Fiskifréttir


Fiskifréttir - 08.07.2005, Blaðsíða 4

Fiskifréttir - 08.07.2005, Blaðsíða 4
4 7.-10. september 2005 • www.icefish.is FISKIFRÉTTIR 8. júlí 2005 FRETTIR Treg veiði á grálúðu: Of mikið veitt miðað við afrakstursgetu stofnsins — segir Einar Hjörleifsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun „Við höfum tiltölulegar litlar upplýsingar um gráiúðustofninn. Aflabrögðin hafa verið að versna síðustu 20 árin. Mér sýnist aug- Ijóst að skýringin á minnkandi veiði sé sú að veitt hefur verið of mikið um langt árabil miðað við afrakstursgetu stofnsins án þess að það liggi beint fyrir,” sagði Einar Hjörleifsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, í samtali við Fiskifréttir er hann var spurður um skýringuna á dræmri veiði á grálúðu bæði í ár og á síðasta fiskveiðiári. Þá náðist ekki að veiða nema hluta af kvótan- um og allt stefnir í að svipað verði uppi á teningnum á yfirstand- andi fiskveiðiári Sem kunnugt er miðast veiðiráð- gjöf Hafrannsóknastofnunar við grálúðu sem veiðist við Austur- Grænland, á Islandsmiðum og í færeyskri lögsögu en grálúðan á þessu svæði er talin vera af sama stofni. Lengi vel voru íslendingar að mestu einir um að nýta þennan stofn en Einar benti á að veiðar við Austur-Grænland hefðu farið vax- andi. Fram kemur í nýjustu á- standsskýrslu Hafró að hlutdeild grálúðuafla á Islandsmiðum var um og yfir 90% af heildaraflanum á árunum 1982-1992 en minnkaði ört eftir það og hefur verið 50-70% frá árinu 1996. „Ekki hefur náðst samkomulag milli þessara þriggja landa um nýtingu grálúðustofns- ins. Við leysum það ekki innan fiskifræðinnar. Slíkt er pólitískt úr- lausnarefni,” sagði Einar. Öllu úthlutað til íslcnskra skipa Hafrannsóknastofnun leggur til að veidd verði 15 þúsund tonn af grálúðu á öllu svæðinu, þ.e. við Austur-Grænland, ísland og Fær- eyjar, á næsta fiskveiðiári. Ráð- gjöfin miðaðist einnig við 15 þús- und tonn á yfirstandandi fisk- veiðiári. íslensk stjórnvöld hafa undanfarin ár úthlutað öllum ráð- lögðum afla til íslenskra skipa án tillits til þess hve mikið er veitt við Grænland og Færeyjar. Einar var spurður hvort það væri gert með þegjandi samþykki Hafrann- sóknastofnunar. „I skýrslu Haf- rannsóknastofnunar um ástand og horfur nytjastofna kemur skýrt fram að veiðiráðgjöf okkar miðast við allt svæðið, ekki aðeins ís- landsmið. Það fer ekkert á milli mála. Sjávarútvegsráðherra hlýtur að vera læs á skýrsluna eins og aðrir menn. Stjórnvöld taka á- kvörðun um heildaraflamark eftir að við veitum ráðgjöf okkar. Hvort við eigum að átelja ráðherr- ann fyrir að fara ekki að okkar ráðum er svo annað mál. Hins vegar er sjálfsagt að upplýsa al- menning um að það sé ekki gert, sérstaklega þar sem skilja mátti af fréttum frá ráðuneytinu að farið hefði verið að mestu eftir ráðgjöf. Þegar frávik frá ráðgjöf í einstök- um tegundum voru hins vegar til- greind í tilkynningu um afla- Á grálúðuveiðum. (Mynd: Kristinn Benediktsson). marksákvörðun þá var grálúðan ekki á þeim lista.” Grálúðan fer víða Eins og vikið er að hér að fram er lítið vitað um grálúðustofninn. Fram kom hjá Einari að á árinu 2003 hefði verið farið í merkingar- leiðangur fyrir austan land. Grá- lúðan var veidd á línu í leiðangrin- um. Einar sagði að aflabrögðin hefðu verið það léleg að ekki hefði tekist að merkja nema 300-400 grálúður í leiðangrinum. Þeir voru því ekki nógu ánægðir með árang- urinn. Þau merki sem þegar hafa verið endurheimt hafa meðal ann- ars verið í fiskum sem veiddir voru í færeyskri lögsögu og á Hamp- iðjutorginu. Af því virðist ljóst að grálúðan sem veiðist á íslandsmið- um fer víða. Einar gat þess í lokin að Stjörnu-Oddi væri að þróa neð- ansjávarmerkingarbúnað sinn, sem notaður hefur verið til að merkja karfa, þannig að unnt yrði að merkja grálúðu í honum einnig. Ef af því yrði skapaðist þar með möguleiki á því að merkja grálúðu neðansjávar sem veiðist í botn- vörpu. Þar með væri hugsanlega hægt að merkja grálúðu á mun hag- kvæmari hátt en hingað til. íslensku skipin í Miðjarðarhafi: Eru enn að fiytja túnfisk — hefja veiðar í landhelgi Líbýu innan tíðar „Þetta gengur allt sam- kvæmt áætlun. Togararnir eru ennþá að draga túnfiskkvíar og verða í því verkefni svo Iengi sem túnfiskvertíðin stendur yfir, væntanlega út júlímánuð. Eftir það halda þeir til veiða í lögsögu Líbýu,” sagði