Fiskifréttir - 08.07.2005, Side 7
6
7.-10. september 2005 • www.icefish.is
FISKIFRETTIR 8. júlí 2005
FISKIFRÉTTIR 8. júlí 2005
7
FRETTIR
Fiskmarkaðir fyrstu sex mánuði ársins:
Magnið jókst um 4,3%
en veltan stóð í stað
Þrátt fyrir að heildarsala á
fiskmörkuðum landsins hafi
aukist um 4,3% á fyrstu sex
mánuðm ársins miðað við sama
tíma í fyrra stóð velta þeirra
nokkurn veginn í stað á tímabil-
inu. Skýrist það af um 4% lækk-
un á meðalverði allra fiskteg-
unda samkvæmt samantekt
Fiskifrétta sem unnin er upp úr
gögnum frá Islandsmarkaði.
Fyrstu sex mánuði ársins 2005
voru seld rétt tæp 60 þúsund tonn á
fiskmörkuðum landsins og heild-
arveltan nam rétt rúmum 6,5 millj-
örðum króna. Fyrstu sex mánuði
ársins 2004 voru seld rétt rúm 57
þúsund tonn fyrir um 6,5 milljarða
króna. Meðalverð á kíló fyrir allar
tegundir lækkaði úr um 114 krón-
um niður í um 109 krónur milli ára
fyrir sama tímabil.
Jafnmikið af óslægðum
afla og slægðum
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu er verðlækkunin ekki eins
mikil og í fyrstu sýnist þar sem
samsetning á milli slægðs og ó-
slægðs afla hefur breyst milli ára.
Hvað sem því líður þá lækkaði
meðalverð fyrir allar tegundir; um
3% á slægðum fiski og um 2% á ó-
slægðum fiski. Sala á slægðum
fiski dróst saman um rúm 8% á
tímabilinu en jókst um heil 20% í
óslægðum fiski. Munar þar mest
um aukningu á óslægðri ýsu, ufsa
og gullkarfa. Nú er svo komið að
nokkurn veginn jafnmikið er selt af
óslægðum fiski og slægðum á fisk-
mörkuðunum.
Mikil aukning í
óslægðri ýsu
Taflan sýnir að samdráttur varð í
sölu á flestum helstu tegundum í
slægðum afla. Mestur var sam-
drátturinn hlutfallslega í ufsa, eða
um 30%. Einnig varð talsverður
samdráttur í sölu á slægðum stein-
bít og slægðum þorski. Þá má
einnig sjá að um 10% samdráttur
varð í sölu á þorskhrognum á tíma-
bilinu. Slægð langa sker sig úr með
um 32% aukningu en einnig var lít-
ilsháttar aukning í sölu á slægðum
skarkola. Yfirleitt var nokkur
aukning í sölu á óslægðum afla í
flestum tegundum. Mesta aukning
hlutfallslega var í sölu á óslægðri
ýsu, eða um 38%. Sala á óslægðum
ufsa jókst einnig mikið eða um tæp
32%
Verðhækkun á steinbít
Yfirleitt hefur meðalverð á helstu
tegundum lækkað á milli ára miðað
við fyrri helming ársins. Slægður
þorskur hefur til dæmis lækkað urn
rúm 9%, fór úr 176,21 kr./kg fyrstu
sex mánuði ársins 2004 niður í
159,86 kr./kg fyrir sama tíma í ár.
Þrátt fyrir verðlækkun svona
nokkurn veginn á línuna má sjá
hækkun í verði í nokkrum tegund-
um milli ára. Ber þar hæst um 27%
hækkun á slægðum steinbít og 18%
hækkun á óslægðum steinbít. Með-
alverð á slægðum steinbít fór
þannig upp í rétt rúma 101 krónur á
fyrri helmingi þessa árs.
Sala á fiskmörkuðum fyrstu árin 2004 og 2005 Tonn Tonn 2004 2005 Breyting sex mánuði Meðal- Meðal- verð verð 2004, 2005, kr./kg kr./kg Breyting
Þorskur - slægður 11.543 10.250 -11,20% 176,21 159,86 -9,30%
Þorskur - óslægður 11.487 13.539 17.90% 130,43 126,76 -2,80%
Ysa - slægð 5.671 5.381 -5,10% 92,59 90,59 -2,20%
Ýsa - óslægð 5.859 8.091 38,10% 99,11 93,79 -5,40%
Ufsi - slægður 3.413 2.364 -30,70% 35,98 33,63 -6,50%
Ufsi - óslægður 844 1.110 31,50% 28,33 29,04 2,50%
Gullkarfi - óslægður 2.129 2.574 20,90% 68,25 62,16 -8,90%
Steinbítur - slægður 3.124 2.698 -13,60% 79,56 101,29 27,30%
Steinbítur - óslægður 1.990 1.847 -7,20% 56,07 66,22 18,10%
Skarkoli - slægður 1.489 1.561 4,80% 188,97 176,88 -6,40%
Skarkoli - óslægður 1.805 1.765 -2,20% 121,31 131,07 8,00%
Langa - slægð 1.057 1.399 32,40% 71,83 73,37 2,10%
Þorskhrogn 1.165 1.053 -9,60% 125,91 117,64 -6,60%
Allar tegundir, slægt 32.480 29.756 -8,40% 124,23 120,38 -3,10%
Allar tegundir, óslægt 24.672 29.830 20,90% 100,65 98,57 -2,10%
Samtals slægt og óslægt 57.152 59.586 4,30% 114,05 109,46 -4,00%
Unnið upp úr gögnum frá íslandsmarkaði.
