færu fremstir í flokki þeirra, sem höfðu reynt að efla andúð gegn íslendingum vegna landhelgismálsins, og virtust stundum einskis svífast í þeim efn- um var ljóst að þeim ofbauð um- fjöllun fjölmiðla eftir slysið. Sendi samband togaraeigenda í Hull Slysavarnafélaginu bréf sem barst sama dag og sendiherrann flutti ávarpaði í útvarpið. Bréfið var svohljóðandi: „Eigendur togaranna Lorella og Roderigo hafa með þakklæti og hrærðum huga frétt um þá víðáttu- miklu leit, sem þér settuð í gang í því skyni að reyna að bjarga, ef einhver kynni að hafa komist af, er skip okkar týndust. Þeim er kunn- ugt um það, að minnsta kosti ein leitarflugvélanna var rétt yfir slysstaðnum er seinni togarinn fórst og þeim hefur verið sagt að leitinni hafi verið haldið áfram, þrátt fyrir veðrið, þar til talandi tákn á laugardaginn leiddu í ljós að gefa yrði upp alla von um björgun mannslífa. Þeir óska að senda yður innilegt þakklæti fyrir veitta aðstoð og biðja yður að flytja öllum þeim, sem þátt tóku í Ieitinni, aðdáun sína og dýpstu viðurkenningu.“ Á sama tíma að 13 árum liðnum Nákvæmlega 13 árum eftir að Lorella og Roderigo fórust út af Vestfjörðum, eða 26. janúar 1968, varð enn hörmulegt sjóslys hér við land er togarinn Kingston Peridot frá Hull fórst með allri áhöfn fyrir norðan land. Var það jafnframt síðasti breski togarinn sem hvarf sporlaust hér við land. Það slys og annað, er varð nokkrum dögum síðar er breska togaranum Ross Cleveland hvolfdi á Isafjarðar- djúpi og aðeins einn maður af áhöfn skipsins komst lífs af, varð til þess að vekja mjög mikla um- ræðu í Bretlandi. Mátti jafnvel tala um fjölmiðlafár sem teygði sannar- lega anga sína til íslands. Umræð- an snerist ekki aðeins um sjóslysin við ísland heldur einnig um örygg- ismál breskra togarasjómanna, sjóhæfni skipanna, sem send voru á fjarlægar slóðir í svartasta skammdeginu þegar allra veðra var von, og tilgang veiðanna við ísland. Eftir þessi hörmulegu slys virtust breskir togaraskipstjórar gæta meiri varúðar auk þess sem þarlend útgerðarfyrirtæki sendu aðstoðar eða eftirlitsskip með flota sínum á íslandsmið. Eftir sem áður urðu þó sjóslys og skaðar þótt ekki kostuðu þau jafn mörg mannslíf og áður. Aðstæður þegar slysin urðu í janúar og febrúar árið 1968 voru mjög svipaðar þeim sem voru er Lorella og Roderigo fórust, skyndilegt norðan-og norðaust- anáhlaup, mikil veðurhæð, illt sjó- lag og ísing. Á þeim árum sem liðin voru frá því að togararnir tveir fórust, höfðu þó orðið miklar framfarir að ekki sé talað um frá þeim tíma er Goth fórst. Þær voru ekki síst í fjarskiptum sem voru orðin bæði betri og öruggari en áður og eins hafði orðið mikil framþró- un í gerð veð- urspár og veð- urfréttir orðnar tíðari og örugg- ari. Björgunar- tæki um borð í togurunum voru einnig betri en áður. Gúmbátar voru komnir í öll skip en þeir höfðu marg- sannað gildi sitt og oft orðið mönnum til bjargar þegar öll önnur sund virtust lokuð. En þótt fram- farir hefðu orð- ið á mörgum sviðum var því ekki að neita að skipin voru síst traustari en áður. Þvert á móti vart.d. lít- il endurnýjun í breska togaraflotanum og mörg þeirra skipa, sem send voru á ís- landsmið, voru komin