Rafn Sveinsson, útgerð- armaður Sveins Rafns, í sam- tali við Fiskifréttir en eins og fram hefur komið í blaðinu eru fjórir íslenskir togarar farnir til Miðjarðarhafs og er stefnt að því að þeir hefji veiðar í lí- býskri Iögsögu innan tíðar. Skipin sem um ræðir eru auk Sveins Rafns: Eyborg, Erla og Arnarborg. Tafsamt hefur verið að ganga frá öllum pappírum varðandi veiðarnar í Líbýu en skipin hafa haft nóg verkefni við túnfiskflutningana. Túnfiskur- inn er veiddur í nót í Miðjarðar- hafi og geymdur lifandi i kvíum sem íslensku flutningaskipin draga í land til Möltu. Túnfisk- veiðiskipin eru frá Ítalíu, Spáni, Líbýu og víðar. Rafn sagði að fjöldi skipa væri í því að flytja túnfiskinn auk íslensku skip- anna. Að sögn Rafns fara ís- lensku skipin á rækjuveiðar í troll í landhelgi Líbýu. Rækjan sem þau koma til með að veiða er mjög stór eða allt upp í 100 grömm og er algengt að 10-15 stykki séu í kílóinu. Þá munu þau veiða ýmsar tegundir af bol- fiski með. Aflanum verður land- að á Möltu. Skráning meðafla við kolmunnaveiðar: Kostnaðarauki fyrír vinnsiuna — þurfum að finna leiðir til að losna við meðafla við kolmunnaveiðar annars er framtíð kol- munnaveiða í hættu, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað „Sannast sagna hvarflar það að mér hvort það myndi yfirhöf- uð borga sig fyrir okkur að taka á móti kolmunna hér í Neskaup- stað þegar ég sá þessa reglugerð því fyrirsjáanlegur kostnaður við sýnatökur er það mikill. Auðvitað munum við fylgja þessum reglum en kostnaðarauki er mikill og fannst okkur orðið nóg fyr- ir,” sagði BjörgóJfur Jóhannsson, forstjóri Sfldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað, í samtali við Fiskifréttir er hann var inntur álits á reglugerð sjávarútvegsráðherra um vigtun og skráningu með- afla við kolmunnaveiðar sem tók gildi í byrjun vikunnar. í reglugerðinni segir að vigtun- arleyfishafi sem tekur á móti kolmunna skuli taka sýni úr afla. Niðurstaða sýnatöku skal lögð til grundvallar við ákvörðun magns og skráningu einstakra tegunda meðafla. Fjöldi sýna úr hveijum farmi skal ákveðinn þannig að úr 1000 lesta farmi og minni skal tek- ið eitt sýni fyrir hverjar hundrað lestir en þó aldrei færri en þrjú sýni. Sé farmur stærri en 1000 lest- ir skal að auki tekið eitt sýni úr hverjum 200 lestum umfram 1000 lestir en þó skal aldrei taka fleiri en 15 sýni alls úr hverjum farmi. Þá skal hvert sýni vega um það bil 500 kg. Skulu sýni valin þannig að dregnar skulu út slembitölur fyrir hverja heila lest á talnabilinu frá einum til áætlaðs heildarafla og ræðst fjöldi þeirra af tölu sýna. Sýnin skulu sett í kar og merkt með númeri og þau vegin til að ákvarða heildarþunga hvers sýnis. Starfs- menn vigtunarleyfishafa skulu teg- undaflokka meðafla, telja fiska af hverri tegund og vigta magn hverr- ar tegundar í hverju sýni (kari). Magn meðafla í hverri tegund skal síðan uppreiknað með tilliti til heildarafla hverrar löndunar og skal sá meðafli skráður til afla við- komandi fiskiskips í aflaskráning- arkerfi Fiskistofu. Björgólfur sagði að verksmiðjur þyrftu að hafa góða aðstöðu til þess að taka þetta mikla magn af sýnum sem gert er ráð fyrir í reglu- gerðinni. Einnig þyrftu þær að leggja til starfsfólk. Kostnaðurinn yrði því umtalsverður. „Að sjálf- sögðu gengur ekki að við kolmunnaveiðar komi mikill bol- fiskur sem meðafli sem ekki skrá- ist til aflamarks. Eg tel að við þurf- um að huga að öðrum hagkvæmari leiðum til að skrá þennan meðafla. Einn valmöguleikinn er að flokka hann frá úti á sjó og koma með hann að landi aðskildan frá öðrum afla. Mér finnst sá möguleiki koma vel til greina. Það skiptir þó auðvit- að mestu máli að losna við meðafla við kolmunnaveiðar eins og kost- ur er. Við erum að vinna að því með því að nota skiljur um borð í Berki NK og höfum áhuga á að þróa þá leið enn frekar. Þess má geta að í næsta túr hjá Berki verða rannsóknamenn um borð sem ætla að mynda neðansjávar hvernig skiljan vinnur og það verður fróðlegt að sjá niðurstöður þeirra rannsókna, Ég tel að flest- ar útgerðir kolmunnaveiðiskipa muni ekki treysta sér til að leggja til mikinn bolfiskkvóta til að geta stundað þessar veiðar. Við verð- um því að finna leiðir til að losna við meðaflann annars er framtíð kolmunnaveiða í hættu,” sagði Björgólfur.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.