Fréttablaðið - 10.11.2021, Side 10
25% Singles Day
afsláttur í dag á
opticalstudio.is
frettabladid_singles.indd 1 08/11/2021 14:03:51
Um 80 prósent af viðskipta-
vinum Play verða erlend
þegar flugfélagið hefst handa
við að flytja farþega á milli
Bandaríkjanna og Evrópu.
Birgir Jónsson, forstjóri Play,
segir að 90 milljónir farþega
hafi fyrir Covid-19 flogið á
milli heimsálfanna.
magdalena@frettabladid.is
„Segja má að Icelandair og Play séu
litlar mýs á þessum markaði,“ segir
Birgir Jónsson, forstjóri Play, spurð-
ur hvort pláss sé fyrir f leiri en eitt
alþjóðlegt flugfélag á Íslandi.
Nú er nýting f lugvéla Play 8-9
tímar á sólarhring. Þegar flugfélagið
hefst handa við að flytja farþega á
milli Bandaríkjanna og Evrópu
verður nýtingin 15-16 tímar á sólar-
hring. Einar Örn Ólafsson, stjórnar-
formaður Play, segir að það felist
mikið hagræði í því að f ljúga yfir
nóttina. „Flugvellir eru almennt
lokaðir yfir blánóttina. Keflavíkur-
f lugvöllur er óvenjulegur að því
leyti til, en með því að f ljúga til
Bandaríkjanna og ef tekið er tillit
til tímamismunar þá eru vélarnar í
loftinu yfir nóttina. Ryan air til að
mynda leggur öllum sínum flota um
nóttina og líka fleiri félög.“
Birgir segir að verð á flugmiðum
verði ekki eins lágt og það var á
árunum 2015-2019. Það gangi ekki
upp að það sé ódýrara að fljúga til
London en að fara úr miðbænum
með leigubíl til Hafnarfjarðar. Til
að draga úr umhverfisáhrifum sé
einnig eðlilegt að flug kosti.
Flugfélagið Play hélt fjárfestadag í
Kaupmannahöfn síðastliðinn föstu-
dag. Birgir kveðst vera spenntur
fyrir komandi tímum og að félagið
ætli sér að einblína á alþjóðlegan
fókus í rekstrinum. „Ísland er agnar-
smátt land og á stuttum tíma erum
við búin að áætla að fljúga til 30 til
35 áfangastaða. Þó að við séum með
alþjóðlegan fókus verður Ísland
„hubbinn“ en það er vafasamt að
einskorða sig aðeins við Ísland. Það
sem vill oft verða er að þá verður
markaðsstarfið staðbundið og við
förum á mis við ýmsa sérfræðiþekk-
ingu,“ segir Birgir.
Á fjárfestadeginum kynnti f lug-
félagið meðal annars fyrirætlanir
sínar um að opna skrifstofu í Vilníus
í Litáen. „Í Litáen er mikið framboð
af sérmenntuðu fólki en á Íslandi er
fólk með þessa þekkingu sem við
erum að sækjast eftir af skornum
skammti,“ segir hann og bætir við
að launakostnaður þar í landi sé
mun lægri en á Íslandi. „Litáen og
lönd í Austur-Evrópu almennt eru
afar framarlega í upplýsingatækni
og afar mörg fyrirtæki sækjast eftir
því að vera þarna eins og til að
mynda skandinavískir bankar og
fjártæknifyrirtæki. Þannig að það
liggja gífurleg tækifæri í að opna
starfsstöðvar á þessum stað.“
Birgir segir að Play einblíni á að
greina gögn þegar kemur að því að
taka ákvarðanir varðandi stefnu
rekstursins. „Þessi áhersla okkar
á að nýta okkur gögn til að greina
hvaða ákvarðanir eru bestar fyrir
reksturinn kemur sér mjög vel
fyrir okkur. Það fer mikill tími og
peningar í það að greina gögnin en
það skilar sér. Fólk var til að mynda
hissa þegar við komum fram með
áfangastaði eins og Stavanger og
Trondheim. Það eru ef til vill staðir
sem fólk tengir ekki mikið við að
vilja ferðast þangað en út frá leitar-
vélunum sjáum við hvert fólk vill
fara og við fylgjum því.“
Einar Örn segir að það fylgi því
ákveðinn kostur að byggja f lug-
félag frá grunni. „Auðvitað er erfitt
fyrir okkur að byggja upp kerfin frá
grunni en það er ennþá erfiðara að
vera með gamla bókunarvél og að
ætla að uppfæra hana í samræmi við
breytt umhverfi. Það er skemmtilegt
að byrja frá grunni. Það er gaman að
ákveða hvernig við viljum hafa hlut-
ina og taka ákvarðanir út frá því.
