Sæbjörg - 01.11.1938, Page 14
í>
S ÆBJÖRG
Hið þjóðkunna skáld og for-
vígismaður slysavarna á sjó,
Sigurður Sigurðsson frá Arnar-
iiolti, sendi Slysavarnafélaginu
eftirfarandi kvæði um komu
>
björgunarskipsins í vetur sem
leið.
§ Æ IB1 D R C.
Velkomin handan um hafið.
Hefst nú vandinn og raunin,
að sigla við sandinn og hraunin
í særok og' þokuna grafið.
Vel sé þeim dáðríku drengjum,
sem dugðu að ráði og hinum,
er áttu og eignastu’ að vinum
og afl þitt magna í strengjum.
Blakti nú flekklaus og fagur
þinn fáni um ókomna daga,
löng, um sæbjörg, þín saga,
sólmörg og glæstur þinn hagur.
Drag svo í drottins nafni,
af drengskap og mannskap á sæinn,
fær þú bjargráð í bæinn,
bjargtrú með von í stafni.
Ást vora áttu nú þegar.
Auðsótt og fúsgefin var liún,
ávöxt í barminum bar liún
blessuð og sagði til vegar.
Sigurður Sigurðsson
frá Arnarholti.