Fiskifréttir - 08.07.2005, Blaðsíða 1
Upplýsingakerfi fyrir
sjávarútvegsfyrirtæki
Microsoft
GOLD CERTIFIED
Partner
sími: 545 3200 | sala@maritech.is
maritech
Fiskmarkaðir fyrstu sex mánuði ársins:
Magnið jókst um 4,3%
— en veitan stóð í stað vegna verðlækkunar og breyttrar samsetningar
Fyrstu sex mánuði ársins 2005 voru seld rétt tæp 60 þúsund
tonn á fiskmörkuðum landsins og heildarveltan nam rétt rúm-
um 6,5 milljörðum króna. Fyrstu sex mánuði ársins 2004 voru
seld rétt rúm 57 þúsund tonn fyrir um 6,5 milljarða króna.
Meðalverð á kíló fyrir allar tegundir lækkaði úr um 114 krón-
um niður í um 109 krónur milli ára fyrir sama tímabil.
Flatey ÞH
seld til
Vestmanna-
eyja
Vinnslustöðin hf. I Vest-
mannaeyjum er að kaupa rækju-
togarann Flatey ÞH frá Húsavík.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
framkvæmdstjóri sagði í samtali
við Fiskifréttir að þeir gerðu ráð
fyrir því að fá skipið afhent í lok
ágúst eða fyrr. Flatey ÞH mun
leysa Brynjólf AR af hólmi sem
væntanlega verður seldur í
brotajárn.
Flatey ÞH er 529 tonn að stærð
og hét áður Gissur AR. Sigurgeir
sagði að Brynjólfur hefði verið
gerður út á net mestan hluta ársins
en verið á humartrolli á sumrin.
Ráðgert er að breyta útgerðar-
munstrinu þegar Flatey kemur.
„Netaveiðin hefur verið léleg á
haustin og verð á ufsa sem fæst í
netin er lágt. Afkoman fyrir útgerð
og mannskap hefur því ekki verið
nógu góð. Við gerum ráð fyrir að
Flatey verði á trolli frá september
og fram til loka febrúar, þá taka við
net út apríl og síðan fer skipið á
humartroll.”
Sem kunnugt er hefur Vinnslu-
stöðin einnig í hyggju að fá nýtt
skip fyrir Drangavík VE en Sigur-
geir sagði að það mál væri enn í at-
hugun.
Kvótastaða:
Misjöfn
veiði
— eftir tegundum
Nú eru aðeins um tveir
mánuðir eftir af kvótaárinu
og misjafnlega hefur gengið
að veiða þær tegundir sem
bundnar eru í kvóta.
Líklega er það einsdæmi að
eftir er að veiða yfir 80% í
tveimur tegundum, þ.e. skráp-
flúru og úthafsrækju. Einnig er
mikið eftir óveitt af sandkola og
grálúðu. Hins vegar hefur verið
veitt umfram heildarkvóta í
tveimur tegundum, í skarkola og
þykkvalúru.
Sjá nánar á bls. 9
Heildarsala á fiskmörkuðum
landsins jókst þannig að magni til
um 4,3% á fyrstu sex mánuðum
ársins miðað við sama tíma í fyrra
en velta þeirra stóð nokkurn veg-
inn í stað. Skýrist það af um 4%
lækkun á meðalverði allra fiskteg-
unda. Verðlækkunin stafar meðal
annars af því að samsetning á milli
slægðs og óslægðs afla hefur
breyst milli ára. Þá hefur orðið
aukning í ódýrari tegundum.
Tryggvi Leifur Óttarsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs íslands
hf., sagði í samtali við Fiskifréttir
að þrátt fyrir allt virtist ekki stór-
kostlegur munur á sölu á fiskmörk-
uðum á milli ára. „Aukningin var
mest á fyrri hluta ársins. Mér sýn-
ist að sá tírni sé alltaf að lengjast
sem lítill fiskur kemur inn á mark-
aðina. Salan er núna lítil allt frá
maí og langt fram á haust. Ástæðan
er til dæmis sú að handfæraveiðar
hafa dregist heilmikið saman. Þá
eru flestir stærri bátarnir búnir með
kvótann. Einnig hafa stærri bátar
margir hverjir verið að færast á æ
færri hendur. Allt þetta hefur sín á-
hrif,” sagði Tryggvi. Varðandi
mikla aukningu á óslægðum fiski
sagði Tryggvi að tilhneigingin væri
að slægja meira í landi en áður,
einkum fisk af dragnótabátum og
minni línubátum.
Sjá nánar á bls. 6.
Netin yfirfarin
Einn góðviðrisdag í júní rakst ljósmyndari Fiskifrétta á þau Ólöfu Rún Sigurjónsdóttur og Sævar Egilsson, vélstjóra og trillukarl í hjáverk-
um, niðri á bryggju á Mjóafirði er þau voru að yfirfara grásleppuúthaldið en grásleppuvertíðinni lauk á þessum slóðum um mánaðamótin
maí/júní. Sævar rær einn á Haferni SU til grásleppuveiða á vorin. Að þessu sinni fékk hann 42 tunnur af grásleppuhrognum á tveim mán-
uðum sem hann segir að sé í slöku meðallagi. A síðustu vertíð vorið 2004 náði hann hins vegar 82 tunnum en þá var sérstaklega gott ár,
bæði var tíðin góð og veiðin mikil. (Mynd/Fiskifréttir: Hlynur Arsælsson).
1 .
* „ 'T1Sk b * f ‘iéim ,.. -/j ' ' Y! ^ __ J, !»p,' Heildarlausn á samhæfðum vélbúnaði Samstarfsaðili Rolls-Royce ÉM = HÉÐINN = | Stórás 6 • IS-210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is L 1 • • o