Það tekur vissulega tíma en er auð-
veldara heldur en að fara úr gömlu
kerfi yfir í nýtt.“
Hann bendir sömuleiðis á að nú
sé auðveldara að hefja f lugrekstur
því margir neytendur nýti bókunar-
síður og því þurfi ekki að verja jafn
miklu fé og fyrir fáeinum áratugum
til að vekja athygli á flugfélaginu.
Birgir bætir við að það sé mikill
kostur hvað flugfélagið sé vel fjár-
magnað en þó sé sígandi lukka best
og félagið ætli sér ekki að vaxa fram
úr hófi.
„Það eru 4.000 hluthafar í félaginu
svo við erum vel fjármögnuð. Það
kemur sér virkilega vel fyrir okkur
að við þurfum þá ekki að vera sífellt
að hugsa um hvernig við viljum lifa
af næsta mánuð heldur getum ein-
blínt á það að byggja grunninn. Fara
okkur hægt og hugsa þetta til fram-
tíðar. Það mun í raun og veru vera
þar sem alvöru krafturinn kemur.
Þegar tekjurnar fara upp þá erum
við með innviði til staðar sem
höndla vöxtinn og við lendum ekki
í því eins og fjölmörg ný fyrirtæki
lenda í að þau vaxa mjög hratt og í
raun hrynja inn í sig því innviðirnir
eru ekki til staðar og höndla ekki
stækkunina,“ segir Birgir og bætir
við að stjórnendur félagsins hafi
fengið á sig þá gagnrýni að þeir séu
of varkárir. „Það hægðist mikið á
ferlunum og stefnumótuninni þegar
við fórum í hlutafjáraukninguna og
skráninguna. Það er betra að fara sér
hægt heldur en að keyra út í skurð.
Þetta er einfaldlega þannig geiri að
það er betra að fara varlega.“
Einar tekur í sama streng. „Við
sáum það í samhengi við ferða-
þjónustuna á Íslandi sem óx gífur-
lega á skömmum tíma. Vöxturinn
getur ekki haldið lengi áfram ef
innviðirnir eru ekki til staðar. Þess
vegna er mikilvægt að hafa góðan
grunn.“ n
Áttatíu prósent farþega verða erlend
Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir verð á flugmiðum ekki verða eins lágt og árin 2015 til 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR.
Einar Örn Ólafs
son, stjórnar
formaður Play
Stefna á tíu vélar
í rekstri sumarið 2023
Play er nú með þrjár flugvélar
í notkun og stefnir að því að
bæta við þremur á næsta ári.
Einar Örn Einarsson, stjórnar
formaður flugfélagsins, segir
að markmiðið sé að vera með
tíu vélar í rekstri sumarið 2023.
„Við tökum inn nýjar vélar
á vorin því það er auðvitað
meira að gera á sumrin en
veturna. Þannig að það koma
þrjár inn næsta vor og aðrar
þrjár sumarið 2023. Við erum
búin að skrifa undir samninga
en það vantar eina. Þannig að
við stefnum á að hafa þrjár á
ári og höfum ekki gert neinar
breytingar á þeim áætlunum,“
segir hann. n
Helgi Vífill
Júlíusson
n Skoðun
Míla verður öflugra fjarskipta-
félag sem getur þjónustað við-
skiptavini betur eftir kaup
fransks innviðasjóðs á fyrir-
tækinu, ef áætlanir stjórnenda
um auknar fjárfestingar ná fram
að ganga. Þess vegna veldur það
vonbrigðum að um 42 prósent
landsmanna hafi fremur eða
mjög miklar áhyggjur af söl-
unni í ljósi erlends eignarhalds,
samk væmt skoðanakönnun
Maskínu. Því miður er ótti við
alþjóðavæðingu þekkt stef á
alþjóðavísu um þessar mundir.
