Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 33
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
33
I
Starfsfólk
KASSAGERÐAR REYKJAVÍKUR HF
þakkar viðskiptavinum sínumfyrir
samstarfið á liðnum árum.
íslenskt, já takk!
KASSAGERÐ REYKJAVIKUR HF
VpSTURGARÐAR 1-104 REYKJAVÍK
SIMI 55 38383 - FAX 56 82281 - NETFANG sala@kassagerd.is
Línulagningarspilið. Það er tölvustýrt og keyrir línuna út í samræmi við
óskir fiskiskipstjórans
Túnfiskveiðar
Útlit og ferskleiki
túnfísksins skipta öllu
máli
Það er lykilatriði á túnfiskveið-
unum að ganga fljótt og vel frá afl-
anum og koma honum í frost á sem
skemmstum tíma.
— Frágangurinn á túnfisknum
er mikið nákvæmnisverk en mér er
sagt að aðferðirnar við að ganga
frá fisknum séu nokkuð mismun-
andi á milli skipa. Um borð í Toku-
jo Maru var gengið í að blóðga
fiskinn um leið og hann kom um
borð. Hluti tálknanna var fjar-
lægður og rist var á kviðinn til þess
að fjarlægja innyflin. Síðan var
fiskurinn þveginn og þurrkaður og
hann loks settur í blástursfrysti þar
sem er — 65°C frost. Ismeistarinn
um borð sagði mér að það það væri
ágætt að hafa fiskinn í frystinum í
allt að þrjá daga en um borð í sum-
um öðrum skipum er látið duga að
frysta fiskinn í rúman sólarhring.
Eftir frystingu er fiskurinn glasser-
aður með ferskum sjó og hann er
síðan geymdur í frystilestinni við
-45°C. Mér er sagt að með þessu
móti sé hægt að varðveita fersk-
leika túnfisksins í meira en 20 mán-
uði en allt miðast við að ferskleik-
inn og útlitið sé eins og best verður
á kosið þegar aflinn er seldur á
markaði í Japan.
í veiðiferðinni, sem stóð í 68
daga, veiddust alls 419 túnfiskar á
57 veiðidögum eða tæplega 7,4
fiskar á dag. Aflinn vó alls 53,2
tonn og áætlað aflaverðmæti er um
130 milljónir króna. Stefán segir
fiskiskipstjórann vera mjög án-
ægðan með árangurinn og hann
hefði haldið áfram veiðum í land-
helginni ef fréttír hefðu ekki boríst
af betri afla undan ströndum Kan-
ada.
— Þegar komið var fram undir
20. nóvember var karlinn greini-
lega farinn að ókyrrast en við feng-
um þó alltaf einhvern afla á degi
hverjum. Um þetta leyti fengum
við hins vegar fréttir frá Houken
Maru um góðan afla einhvers stað-
ar út af Nýfundnalandi eða Labra-
dor og því var ákveðið að halda
þangað eftir að búið var að skutla
mér í land. Veiðin var þó alls ekki
dottin niður og t.d. fengum við 650
kíló af túnfiski síðasta dagínn, seg-
ir Stefán en hann upplýsir að eftir
veíðarnar undan ströndum Kan-
og breytingar
SKIPASMÍÐASTÖÐIN HF.
SuAurtangi 6 • Pósthólf 310 * 400 ísafjörður
Sími 456 3899 • Fax 456 4471
Gert að rúmlega 300 kflóa túnfiskí
um borð í Tokujo Maru
ísmeistarinn (t.h.) og aðstoðarmaður hans
Fiskibátar • Vinnubátar • Skemmtibátar
Áratuga reynsla • Nýjasta tækni
Stál • Ál
ada muni skipíð fara til Spánar og
Marakkó og síðan til veiða við
vesturströnd Afríku suður undir
Kanaríeyjar. Veiðiferðinni, sem
hófst í byrjun ágúst í Japan, lýkur
svo ekki fyrr en í júní á næsta ári.
Áhöfnin fer þá til síns heima og fær
e.t.v. frí í tæpa tvo mánuði áður en
haldið verður til veiða að nýju.