Fiski landað á Faxamarkaði. (Mynd:Teitur).
7.-10. september 2005 • www.icefish.is
RANNSÓKNIR
Texti: GAG
Mynd að ofan: Horft úr suðaustri yflr nyrðri hluta mælingasvæðis fyrir sunnan land. Landgrunnsbrúnin er á um
200 m dýpi, í rauðum lit, og mesta dýpi á myndinni er um 1850 m í botni gljúfranna. Breidd rannsóknasvæðisins er
um 100 km. Mynd Guðrún Helgadóttir.
Efri mynd til hægri: Fjölgeislamynd af hafsbotninum suður af Hornafjarðardjúpi. A myndinni má greinilega sjá
bratta hlíðina með gilskorningum. Rákirnar í appeisínugula fletinum eru taldar vera jökulrákir.
Neðri mynd til hægri: Rs. Árni Friðriksson er búinn fullkomnum fjölgeislamæli til kortlagningar hafsbotnsins.
Kortlagning Kötlugrunns með fjöigeislamæiingum:
Forgangur vegna hugsanlegs eldgoss
Kortlagning hafsbotnsins kringum ísland er verkefni sem ráðist
var í þegar rannsóknaskipið Árni Friðriksson kom nýtt til Iandsins
árið 2000. í skipinu er fjölgeisladýptarmælir (Multibeam Echo
Sounder) af gerðinni Simrad EM en með honum er hægt að kort-
leggja hafsbotninn af mun meiri nákvæmni en gert er með hefð-
bundnum dýptarmæli. Upplýsingar fást um lögun og gerð hafs-
botnsins með nákvæmum dýptarlínu-, sólskugga- og þrívíddarkort-
um auk botngerðarkorta. Tækið er hið fyrsta sinnar tegundar í ís-
lensku skipi og reynslan hefur þegar leitt í Ijós mikilvægi þess.
í langtímaáætlun Hafrann-
sóknastofnunarinnar hefur verið
lögð áhersla á að kortleggja valin
svæði á ytri hluta landgrunnsins
og landgrunnshlíðar niður á
2.500 metra dýpi sunnan og vest-
an lands, auk neðansjávarhryggj-
anna suðvestur og norður af land-
inu. Stefnt er að því að nýta upp-
lýsingarnar við margvíslegar
rannsóknir stofnunarinnar, m.a.
könnun nýrra og þekktra fiski-
slóða, áhrifa veiðarfæra á botn, á
vistkerfum botndýra og hrygg-
leysingja, hrygningarstöðva og á
jarðfræði hafsbotnsins.
Fram til þessa hafa fjölgeisla-
mælingar að mestu leyti verið
gerðar í sérstökum kortlagningar-
leiðöngrum en stefnt er að frekari
nýtingu tækisins samhliða öðrum
rannsóknum, svo sem í síldar- og
loðnuleiðöngrum líkt og gert var
árið 2002.
Á árunum 2000 til 2001 var
kortlagt um 12.000 ferkílómetra
svæði fyrir sunnan land, frá land-
grunnsbrún við Háfadjúp til suðurs
að 62. gráðu norðlægrar breiddar
og til austurs yfir vestari Kötlu-
hrygg og yfir lengstu neðansjavar-
rásir sem þekktar eru hér við land
en þær eru kenndar við Reynisdjúp
og Mýrdalsjökul. Sjávardýpi á
rannsóknasvæðinu er 100 til 2.200
metrar. Að mörgu leyti er landslag
þarna svipað því sem víða sést á
landi þar sem árrof er ríkjandi, þ.e.
gil og skorningar á milli íjalla og
hryggja, sem sameinast í þeim
tveimur meginfarvegum sem áður
eru nefndir.
