Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 39
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
39
Gönguleiðir loðn
Kaldur sjór árið 1988
breytti göngumynstrinu
í nýútkomnu riti Fiskideildar Haf-
rannsóknastofnunar er að finna
fróðlega grein um samspil loðnu og
annarra fisktegunda í Norður-Atl-
antshafi eftir Hjálmar Vilhjálms-
son fiskifræðing. Með greininni er
m.a. birt kort sem sýnir göngu-
mynstur íslensku loðnunnar á
hrygningar- og fæðuöflunartíman-
um eins og það hefur verið frá því
að rannsóknir hófust á ioðnustofn-
inum. Samkvæmt kortinu gengur
fullorðna loðnan allt norður undir
Jan Mayen í fæðisleit en í samtali
við Fiskifréttir vekur Hjálmar at-
hygli á því að undanfarin tíu ár hafi
loðnan þó sjaldn-
ast gengið svo
Iangt norður.
Göngum-
ynstrið, sem kort-
ið sýnir, var ekki
óalgengt á árun-
um 1978 til 1987
og á þessum árum
kom fyrir að loðn-
an tæki sveig aust-
ur og norður fyrir
Jan Mayen og
gengi jafnvel enn
norðar en sýnt er
á kortinu. Frá ár-
inu 1988 hefur
loðnan hins vegar
sjaldan gengið
norðar en að 70°
norðlægrar
breiddar og aldrei
lengra en norður
undir 71°. Þetta ár
myndaðist fleygur
af ísköldum sjó
allt frá græn-
lenska landgrunninu og austur
fyrir Langanes og þessi kalda
tunga náði niður á um 150 metra
dýpi. Loðnan virtist ekki komast
norður fyrir þessa tungu eða ekki
kæra sig um það og mér er það
minnisstætt að það varð uppi fótur
og fit í loðnuleit Norðmanna þetta
ár af þessum ástæðum. Þeir
hringdu í mig og sögðust vera bún-
ir að leita allt frá 73° norður
breiddar og á öllu svæðinu fyrir
sunnan Jan Mayen og finndu enga
loðnu. Mér brá nokkuð í brún
vegna þess að ég taldi loðnustofn-
inn eiga að vera nokkuð sterkan
um þessar mundir. Eina svæðið,
sem Norðmenn áttu eftir að leita á,
var vestur í Grænlandssundi og ég
ráðlagði þeim að svipast þar um
eftir loðnunni og þar fannst hún,
segir Hjálmar.
Að sögn Hjálmars breyttist
göngumynstur loðnunnar eftir
þetta. Jafnvel þótt kalda tungan
væri horfin ári síðar þá gekk loðn-
an ekki lengra norður árið 1989 en
hún hafði gert árið 1988.
— Eftir þetta hafa göngur loðn-
unnar verið nokkuð breytilegar.
Flest árin hefur loðnan ekki gengið
mjög langt norður en árið 1992
gekk hún þó norður undir 70° en
sneri þá við í stað þess að halda
áfram norður. Á seinni árum hefur
loðnan tvisvar eða þrisvar gengið
norður á svæðið á milli Grænlands
og Jan Mayen en aldrei norður
fyrir 71°, segir Hjálmar.
Verður hlýi sjórinn til að
loðnan þétti sig í torfum
úti af Austfjörðum?
Gönguleiðir loðnunnar úti af
Austfjörðum eru ekki síður athygl-
isverðar en göngur hennar norður í
höf. Hjálmar segir misjafnt frá ári
til árs hvort loðnan taki sveig á sig
út frá Austfjörðum og gangi um
Þórsbanka áður en hún komi upp
að landinu eða hvort hún gangi
beint suður og vestur með strönd-
inni.
— Á árunum fyrir 1990 var oft
ágæt veiði fyrir Norðurlandi á
haustin og úti af Austfjörðum í jan-
úar en á undanförnum árum hafa
haustveiðarnar gengið illa auk
þess sem engin kraftveiði hefur
verið í nót í janúar frá árinu 1990.
Það hefur staðið haustveiðunum
fyrir þrifum að smáloðnan hefur
blandast stærri loðnunni fyrir
norðan landið og það er fyrst nú
eftir að flottrollsveiðarnar komu
til skjalanna að hægt hefur verið að
fá viðunandi afla í janúar úti af
Austfjörðum. Af einhverjum
ástæðum hefur torfumyndun hjá
loðnunni verið með minnsta móti
úti af Austfjörðum á þessum árs-
tíma allt frá árinu 1990 en hins veg-
ar er það spurning hvort hlýi sjór-
inn, sem nú er ríkjandi svo að segja
allt í kringum landið, geti breytt
þessu á nýjan leik. Loðnan er kald-
sjávarfiskur og án þess að ég geti
sagt fyrir um þetta hér og nú þá
kæmi mér ekkert á óvart að hlýi
sjórinn gæti orðið til þess að loðn-
an myndi þétta sig í kaldari sjó þar
sem áhrifa hlýsjávarins gætir ekki.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með því hvort það verður raunin,
segir Hjálmar Vilhjálmsson.
Kortið sýnir hrygningar- og fæðugöngusvæði loð-
nunnar. Hrygningarsvæðið og gönguleiðir á hrygn-
ingartímanum eru einkenndar með rauðum lit en
fæðusvæðið með grænum lit. Bláu örvarnar sína
síðan gönguleiðina til baka að ströndum landsins
Þekking Reynsla Pjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SfMI: 581 4670, FAX: 581 3882
BOSCH
Dieselkepfi ,
Vökvakerfi
OIiusíup
Dieselsfillingap
Rafviðgepðip
Rafstöðvap
Handvepkfæpi
Þjónustumiðstöð í hjarta borgarinnar
BRÆÐURNIR
Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
ÁSDÍS ST 37
Vlð ééii íítgerð og áköfn
til hainingju meö skiplð
y
V.Ao ÞJÓNUSTAN SÁ UM ALLA MÁLNINGAitVINNU
STAÐARSUND 4 » GRINDAVÍK
S: 426 8990 * G5M: íi'JG B'JVO ^ FAX: 426 8683