Sæbjörg - 01.11.1938, Page 17

Sæbjörg - 01.11.1938, Page 17
SÆBJORG 9 mörgum venst sjósóttin, með })ví að róa ár eftir ár, en af sum- um venst hún aldrei............ Eg sagði í upphafi, að það væri kvíðvænlegt fyrir margan ungling, að fara til róðra. En það er ekki einungis vegna sjó- sóttarinnar, lieldur einnig vegna mannanna, sem þeir eiga að vera með. Margir eru tregir til þess að segja unglingum til; sumir gera það alls ekki, aðrir gera það með ónotum og sum- ir i mesta flýti. Nokkrir gera sig merkilega með því að snúa út úr spurningum veslings ung- linganna, og marga liefi eg lieyrt leika sér að þvi, að skrökva að þeim, til hvers það og það sé notað, hvað þetta eða liitt sé kallað og hvernig fara eigi að hinu og öðru. Og þegar svo sumir segja alt eins og þeir eiga að segja unlingum, þá kemst hann i vafa um hverju liann eigi að trúa, og tefur það hann töluvert frá því, að vita hið sanna og rétta, auk þess sem þetta kveikir gremju í huga unglingsins, þar sem hann sér, að verið er að leika með sig. Og sé nú unglingurinn sjóveikur, þá er þetta athæfi eins og eitur í sár. Það þarf að fara nákvæmlega með unglinginn þegar liann kemur til sjávar, þvi liann kem- ur þangað eins og harn. En all- ir hafa börnin verið. Jón Sveinbjarnarson. (Sæbjörg 1892). Myndin liér að ofan er frá fyrsta sjómannadeginufn, sem haldinn var á Islandi, J). (i. júní s.i. og sýnir kappróðursbáta sjómannanna vera að koma að landi. Forsíðumyndin á blað- inu er einnig frá þessum fyrsla sjómannadegi. Blaði Ungmennadeildar Slysavarnafélagsins, „Sæbjörgu", þótti vænt um sjómannadaginn, eins og öllum góðum Islend- ingum. Með degi þessum sýndi sjómannastétt vor livers hún er megnug', þegar allir eru samtaka, og mcð degi þessum hlaut isl. sjómannastéttin verðskuldaða aðdáun og vinsældir allra þeirra mörgu þúsunda af fólki, sem viðstatt var þessi ágætu liátíðahöld eða lilýddu á þau í útvarpi. Marga lieyrði ég tala um J)að, eftir þennan fyrsta sjómanna- dag, hvernig á því stæði, að ekki hefðu slíkir liátiðisdagar sjó- manna verið haldnir fyr. Svo sjálfsagður og ánægjulegur þót.ti þessi fyrsti sjómannadagur. Ungmennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík var svo heppin að geta rétt sjómannadeginum sína litlu hjálparhönd, með því að sjá um og selja aðgöngumiða að sýningunum á íþróttavellinum. Við næsta sjómannadag vill Ungmennadeild- in gjarnan geta lijálpað til á fleiri sviðum og hiður „Sæbjörgu" að skila því til sjómannanna. TVEIR LAPPAR í BÁTI.

x

Sæbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sæbjörg
https://timarit.is/publication/1601

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.