til ára sinna og meira að segja voru efasemdir um sjóhæfni þeirra. Meðal þeirra togara, sem stund- uðu veiðar á Islandsmiðum í árs- byrjun 1968, var Kingston Peridot H-591, eign hins þekkta útgerðar- fyrirtækis Hellyers Bros. í Hull. Lagði hann af stað úr höfn síðdegis 10. janúar og varð samferða öðrum togara, St. Romanus, út úr höfn- inni. Þar skildu leiðir. Kingston Peridot var stefnt á Islandsmið en St. Romanus átti að stunda veiðar við Norður-Noreg. Hvorugt skipið átti afturkvæmt. Þau fórust bæði með manni og mús. Er talið líklegt að St. Romanus hafi farist á sigl- ingu á miðin en síðdegis 11. janúar heyrði vélbáturinn Víkingur III frá ísafirði, sem var á landleið úr róðri, óskýrt neyðarkall frá togar- anum og daginn eftir fann danskur fiskibátur gúmbjörgunarbát sem síðar kom í ljós að var frá togaran- um. Lét danski báturinn ekki vita um fund sinn fyrr en níu dögum síðar og það var ekki fyrr en 24. janúar sem skipulögð leit að St. Romanus hófst. Fannst þá einn björgunarhringur úr skipinu á svipuðum slóðum og gúmbáturinn fannst. Ferð Kingston Peridot til ís- lands gekk áfallalaust að öðru leyti en því að á leiðinni féll matsveinn skipsins í stiga og varð fyrir meiðsl- um. Var honum komið í land og undir læknishendur á ísafirði en þangað var þá kominn maður frá Bretlandi til að leysa hann af. Kingston Peridot hélt síðan til veiða og segir lítt af ferðum skips- ins næstu daga. Þótt framþróun hefði orðið í loftskeytatækninni frá því að Goth fórst út af Vestfjörðum árið 1948 hafði eitt lítið breyst, tækin voru ekki mikið notuð og skipstjórnar- menn voru ekki viljugir að láta vita um ferðir sínar og veiðislóðir. Margar útgerðir höfðu reyndar ákveðið að hafa þann hátt á sam- skiptum við skip sín, sem voru á fjarlægum miðum, að þau létu vita um sig einu sinni á sólarhring. Við rannsókn á hvarfi St. Romanus og Kingston Peridot kom hins vegar í ljós að á þessu var mikill misbrest- ur og oft liðu margir dagar án þess að skipin létu frá sér heyra. Veðrátta var heldur rysjótt og stormasöm um allt land í janúar 1968. 25. janúar þótti Veðurstofu íslands ljóst að hætta var á norð- anáhlaupi og sendi þá ítrekað út viðvaranir til skipa og báta sem voru að veiðum fyrir norðan land. Þær urðu, öðru fremur, til þess að engir bátar voru þar á sjó þegar óveðrið skall á að morgni 26. jan- úar en vitað var þó að nokkrir erlendir togar- ar myndu vera að veiðum út af Norðurlandi. Vitað var að er- lendu skipin fylgdust vel með íslensku veðurfréttun- um og því þótti líklegt að þau hefðu haldið í landvar eða gert ráðstafanir til þess að verj- ast veðrinu. Veðurhæðin varð enn meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Um tíma mæld- ist vindhraðinn 12 vindstig í Grímsey og 10 vindstig á Mán- árbakka á Tjörnesi. Jafn- hliða hvassvið- rinu herti frost og var víða 11- 14 stig á Norð- urlandi þegar líða tók á dag- inn og hríðar- bylur varð svo svartur að vart sást út úr aug- um. Var þetta með verstu veðrum sem gert hafði um langan tíma og hélst óveðrið nær óbreytt í hálfan annan sólarhring. Var ekki komið skaplegt veður fyrr en undir há- degi 28. janúar. Brak úr Kingston Peridot fínnst Síðdegis 28. janúar