Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 8

Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 8
Flutningur höfuðstöðva Shell frá Hollandi til London vekur spurningar. Göfug markmið um losunarleysi, að sögn fyrirtækisins. Brexit er sér- leið fyrir umhverfissóða að sögn prófessors. bth@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Olíurisinn Shell hefur ákveðið að f lytja höfuðstöðv- ar fyrirtækisins frá Haag í Hollandi til London. Samkvæmt tilkynningu frá Shell í erlendum fréttamiðlum er stefnt að því að Shell verði alfarið breskt félag. Ákvörðunin sé tekin til að einfalda skipulag og gera félagið sveigjanlegra. Áfram sé stefnt að því að Shell verði losunar- laust fyrirtæki. Edvard Huijbens, prófessor við Wageningenháskóla í Hollandi og fyrrverandi varaformaður VG, gefur þó lítið fyrir skýringar Shell. Hann telur að f lutningur höfuð- stöðvanna tengist fyrst og fremst Brexit. „Brexit er sérleið fyrir umhverfis- sóða,“ segir Edward. Stutt sé síðan Shell var dæmt í Hollandi vegna mengunar frá útblæstr i . Holland haf i með ýmsum hætti skipað sér í fremstu röð ríkja er kemur að umhverfis- legri ábyrgð. Þetta umhverfi sé fyrirtækið hugsanlega að f lýja. Með Glasgow-samkomulag- inu sem aðildarríki Sameinuðu þjóðanna undirrituðu um síðustu helgi er vonast til að hægt verði að takmarka hlýnun við eina og hálfa gráðu. Notkun jarðefnaeldsneytis er ein veigamesta hindrunin á þeirri vegferð. „Það fyrsta sem manni dettur í hug er að þeir séu að f lytja sig úr Evrópusambandinu til að losna við vesen,“ segir Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarsérfræðingur. Með „veseni“ á Stefán við stífara regluverk í umhverfismálum en sé í Bretlandi. Auðveldara kunni að vera fyrir Shell að hafa áhrif á bresk stjórnvöld en hollensk. „Þetta gæti líka snúist um að f lýja lagaumhverfi. Það hafa fallið dómar í Hollandi sem kannski hefðu ekki fallið í öllum Evrópu- sambandsríkjum þar sem umhverf- isverndarsamtök kærðu ríkið fyrir aðgerðaleysi og unnu það mál.“ Lagaleg staða umhverfisins sé sterkari í Hollandi en f lestum öðrum löndum. Meiri óvissa sé varðandi atvinnulíf og hvernig bresk stjórnvöld, óbundin Evrópu- sambandinu, munu bregðast við í kjölfar Glasgow-samkomulagsins. „Eftir Brexit er Bretland ekki bara eyja í eiginlegri merkingu heldur líka eyja í Evrópu í óeigin- legri merkingu. Mér finnst líklegt að þar reikni menn með meiri sveigjanleika í umhverfismálum en innan ESB. Jafnvel þótt ekkert sé fast í hendi þá er líklegt að fyrir- tæki sem vilja sérstaklega koma sér undan umhverfisreglum staðsetji sig þar. Flutningurinn gæti verið strategísk aðgerð,“ segir Stefán. Hann segir að mörg fyrirtæki hafi þó frá og með 2015 tekið fram úr stjórnvöldum í vilja til mikil- vægra umhverfisaðgerða. Atvinnu- lífið kalli eftir að stjórnvöld setji því ramma en stjórnvöld haf i víða setið hjá og beðið lausna hjá atvinnu- og viðskiptalífi. Spurður um væntingar vegna Glasgow-samkomulagsins segist Stefán bjartsýnn en miklu varði að fyrirheit verði að athöfnum fyrr en síðar. Það geti skipt sköpum að takmarka losun strax fremur en að horfa til loka samningstímabilsins. Þrátt fyrir Parísar-samkomu- lagið sem vakti á sínum tíma miklar vonir meðal pólitískra leið- toga hefur gengið illa fyrir ríki, og þar á meðal Ísland, að efna skuld- bindingar. Losun gróðurhúsaloft- tegunda er enn að aukast í heim- inum þvert á fyrirheit. „Það vantar oft eftirfylgni í kjölfar orða og yfirlýsinga, eftir- fylgnin verður ekki sjálf krafa, en ef allir standa við loforð sín erum við kannski komin nálægt einni og hálfri gráðu í lok samningstímans,“ segir Stefán. ■ Flutningur Shell vekur spurningar Brennsla jarð- efnaeldsneytis er hindrun í því markmiði að stemma stigu við hnattrænni hlýnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Það er ekki hægt að flytja tíu metra tré á nýjan stað. Kristrún Sigurðardóttir, formaður Skóg- ræktarfélags Garðabæjar Brexit er sérleið fyrir umhverfissóða. Edward Huijbens, prófessor birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Inf lúensan er ekki komin svo ég viti til,“ segir Óskar Reykdalsson, forst jór i Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins, spurður