Fiskifréttir - 08.07.2005, Blaðsíða 9
FISKIFRETTIR 8. júlí 2005
7.-10. september 2005 • www.icefish.is
9
FRETTIR
Fiskveiðiáríð 2004/2005:
Yfir 80% óveidd í tveim tegundum
— þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir af fiskveiðiárinu
Það verður líklega að teljast
einsdæmi að nú þegar aðeins
tveir mánuðir eru eftir af fisk-
veiðiárinu að eftir er að veiða
yfir 80% kvótans í tveimur teg-
undum, þ.e. um 86% af skráp-
flúrukvótanum eru óveidd og um
82% af úthafsrækjukvótanum.
Þá er einnig eftir að veiða um
60% af sandkolakvótanum sem
Betur hefur gengið að veiða steinbítskvótann á þessu fiskveiðiári en
árið þar á undan. (Mynd: Einar Asgeirsson).
er heldur meira en í fyrra og
47% eru óveidd af grálúðunni
sem er svipað hlutfall og á sama
tíma á síðasta fiskveiðiári.
Á meðfylgjandi skýringarmynd,
sem unnin er upp úr gögnum frá
Fiskistofu, má sjá að á heildina lit-
ið hefur gengið ágætlega að veiða
úthlutaða kvóta. Um 19% eru nú ó-
veidd og er það svipað hlutfall og á
sama tíma í fyrra en þá átti eftir að
veiða um 21% kvótans. Mjög vel
hefur gengið að veiða ýmsar teg-
undir. Þannig er aðeins eftir að
veiða 15% af humarkvótanum en á
sama tíma í fyrra var t.d. eftir að
veiða um 41 % humarkvótans.
Vel hefur einnig veiðst af skötu-
sel en aðeins 7% eru eftir af kvót-
anum. Á sama tíma í fyrra var eftir
að veiða um 29% af skötuselnum.
Einnig er hlutfallslega lítið eftir af
löngukvóta og skarkolakvóta. Þá er
langlúrukvótinn uppurinn og farið
hefur verið um 4% fram úr heim-
ildum í þykkvalúru og 5% í skar-
kola. Síldarkvótinn náðist einnig
að þessu sinni en aðeins 1% er eft-
ir af kvótanum. Loks má vekja at-
hygli á því að einungis er eftir að
veiða 14% af steinbítskvótanum.
Betur hefur gengið að veiða stein-
bítinn að þessu sinni heldur en í
fyrra þegar 35% voru eftir af kvót-
anum á þessum tima. Ræðst það
líklega af því að verð á steinbítnum
hefur hækkað talsvert milli áranna
2004 og 2005.
Eftirstöðvar kvóta 1. júlí 2005
Kvóti 174.003 tn
Óveitt 21.240 tn
Kvóti 79.058 tn
Óveitt 8.081 tn
Kvóti 60.880 tn
Óveitt 13.610 tn
Kvóti 65.244 tn
Óveitt 15.729 tn
Kvóti 3.597 tn
Óveitt 600 tn
Kvóti 5.806 tn
Óveitt 3.439 tn
Kvóti 12.969 tn
Óveitt 1.851 tn
Kvóti 5.335 tn
Óveitt 4.611 tn
Kvóti 1.991 tn
Óveitt 136 tn
Kvóti 17.986 tn Kvóti 4.921 tn
Óveitt 8.527 tn Umfram 228 tn
Kvóti 1.718 tn
Umfram 60 tn
Kvóti 3.373 tn
Óveitt 186 tn
Kvóti 1.881 tn
Óveitt 23 tn
Kvóti 469 tn
Óveitt 61 tn
Kvóti 115.164 tn
Óveitt 927 tn
Kvóti 803.256 tn
Óveitt 164.042 tn
Kvóti 560 tn
Óveitt 86 tn
Kvóti 18.873 tn
Óveitt 15.408 tn
Noregur:
Fiskveiði-
laga-
brotum
fækkar
Tölur frá norsku strand-
gæslunni benda til þess að
fiskveiðilagabrotum hafi
fækkað frá því í fyrra. Á þetta
ekki síst við um fjölda er-
lendra skipa sem tekin hafa
verið fyrir brot á norsku fisk-
veiðilöggjöfinni, að því er
fram kemur á Skip.is.
Það, sem af er árinu, hafa
fimm erlend skip verið tekin
fyrir meint fiskveiðilagabrot og
færð til hafnar í Noregi. Brotin
hafa verið fólgin í því að
möskvi i trollum hefur verið of
smár, skipstjórar þeirra hafa lát-
ið undir höfuð leggjast að til-
kynna skipin inn í lögsöguna á
fyrirframákveðnum stöðum eða
þá að uppgefnar aflatölur hafa
verið of lágar. Tíu norsk skip
haf verið tekin í ár og eru brot
þeirra aðallega fólgin í því að
þau hafa verið að veiðum á
stöðum þar sem þau höfðu ekki
veiðileyfi eða þá að afladag-
bækur hafa verið færðar á rang-
an hátt. NRK greindi frá.
KVÓTAMIÐLUN
HITTUM í MARH
* Eigum i aflamarki þorsk, ýsu, steinbít, löngu, keilu, karfa, skarkola,
ufsa, sandkola, skrápflúru og langlúru.
* Vantar ýsu i krókaaflamarki.
* Eigum I krókaaflamarki þorsk, ufsa, steinbit, löngu, keilu og karfa.
* Vantar þykkvalúru og skötusel I aflamarki.
* Vantar síldarkvóta
Höfum kaupendur af hlutdeild i öllum tegundum
I Aflamarki og Krókaaflamarki.
Vinsamlegst hafið samband við Friðbjörn
Fiskmarkaður Islands hf.
í síma 430 3743 eða 840 3743, fax 430 3741
e-mail fridbjorn@fmis.is