varð vart við mikla olíubrák á sjónum í Axar- firði. I fyrstu var hún ekki sett í samband við sjóslys en þegar mannlaus gúmbátur fannst rekinn á fjörur við Einarsstaði í Axarfirði daginn eftir höfðu menn þar nyrðra samband við Slysavarnafé- lag íslands. Þeir Henry A. Hálf- dánarson framkvæmdastjóri fé- lagsins, og Hannes Þ. Hafstein er- indreki könnuðu þá þegar hvort skips væri saknað en í fyrstu virtist svo ekki vera. Var það ekki fyrr en aðfaranótt 30. janúar að fregnir bárust hingað til lands að Kingston Peridot hefði ekki svarað þótt ítrekað hefði verið reynt að ná sambandi við skipið. Eftirgrennslanir leiddu í ljós að síðast hafði heyrst til togarans laust fyrir hádegi 26. janúar. Þá hafði skipstjórinn samband við starfsfélaga sinn á togaranum Kingston Sardius, sem var frá sömu útgerð. Sagðist skipstjórinn á Peridot hafa verið að veiðum á Strandagrunni en þar færi veður ört versnandi og væri hann búinn að gefa sínum mönnum skipun um að ganga frá vörpunni og ætlaði hann síðan að halda austur á bóg- inn í átt að Kingston Sardius. Ræddust skipstjórarnir við í um hálfa klukkustund en eftir að sam- tali þeirra lauk ræddu loftskeyta- menn skipanna, sem voru kunn- ingjar, saman um hríð. Lauk sam- tali þeirra með því að loftskeytamaðurinn á Kingston Peridot sagði að komið væri vit- laust veður, þar sem togarinn var staddur. Búið væri að gera skipið sjóklárt og áhöfnin hefði um stund reynd að berja ísinn af því („lay for a couple of hours while the crew cleared ice from the deck.“). Ák- váðu„ mennirnir að tala aftur sam- an um kvöldið. Undir kvöld var komið svo slæmt veður, þar sem Kingston Sardius var að veiðum út af Langa- nesi, að skipstjórinn ákvað að hætta veiðum og halda sjó. Laust fyrir klukkan átta reyndi hann að ná sambandi við Kingston Peridot en fékk þá engin svör. Um kvöldið og nóttina var öðru hverju reynt að kalla skipið upp, en ekkert heyrð- ist frá því. Töldu menn líklegt að ísing hefði sest á loftnet skipsins og jafnvel slitið það niður. Daginn eftir var enn reynt að ná sambandi en eins og áður var köll- unum svarað með þögninni einni. Skipstjórinn á Kingston Sardius sendi þá skeyti til útgerðarinnar í Bretlandi. Þetta var á laugardegi og var skeytið borið til skrifstofu útgerðarinnar þar sem það mun hafa legið óskoðað fram á mánu- dagsmorgun. Þá reyndi útgerðin að ná sambandi við togarann en fékk engin svör. Hins vegar náðist í aðra togara útgerðarinnar sem voru á Islandsmiðum. Var það þó ekki fyrr en að kvöldi 29. janúar að útgerðin ákvað að gera eitthvað í málunum en þá hafði tryggingafé- lag hennar haft samband og greint frá því að fregnir frá íslandi hermdu að mikil olíubrák væri í Axarfirði og þar hefði fundist gúmbátur sem gæti verið frá King- ston Peridot. Að morgni 30. janúar var eftir- farandi tilkynningu útvarpað í Ríkisútvarpinu bæði á íslensku og ensku: „Slysavarnafélag íslands biður alla, sem eitthvað vita um breska togarann Kingston Peridot Hull 591, að láta skrifstofu félagsins vita. Síðasta samband við þennan Trollið kemur upp að síðunni og eftirvæntingin var alltaf' hin sama. Hafði sá guli gefið sig?

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.