hvort árleg inflúensa sé ástæða veikinda sem hrjá um þessar mundir fjölda landsmanna. „Hins vegar er mikið um sýkingar í öndunarfærum en það eru annars konar veirusýkingar,“ segir Óskar. Hann segir þær sýkingar sem nú séu tíðar hér á landi svokallaðar haustkvefpestir sem einkennist af kvefi, hósta og slappleika. Besta ráðið við þeim sé að taka því rólega. „Þegar fólk svo fær þessar ekta inflúensur koma þær hratt og ein- kennast af háum hita, beinverkjum og höfuðverk. Síðast þegar ég vissi var ekkert skráð tilfelli inf lúensu Mikið um sýkingar í öndunarfærum en flensan ekki komin Óskar Reykdals- son, forstjóri Heilsugæslunar á Landspítalanum,“ segir Óskar. Hann segir haustkvefið einkar skætt í ár og ástæðuna þá að þjóðin hafi sloppið við pestina í fyrra. „Það er þannig að ef þjóð er lítið útsett eitt árið þá „hefnist“ henni fyrir það hið næsta,“ segir Óskar og hvetur fólk til að láta bólusetja sig gegn árlegri inflúensu. „Það getur sparað fólki ýmislegt að sleppa við inf lúensuna sem getur valdið því að fólks sé mikið lasið með háan í hita jafnvel í heila viku.“ Þá hvetur Óskar fólk, sem smit- ast hefur af umræddum veiru- sýkingum, til að leita ekki á heilsu- gæslu nema um alvarleg veikindi sé að ræða. Þar sé mikið álag vegna Covid. „Við bendum fólki á að nota skynsemina, sérstaklega ef einkennin eru léttvæg og lítil- fjörleg.“ ■ Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Sjá nánar á patti.is Ný sending af gæðarúmum frá Dupen kristinnhaukur@frettabladid.is GARÐABÆR Skógræktarfélag Garða- bæjar vill að óháður matsmaður verði fenginn til þess að meta tjón sem félagið hlýtur af því að missa land undir golfvöll. Til stendur að stækka völl Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, GKG, inn í Smalaholt, þar sem rúmlega 30 ára gamall skógur stendur og Skógræktar- félagið hefur byggt upp gönguleiðir. Upphaf lega stóð til að taka 15 hektara af skógi félagsins og var félaginu aðeins boðið 2 hektara lúpínu land í staðinn. Endanlegar stærðir liggja ekki fyrir fyrr en deili- skipulag verður gert og ekki hefur verið ákveðið hvenær jarðýturnar mæti á svæðið. „Í mínum huga eru loftslagsmálin það alvarlegasta í þessu. Það er ekki hægt að flytja tíu metra tré á nýjan stað,“ segir Kristrún Sigurðardóttir, formaður félagsins, en það tekur tré mjög langan tíma að fara að skila sínu til loftslagsins. Lítið hafi verið hlustað á athugasemdir félagsins. „Eftir athugasemdir okkar var svæðið sem tekið er aðeins minnk- að og fært til. Samt verður elsti og gróskumesti skógurinn tekinn,“ segir hún. Kristrún segir félagið eiga rétt á tugmilljónum króna vegna þessa máls. Það er út frá sams konar málum sem komið hafa upp í nág rannasveit ar félög u nu m. Í sumum tilfellum hafi verið samið en önnur endað fyrir dómstólum. Bæturnar eru þá metnar út frá fjölda trjáa og stærð þeirra.■ Vilja tugmilljónir í bætur fyrir skóg sem ruddur var undir golfvöll GKG thorvardur@frettabladid.is BANDARÍKIN Steve Bannon, fyrr- verandi ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, gaf sig fram við alríkislögregluna í Washington í gær og var vígreifur þegar hann ræddi við stuðningsfólk áður en hann gaf sig fram. Dómsmálaráðu- neytið ákærði hann fyrir að sýna Bandaríkjaþingi vanvirðingu eftir að hann neitaði að bera vitni um árás stuðningsfólks Trumps á þing- húsið 6. janúar, auk þess að neita að afhenda gögn tengd málinu. Bannon á yfir höfði sér árs fang- elsisvist og 13 milljóna króna sekt verði hann fundinn sekur. ■ Bannon gaf sig fram við lögreglu Steve Bannon á yfir höfði sér árs- fangelsi og háa sekt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA thorvardur@frettabladid.is GEIMURINN Bandarísk yfirvöld vöruðu í gær geimfara sem dvelja í Alþjóðageimstöðinni við að geim- brak gæti skollið á henni. Geimfarar leituðu skjóls en svo fór að engin hætta skapaðist af brakinu. Uppruni braksins er óþekktur en heimildarmenn bandarískra miðla innan varnarmálaráðuneytisins segja að hugsanlega hafi Rússar sprengt eitt af fjölmörgum gervi- tunglum sínum sem hluta af f lug- skeytatilraun. ■ Geimstöðinni ógnað af braki 8 Fréttir 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.