Formaður VR er á meðal efa-
semdarmanna sem óttast að
verð til neytenda muni hækka
eftir kaup Ardians, að því er fram
kom í fjölmiðlum í gær. Mílu er
sniðinn þröngur stakkur í verð-
lagningu. Fjarskiptastofa stýrir
með kvöðum og gjaldskrám um
það bil tveimur þriðju af tekjum
Mílu. Auk þess eru 85 prósent af
heimilum landsins með ljósleið-
araþræði frá öðrum fyrirtækjum
en Mílu og þrjú farsímakerfi eru
í landinu. Löggjafinn hefur því
mikið um verðlagningu Mílu að
segja og það ríkir samkeppni um
innviði hér á landi. Míla getur
því ekki blásið upp verðskrána
eftir hentisemi, þvert á það sem
ýmsir láta hafa eftir sér opinber-
lega.
Það eru sömuleiðis fólgin
mikil tækifæri til hagræðingar
fyrir íslenskt samfélag í því að
stóru fjarskiptafélögin þrjú fjár-
festi ekki hvert og eitt í dýrum
innviðum heldur leiði saman
hesta sína til dæmis með aðstoð
fyrirtækja eins og Mílu. Landið
er fámennt og það er óhagkvæmt
að reka of mörg fjarskiptakerfi.
Það er áhugavert að nýir eig-
endur Mílu horfi til þess að fjár-
festa hraðar í rekstrinum en Sím-
inn hafði gert á undanförnum
árum. Að sama skapi verður ekki
fram hjá því litið að með breyttu
eignarhaldi eru meiri líkur á að
erlend sérþekking á sviði fjar-
skiptainnviða muni streyma til
landsins. Það er mikilvægt fyrir
fámenna og einsleita þjóð.
Ardian, stór alþjóðlegur inn-
viðasjóður, er því að mörgu leyti
betri eigandi að Mílu en Síminn.
Nú hefur Míla auk þess meiri
möguleika á að fá í viðskipti
önnur fjarskiptafyrirtæki eins og
Vodafone og Nova, og ná með því
aukinni hagkvæmni. Það felast
því f leiri tækifæri í kaupunum
fyrir okkur sem þjóð en ógnir.
Alþjóðavæðing er forsenda fyrir
auknum lífsgæðum. Við sem lítil
eyþjóð ættum að leitast við að
auka erlenda fjárfestingu en ekki
að hræðast hana. n
Ardian er betri
eigandi að Mílu
Ísland í góðri stöðu
Ísland er góðri stöðu til að
verða eitt af fyrstu löndunum
til að verða aftur vinsæll ferða
mannastaður. Flugfélagið Play
mun njóta góðs af því. Þetta
sagði John Strickland, ráðgjafi
í flugiðnaði, sem hefur meðal
annars unnið fyrir Isavia í tólf
ár, á fjárfestadegi Play á föstu
daginn.
Á meðal annarra við
skiptavina má nefna EasyJet,
Skyscanner og Swed avia sem
rekur flugvelli í Svíþjóð.
Strickland sagði að Ísland
myndi njóti góðs af því þegar
fólk færi aftur að ferðast um
heiminn því hér sé nægt pláss
og fólk upplifi sig öruggt gagn
vart Covid19. Að hans mati
muni þróunin verða sú að hlut
fallslega verði ferðamenn frá
Asíu mun fleiri en áður.
Hann benti á að almennt
væri gert ráð fyrir því að fjöldi
ferðamanna verði sá sami árið
20252026 og áður en Covid19
skall á.
Spurður hverjar væru helstu
ógnirnar í vegi Play nefndi
Strickland að það væri hve
hratt flugiðnaður myndi jafna
sig í ljósi heimsfaraldursins
en undirstrikaði að stjórn
endur fyrirtækisins hefðu verið
meðvitaðir um þá stöðu við
stofnun þess.
Strickland sagði að fyrir
tækið ætti að leggja áherslu
á kjarnamarkaði sína og nýta
eina flugvélategund. n
MARKAÐURINN 10. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR