Sæbjörg - 01.11.1938, Blaðsíða 9

Sæbjörg - 01.11.1938, Blaðsíða 9
S Æ BJÖRG 3 SamtaÉ £ emuM ipcoíti. Ungmennadeildir úti um Iand ættu að láta leika þátt þennan á samkomum sínum. (Leikþátturinn liefst á því aS dóttirin kemur heim úr skólan- um og heilsar föður sinum glað- lega. Leikendurnir eru að eins tveir, faðirinn (f.) og dóttir hans (d.), sem er á barnaskóla- aldri). D: Komdu sæll pabbi minn, nú var þó gaman í dag. F: Sæl elskan mín. Hvað var svona sérstaklega skemtilegt í dag í skólanum? D: Það var ekki i skólanum. F: Hvað segirðu barn, var það ekki i skólanum? Hefirðu máske farið eitlivað að skemta þér, í stað þess að fara í skól- ann ? D: Já, en það gerði ekkert til, ]íví kennarinn var með. F: Svo já — fóruð þið í gönguferð ? D: Nei, nei, en gettu livert við fórum. F: Á náttúrugripasafnið? D: Nei, gettu betur. F: Nú —• við skulum sjá, Þjóðminjasafnið, eða listasafn- ið, eða .... D: Nei pabbi minn. Yið fór- um ekki á neitt safn. Við fórum á Slökkvistööina. F: Hvað segirðu barn, Slökkvistöðina? Nú hvað er þetta, kviknaði i nokkurum? D: Nei-hei —- en við fengum að vita hvað ætti að gera, ef það kviknaði i einbverjum. F: Ja hérna, á flesta staði er nú farið að leiða þessi skóla- börn. D: Já, og við fengum að vita mikið, mikið meira. Heyrðu pabbi, þú hefir nú altaf svo lít- inn tíma til þess að tala við mig. Mig langar svo mikið til þess að segja þér svo voða, voða mikið, sem eg veit, en þú veist ekki. F: Jæja barnið mitt, svo þú ert orðin svona mentuð á því að koma á slökkvistöðina, að þú ætlar að fara að fræða hann föður þinn. Eg skal þá sitja hér og hlusta á þig þangað til strætisvagninn fer, eftir tíu mínútur. D: Ágætt, nú skal eg segja þér frá öllu saman. I morgun, þegar við komum i skólann, sagði kennarinn að skólinn befði fengið bréf frá slökkviliðsstjór- anum, þar sem bann býður skólabörnunum að koma og skoða slökkvistöðina, og til þess að segja okkur krökkun- um frá ýmsu, sem fróðlegt væri fyrir okkur að vita. Svo þegar við komum niðureftir, fengum við að skoða alla stóru, fínu, rauðu bilana, sem allir verða að lilaupa frá, þegar þeir þjóta um göturnar. F: Já, það eru nú meiri ólæt- in. D: Ólæti? Já, en veistu ekki að þeir eru að fara til þess að bjarga fólki úr bruna, svo þeir verða að flýta sér og það eiga allir að víkja fyrir þeim. F: Já góða mín, það er alveg satt. Hvað sáslu meira? D: Við sáum mikið meira, en eg ætla heldur að segja þér frá því, bvað slökkviliðsstjórinn sagði. Hann sagði t. d., að stundum befðu krakkar narrað slökkviliðið með þvi að brjóta brunaboða, þó enginn eldur væri. F: Uss, það er ljótt. D: Og veistu eitt pabbi. Það getur kostað mörg bundruð krónur fyrir bæinn, i hvert skifti, sem slökkviliðið er gabb- að. F: Svo já? D: Já — slökkviliðsstjórinn sagði ]iað, og þá spurði einn strákurinn, bann Gvendur, hann er altaf svo mikill prakkari, bvort ])að gerði nokkuð til, úr því bærinn borgaði það. En þá sagði kennarinn okkur að allir peningar, sem bærinn borgaði, væri peningar sem pabbi okkar ])orgaði i sköttum, svo það væri verst fyrir fólkið sjálft, ef bærinn þyrfti að borga mikið — er það satt pabbi? F: Já góða mín, það kannast allir pabbar við skattana, og maður á aðspara fé þess opin- bera, eins og sitt eigið fé. D: Heyrðu pabbi, veistu ])vað þú átt að gera, ef alt í einu kviknaði í fötunum mínum? F: Ha, já, eg mundi .... Iivað ertu að rugla barn, það er engin ástæða til þess að ætla að það kvikni í fötunum þínum. D: Ja, þelta gæti altaf komið fyrir, ef eg væri t. d. að leika mér með kerti eða eldspýtu. Hvað mundir þú gera pabbi? F: Eg mundi reyna að slökkva í þér. D: Já, en hvernig? F: Til dæmis með því að láta þig lilaupa fram i eldliús og sprauta þar á þig úr krananum. D: Nei pabbi minn, það væri alveg rangt. Því ef það logar í fötum fólks, þá má það ekki hlaupa um, við það æsist eldur- inn. Það sem þú ættir að gera

x

Sæbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sæbjörg
https://timarit.is/publication/1601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.