Kolbeinseyjarhryggur
minnir á Þingvelli
Um mitt sumar 2002 var liðlega
5.000 ferkílómetra svæði kortlagt í
Eyjaljarðarál, Skjálfandadjúpi,
Skjálfanda og á Kolbeinseyjahrygg
í samstarfi við Orkustofnun og
Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands. Mælingar leiddu í ljós margt
áður óþekkt á þessu virka brota-
svæði, s.s. nákvæma legu mis-
gengja, fjöll og eldfjallakerfi, upp-
streymisholur og menjar ísaldar-
jökuls. Landslagið á hluta rann-
sóknarsvæðisins á Kolbeinseyjar-
hrygg minnir að mörgu leyti á
Þingvelli. Gjábarma má rekja
margra kílómetra leið og víða sjást
merki um hvernig hraun rann frá
sprungusvæðinu.
Stofnunin er í samstarfi við Sjó-
mælingar Islands um nýtingu fjöl-
geislagagna til sjókortagerðar og
eru slík gögn nú þegar komin í ný-
lega endurútgefin sjókort af svæð-
inu fyrir sunnan land.
Kortlagning tengd friðun
Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðar-
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar, segir að reynt sé að sinna
þessum hafbotnsrannsóknum af
fremsta megni. Nú sé í gangi fyrir
norðausturlandi rannsóknir vegna
friðunar á ákveðnum svæðum og í
tengslum við þær rannsóknir sé ver-
ið að kortleggja hafsbotninn þar
sem farið er um. Guðrún Helgadótt-
ir, sérfræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, mun seinna í sumar fara í
leiðangur á rannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni til þess að halda kort-
lagningu hafnsbotnsins innan 200
mílna landhelginnar áfram. Guðrún
Helgadóttir hefur verið leiðangurs-
stjóri í fyrri leiðöngrum þar sem
hafsbotninn hefur verið kortlagður.
Sl. þrjú hefur verið unnið fyrir iðn-
aðarráðuneytið, utanríkisráðuneytið
og landgrunnsnefnd við rannsókn
sem stendur í um 50 daga á hverju
ári og tengist m.a. kröfugerð um yf-
irráð yfir hafsbotninum. Því tengdu
þurfa að liggja fyrir mælingar um
eðli hafsbotnsins.
Hamfarahlaup úr Mýr-
dalsjökli getur breytt
hafsbotninum
- Fyrstu hafsbotnsmœlingarnar
á rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni fóru fram á Kötlugrunni. Eru
einhverjar ástæður sem liggja til
grundvallar því að þessar rann-
sóknir hófust þar?
„Þetta svæði þótti áhugaverðast
jarðfræðilega og því fóru fyrstu
prófanir á tækjunum í rannsókna-
skipinu fram þarna. Það vofir yfir
Kötlugos og því þótti það mjög á-
hugavert að fá ítarlegt kort af
Kötlugrunni ef þarna yrði ham-
farahlaup úr Mýrdalsjökli svipað
og mun hafa gerst árið 1918 og
geta þá borið saman mælingar sem
gerður yrðu bæði fyrir og eftir slíkt
hamfarahlaup í kjölfar mikils eld-
goss. I tengslum við rannsóknir á
kóröllum t.d. á Reynisdýpi og
Lónsdýpi og búsvæði hafsbotns-
ins höfum við verið að kortleggja
hafsbotninn og gert ítarleg kort,
t.d. suðaustur og suðvestur af
landinu, s.s. á Reykjaneshryggn-
um,” segir Ólafur S. Ástþórsson.
Tíu ára verkefni í
það minnsta
„Rannsóknir á Kolbeinseyjar-
svæðinu og kortlagning þar hefur
verið í samstarfi við Háskóla Is-
lands og er liður í því að rannsaka
hafsvæðið suðvestur af landinu
þar sem Atlantshafshryggurinn
kemur inn á landið og eins norð-
austur af landinu á Melrakka-
sléttu þar sem hryggurinn liggur
frá landinu til hafs. En við höfum
þurft að taka mið af öðrum verk-
efnum til þess að nýta skipið og
tímann sem best. Við höfum gert
kort af Hvalfirði og Arnarfirði á-
samt nokkrum rninni stöðum
þannig að þetta lítur út á korti
yfir landið eins og mósaík. Það
þéttist svo með tíð og tíma. Okk-
ar draumur hér á Hafrannsókna-
stofnun er að geta lokið kortmæl-
ingum af öllu landgrunninu og
lögsögunni á næstu 10 árum eða
svo,” segir Ólafur S. Ástþórsson,
aðstoðarforstjóri Hafrannsókna-
stofnunarinnar.
landgrunnsbrún
Reynisdjúps-
gljúfur
Mýrdalsjökuls-
gljúfur
FRÉTTIR
Kolmunni:
Ingunn AK efst
Mjótt var á mununum í byrjun
vikunnar á þremur efstu
kolmunnaskipunum en þau voru
þá komin með um og yfir 20 þús-
und tonna veiði hvert á árinu.
