Tækifærisréttir - 01.01.1936, Blaðsíða 4
Miðdegisverður á páskodogirm,
handa 6.
Gautasúpa m/ ostastöngum.
Kampalampabrauð.
Wienerschnitzel m/ makkaroni-
salati.
Bananahlaup.
GAUTASUPA. 2 1.
kjötsoð, 1 tesk. sósu-
litur, 1 matsk. koní-
ak, 14 dl. sherry, salt
og pipar. — Soðið er
hitað og síað á þétt-
um línklút. Sósulitur, ___ _______ ___________________________ __________
salt og pipar er sett í
sé það notað. Borðað
með ostastöngum. — Ostastengur: 75 gr. smjörlíki, 50 gr. rifinn ostur, 125 gr. hveiti. Smjörlíkið og osturinn er
mulið í hveitið og hnoðað saman. Deiginu rúllað í fingursverar lengjur, sem skornar eru í 5 cm. langa bita.
Settar á plötu og smurðar með eggjarauðu. Bakað ljósbrúnt við meðalhita. 2—3 stengur eru settar á lítinn disk,
sem settur er vinstra megin við súpudiskinn.
KAMPALAMPABRAUÐ. 6 sneiðar hveitibrauð, 14 kg. kampalampar, salatblöð og mayonnaise. Brauð-
ið er smurt og tekið undan kringlóttu móti. Kampalamparnir hreinsaðir og raðað í hring á yztu röð brauð-
sneiðarinnar, þannig að allir halarnir snúi inn að miðjunni. Mayonnaise sprautað í topp á miðju sneiðarinnar.
Salatblað sett á lítinn disk eða hörpudisk, þar á brauðsneiðin. Einn skammtur ætlaður handa hverjum manni.
WIENERSCHNITZEL. 1 kg. kálfskjöt, salt og pipar, 1 egg, brauðmylsna, 1 sítróna, ansjósur, 1 matsk.
kapers, 2 dl. kjötsoð, 14 dl. sherry, 100 gr. smjör, makkarónísalat og soðnar kartöflur. I staðinn fyrir kálfs-
kjöt má nota gott lamba- eða nautakjöt. Kjötið er skorið í fingurþykkar sneiðar og barið með kjöthamri. Salti
og pipar er stráð yfir kjötið, sneiðunum snúið upp úr egginu, þar á eftir upp úr brauðmylsnunni og sett jafn-
óðum á pönnuna. Steikt móbrúnt á báðum hliðum, alls í 10 mín. Raðað á fat (sjá myndina). Soðinu hellt á
pönnuna, soðið í 5 mín., vínið sett út í og hellt yfir fatið. Á hverja kjötsneið er sett sítrónusneið, sem á er upp-
rúlluð ansjósa, sem roð og bein er tekið úr, þar í kring raðað kaperskornum. Makkarónísalatið er borið með í
glerskál og soðnar kartöflur í fati. — Makkarónísalat 40 gr. makkaróní, vatn og salt, 1 dl. rjómi, 13 gr. pipar-
rót, sykur og edik, 1 tómatur og steinselja. Makkarónurnar soðnar í saltvatni og köldu vatni hellt yfir þær á
gatasigti. Rjóminn er þeyttur og öllu kryddinu blandað þar saman við og makkarónunum, sem eru kaldar. Ef
maður hefir ekki piparrót, verður að vera meira edik. Sett í glerskál og skreytt með sundurskornum tómöt-
um og saxaðri steinselju.
BANANAHLAUP. V2 kg. bananar, 100 gr. sykur, safi úr 1 sítrónu, )4 h vatn, 8—10 blöð af matarlími,
vín eftir vild, 14 1. rjómi. Vatn og sykur er soðið saman og froðan veidd af. Matarlímið látið í kalt vatn í 15
mín., kreist upp úr 0g sett út í sykurlöginn.
Þegar það er bráðið er lögurinn síaður gegn-
um þéttan línklút. Sítrónan pressuð, safinn sí-
aður og blandað saman við. Ef notað er vín, er
það einnig látið í. Slétt hringmót er skolað inn-
an úr köldu vatni og stráð sykri. Þegar lögur-
inn er orðinn kaldur er honum hellt í mótið.
Bananarnir eru flysjaðir, skornir í jafnlanga
bita og lögurinn er djúpur í mótinu. Þegar
lögurinn er svo hlaupinn saman, að bitarnir
geta staðið, eru þeir settir út í (sjá myndina).
Þennan ábæti verður að búa til daginn áður.
Hlaupið losað frá börmunum á mótinu með
hendinni, hvolft á fat, á búðinginn settur hanki
úr banönum og skreytt með rjóma.
BAKAÐ HVEITIBRAUÐ MEÐ SARDÍNUM. Hveiti-
brauð og smjör, sardínur og tómatpúrra, 1 .matsk
rjómi, salathöfuð. Brauðsneiðarnar eru steiktar í miklu
smjöri á pönnu. Raðað upp á heitt fat. Sardínurnar hit-
aðar á pönnunni og þeim raðað ofan á brauðið. Tómat-
púrra og rjómi er sett á pönnuna, hitað og hellt á fatið.
Salatið er hreinsað, skorið í sundur og stráð yfir sar-
dínurnar.
ÁVEXTIR I VÍNANDA. Niðursoðnar perur og ananas,
bananar, epli, appelsínur, vínber, sítrónusafi, vín og
sykur. Hve mikið af ávöxtum og hvort það eru allar
þessar tegundir getur hver ákveðið og haft eftir efn-
um og ástæðum. Allir ávextirnir eru brytjaðir í jafna
bita. Sykur, vín og sítrónusafi sett í eftir smekk. Sett
í kampavínsglös, sem látin eru standa á grunnum disk-
um. Hressandi og fallegt á undan miðdegisveizlum.