Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 29
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
29
gætu ekki hafa borið ábyrgð á því
hvernig fór.
Endalausar sögusagnir
Eins og oft þegar slík slys verða,
sem hér er lýst að framan spunnust
allskonar sögusagnir í kringum
þau og afdrif áhafna skipanna.
Þegar Goth fórst var t.d. altalað og
jafnvel getið um það í breskum
blöðum að sést hefði til skipsins
löngu, löngu eftir að það var talið
af. Var fullyrt að það hefði komið
til hafnar í Skotlandi. Einnig fóru
fengu þær fréttir vængi að björgun-
arbátur skipsins hefði fundist rek-
inn á land og hefðu í honum verið
ummerki um að menn hefðu hafst
við í honum. Nokkrum dögum eft-
ir að Ross Cleveland og Heiðrún
fórust komu skipverjar á vélbátn-
um Gróttu, sem þá var á siglingu út
af Garðskaga, auga á neyðarljós
sem skotið var upp í mikilli fjar-
lægð í norðvesturátt. Hóf báturinn
þegar leit og flugvélar voru sendar
til leitar. Ekkert fannst. Um hálf-
um mánuði eftir slysið sást gúm-
bátur skorðaður í stórgrýtisurð
undir Krýsuvíkurbjargi. Datt
mönnum strax í hug að hann kynni
að vera frá Ross Cleveland eða
Heiðrúnu. Við fyrsta tækifæri var
sigið í bjargið og bátnum náð. Þótt
merkingar á bátnum væru mjög
máðar og erfitt að ráða í þær þótti
ljóst að gúmbáturinn væri af þýsku
skipi og væri á engan hátt tengdur
skipunum sem fórust á Isafjarðar-
djúpi.
Þótt ýmsar getgátur væru uppi
um örlög skipanna, sem fórust við
Island, voru sögur, sem spunnar
voru, þó ekkert í líkingu við þær
sem búnar voru til um örlög St.
Romanus. Skýringarnar á hvarfi
hans voru af margvíslegu tagi, allt
frá því að rússneskt njósnaskip
hefði siglt hann niður til þess að
hann hefði verið tekinn í heilu lagi
um borð í fljúgandi furðuhlut.
Kannski er það eðlilegt að gripið
sé til allra hálmstráa í slíkum tilvik-
um því hinn nakti sannleikur að
skip hafi farist með manni og mús
er óneitanlega harðneskjulegur. I
þeim fárviðrum, sem skipin fórust
í við ísland, var lítil von að menn
kæmust af. Björgun Harry Eddom
af Ross Cleveland var og verður
aldrei flokkuð undir annað en
kraftaverk.
Aðeins einu sinni á síðustu fimm
áratugum er líklegt að maður eða
menn hafi komist af og í björgun-
arbát er togari fórst, lent í löngum
hrakningum og ekki náð að lifa þá
af. Það var er þýski togarinn N.
Eberling frá Bremerhaven fórst
suðvestur af Látrabjargi að morgni
Þorláksmessu árið 1952. Mjög
mikil og nákvæmt leit að togaran-
um bar aðeins þann árangur að lít-
ilsháttar brak úr honum fannst.
Síðar komu fram vísbendingar um
að einhver eða einhverjir af áhöfn
togarans hefðu komist í björgunar-
bát og lifað af í allt að hálfan mán-
uð. 13 dögum eftir að skipið fórst
sáust frá Hvallátrum neyðarljós-
merki frá sjó. Skip voru þegar send
frá Patreksfirði til leitar og eins
leitaði þýska eftirlitsskipið
Meerkatze. Skipverjar á einu leit-
arskipanna sáu neyðarljós í mikilli
fjarlægð í stutta stund en þótt þeir
sigldu rakleiðis í átt til þess fann
hvorki það skip né önnur, sem leit-
uðu á svæðinu, neitt. Svo greini-
lega sáust neyðarljósin frá Hval-
látrum að menn þar voru þess al-
gjörlega fullvissir að ekki hefði
verið um missýn eða villuljós að
ræða. Þremur dögum síðar sigldi
Meerkatze fram á björgunarbát af
N. Eberling á Breiðafirði. Var bát-
urinn mannlaus og maraði í kafi.
Var hann ekki tekinn um borð í
eftirlitsskipið en rak nokkru síðar
að landi við Lambavatn í Rauða-
sandshreppi. Veittu menn því at-
hygli að merki eða skorur voru
ristar í fjöl í bátnum. Voru þær
þrettán talsins. Var fjölin send til
Þýskalands til rannsóknar en
aldrei fréttist hérlendis hver niður-
staðan af henni varð. Nokkrum
dögum eftir að björgunarbátinn
rak að landi kom lík í vörpu skips
sem var að veiðum úti fyrir Látra-
bjargi langt frá þeim stað sem N.
Eberling gaf upp er skipið var að
farast. Reyndist líkið vera af ein-
um skipverja togarans. Var það vel
klætt og á því fundust matarbirgð-
ir. Þótti líklegt að maðurinn hefði
hafst við í björgunarbátnum og
það hefði verið hann sem gaf ljós-
merki þau er fyrr er vitnað til.
Akranesi
Sandgerði
Skipasmíðastöð
horgeir & EUerts hf
Bakkatún 26, 300 Akranes
Verkalýðsfélag
Akraness
VÉLSMIÐJA
AKRANESS EHF.
VALLHOLTI 1 ® 431 4177
SKIPAVIKHF.
___Nesvegi 20 • 340 Stykkishólmur_
Þórsnes hf
Reitarvegi 14-16
340 Stykkishólmur
Hraðfrystihús
Hellissands
Gunnvör hf
Eyrargötu 2-4
400 ísafjörður
ÍSAFJARÐARBÆR
Netagerð
Vestfjarða hf
ÍSAFJÖRÐUR
HVAMMSTANGA
Sjómannafélag
ísfirðinga
SKIPASMÍÐASTÖÐIN HF.
Suöurtangi 6 • Pósthólf 310 • 400 ísafjörður
Sími 456 3899 • Fax 456 4471 • Kt.: 420986-1229