í efsta sæti trónaði Ingunn AK
með rétt rúmt 21 þúsund tonn.
Hólmaborg SU kom þar á efltir með
rúm 20 þúsund tonn og í þriðja sæti
var Jón Kjartansson SU með 20
þúsund tonn. I heild höfðu íslensku
skipin veitt í byrjun vikunnar um
222 þúsund tonn af kolmunna á ár-
inu og eftir var að veiða um 123
þúsund tonn af 345 þúsund tonna
heildarkvóta.
Kolmunnaafli 2005, efstu skip m.v. 4. júlí
Eftir-
Röð Skip Am stöðvar
1 Ingunn 21.187 5.964
2 Hólmaborg 20.335 17.509
3 Jón Kjartansson 20.035 8.407
4 Börkur 18.407 15.619
5 Faxi 17.256 3.220
6 Ásgrímur Halldórsson 12.696 4.888
7 Huginn 11.259 3.281
8 Guðmundur Ólafur 10.385 3.898
9 Hoffell 10.302 6.387
10 Áskell 8.022 8.413
11 Svanur 8.005 1.995
12 Háberg 7.723 2.836
Heimild: Fiskistofa.
Eftir-
Röð Skip Afli stöðvar
13 Bjarni Ólafsson 7.291 8.913
14 Álsey 6.944 1.012
15 Júpíter 6.911 9
16 Beitir 6.126 8.326
17 Sunnuberg 6.084 6.804
18 Jóna Eðvalds 4.794 3.312
19 Vilhelm Þorsteinsson 4.176 313
20 Björg Jónsdóttir 3.491 1.081
21 Baldvin Þorsteinsson 3.240 652
22 Guðmundur 2.815 261
23 ísleifur 2.664 5.184
24 Sighvatur Bjarnason 1.728 2.741
Tvílembingsveiðar:
Ætia að skipta
yfir í stærra troll
— til að auka kolmunnaveiðina
Sighvatur Bjarnason VE og Isleifur VE hafa farið einn túr á sfld og
tvo túra á kolmunna á tvflembingsveiðar, þ.e. skipin stunda tilrauna-
veiðar með einu trolli sem þau draga á milli sín. Eins og fram hefur
komið í Fiskifréttum gekk sfldartúrinn ágætlega en Jón Eyfjörð,
skipstjóri á Sighvati Bjarnasyni VE, sagði í samtali við Fiskifréttir nú
fyrir helgi að þeir væru ekki nógu ánægðir með árangurinn á
kolmunnaveiðunum. Ráðgert er að fara út með stærra troll næst þeg-
ar skipin fara saman á veiðar.
I fyrri kolmunnatúrnum fengu
skipin um 2.200 tonn samanlagt og
i þeim seinni um 800 tonn. „Við
höfum verið að toga með 1.800
trolli og erum hálfvonsviknir með
árangurinn. Við erum að fá sama
afla og aðrir bátar sem draga einir
troll af sömu stærð og ekkert fram-
yfir það. Við væntum þess upphaf-
lega að fá meiri afla meðal annars
vegna þess að við getum togað
hraðar. Hins vegar má ekki gleyma
því að við erum engu að síður að fá
mun meiri afla en þegar við vorum
að toga einir,” sagði Jón Eyfjörð.
Þegar rætt var við Jón síðastlið-
inn föstudag var Sighvatur Bjarna-
son VE á leið til Vestmannaeyja.
Þeir náðu aðeins tveinr dögum á
veiðurn í síðasta túr í færeysku lög-
sögunni en eftir það datt veiðin nið-
ur. Islensku kolmunnaskipin voru
þá að leita að kolmunna á stóru
svæði langt norður eftir bæði innan
íslensku lögsögunnar og utan. „Við
ákváðum að fara í land fyrst ekkert
veiddist til að fá okkur stórt 2.048
Hampiðjutroll. Meðan verið er að
stækka trollið geri ég ráð fyrir að
við förum sitt í hvoru lagi á veiðar
í næsta túr. Að öðru leyti erum við
búnir að leysa öll önnur mál gagn-
vart þessum tvílembingsveiðum.
Við erum t.d. ekki lengur að koma
frá okkur trollinu og taka það um
borð en þegar við erum einir. Þetta
gengur allt mjög lipurt en við vilj-
urn veiða meira.”
Listaverð flotaolía - skv. heimasíðum:
Atlantsolía 46,40 kr. pr/líter
’ Shell 48,80 kr. pr/líter
j Esso 49,40 kr. pr/líter
Verð eru með vsk.
ATLANTSOLÍA
Listaverð: 05.07.2005
Finnur Jónsson: 591 3120