Tækifærisréttir - 01.01.1936, Page 5

Tækifærisréttir - 01.01.1936, Page 5
Tækifærisveizla eða brúðkaupsveizla, Cocktail m/ söltum möndlum. Champignonsúpa m/ osta- stöngum. Lax m/ grænmeti og hvítvíni. Hænsni m/ hrísgrjónum og rauðvini. Karamellubúðingur m/ rjóma- sósu. Kaffi m/ líkör. handa 24. Saltar möndlur: Möndlurnar eru afhýddar og soðnar í 2 min. í olíu. Olían sígi vel af möndlunum og þeim snúið upp úr grófu salti. Látnar heitar í smá bréfmót eða kramarhús. 4—5 möndlur settar í hvert mót. Bornar með cocktailinu. CHAMPIGNONSÚPA. 4 1. gott nautakjötssoð, % kg. dós champignon, krydd, sósulitur, 1 1. rjómi. Soð- ið verður að vera kraftmikið. Kryddað eftir smekk og sósulitur látinn í eftir þörf. Hver champignon skorinn í 2—3 parta. Soðið úr dósinni og bitarnir settir út í súpuna. Rétt áður en borðað er er hinum stífþeytta rjóma blandað í súpuna. Má ekki sjóða eftir það. Borðað með ostastöngum. LAX M/ GRÆNMETI. 4 kg. lax, vatn, edik, salt, og pipar, 4 lárberjablöð. Mayonnaise: 7 eggjarauð- ur, salt og edik, 1 y2 líter salatolía, allskonar soðið grænmeti, 6 salathöfuð. Soðhlaup: 1 1. laxsoð, 12 blöð mat- arlím, rauður litur, 8 harðsoðin egg. — Laxinn hreinsaður og soðinn í vatni með öllu kryddinu. Roð og bein tekin úr honum og hann kældur. Soðið síað og mælt, litað rautt. Matarlímið látið út í. Soðið sett í 2 flöt mót og sumt í skál. Eggjarauðurnar eru hrærðar með salti og ediki. Þar í er hin glæra olía hrærð smátt og smátt. Eggin eru harðsoðin, flysjuð og skorin í sneiðar. Sjáið myndina. Soðhlaupinu er hvolft á fat. Laxinn er settur í hrúgu á soðhlaupið. Þar í milli látið lítið eitt af mayonnaise og grænmeti. Eggjasneiðunum raðað í hring, þar utan um raðað salatblöðum, sem fyllt eru með mayonnaise og grænmeti. Milli salatblaðanna er sprautað rauðu soðhlaupi. Bezt er að hafa sem fjölbreyttast grænmeti í þennan rétt. H Æ N S N I M/ HRÍSGRJÓNUM. 12 hænuungar, salt og pipar, y2 kg. smjör, soðið vatn, 250 gr. smjör í sósuna, 3—4 dl. rjómi, 6 matsk. sherry, 1 kg. hrísgrjón, vatn og salt, agúrkusalat. — Hænsnin eru hreinsuð, þerruð vel og nudduð með salti og pipar. Lifur, hjarta og fóhorn er tekið í burtu og nuddað með salti. Brúnað sér í smjöri, saxað smátt og bíði þannig. Smjörbita er stungið innan í hvern unga. Ungarnir brúnaðir í smjöri, soðnu vatni hellt þar á, — munið að hafa vatnið eins lítið og hægt er. Steikt í eina klst. Soðinu hellt af ungun- um og það síað. 250 gr. smjör er látið þar út í, soðið i 5—10 mín., tekið af og rjóminn hrærður út í sósuna. Hrís- grjónin soðin í miklu saltvatni í 25 mín. Vatninu hellt af þeim. Innmaturinn er hitaður og hrísgrjónunum hrært þar í og sherryinu. Hænsnin eru klippt í sundur. Hrísgrjónin sett eftir endilöngu fatinu. Hænsnunum raðað báðum megin. Þar utan um settir smá hörpudiskar með agúrkusalati. Sósa borin með í sósuskál. KARAMELLUBÚÐINGUR M/ RJÓMASÓSU. 750 gr. sykur, 6 dl. soðið vatn, 15 egg, 15 matsk. sykur, 1 % 1. mjólk eða rjómi, 1 stöng vanilla, 1 1. rjómi.-Eggin eru hrærð með sykrinum. Mjólkin soðin með vanillustönginni, hrærð út í eggin og kælt. Hrein panna er hituð og þurrkuð. Sykurinn settur þar á og hrært í, þar til kemur hvít froða. Þá er karamellunni rennt inn í mótið, svo að mótið verði hulið. Pannan sett aftur á eldinn og 1/2 1. af soðnu vatni þar á. Hrært í því og það soðið, þar til það hefir jafnað sig vel, hellt í skál og kælt. Kreminu hellt í mótin og þau sett ofan í soðið vatn, diskur þar yfir. Soðið við hægan eld í 1/2 klst., eða þar til búðingurinn er stífur. Bezt er að búa þennan búðing til daginn áður en hans er neytt. •— Rjómasósa: Rjóminn er þeyttur. Karamellan hrærð þar saman við. Búðingnum hvolft á fat og rjómasósan sett á miðjuna. Ef þið gerið ráð fyrir, að gestirnir, sem ver- ið hafa til miðdegisverðar, verði fram eftir nóttinni, þá er mjög vel við eigandi að veita te með smurðu brauði um 12-leytið. Hér á myndinni sjáið þið fat með allskon- ar smurðu brauði, sem er mjög smekklega framreitt, og munið þið geta ráðið í, hvert ofanáleggið er. Húsmæður, þegar þér bjóðið gestum heim, þá framreiðið þann mat, sem ykkur lætur bezt að matbúa.

x

Tækifærisréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tækifærisréttir
https://timarit.is/publication/1613

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.