Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Enginn hefur haft pólitískan kjark til þess að segja hingað og ekki lengra. Segja má að í stefn- unni sé bæði horft út á við og inn á við. Reykjavík er menningarborg. Hún býr yfir mjög frjórri listasenu og öflugu menningarstarfi. Fyrir vikið verð- ur til ríkidæmi sem við njótum öll. Það er geysimikil- vægt. Líf okkar verður innihaldsríkara, fjölbreyttara, skemmilegra. List og menning eru snar þáttur í lífsgæðum okkar og um leið mikilvægir drifkraftar í þróun samfélagsins. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að nýrri menningarstefnu fyrir Reykjavík sem heitir „List og menning í Reykjavík 2030“. Það er auðvelt að slá um sig með orðinu „menning- arborg“. En til að borgin standi undir þeirri nafnbót þarf margt að koma til. Það er grundvallaratriði að „allir íbúar hafi jöfn tækifæri til að njóta lista, menn- ingar og menningararfs bæði sem þátttakendur og neytendur“. Enginn má vera útilokaður. Það er rauður þráður í stefnunni. Annað meginstef felst í því að í Reykjavík séu framúrskarandi aðstæður til listsköpunar. Það á að vera eftirsóknarvert fyrir listamenn að búa í Reykja- vík. Mikilvægt er að Reykjavíkurborg skapi aðstæður þar sem listsköpun nýtur sín. Styrkir borgarinnar, sem eru umtalsverðir, eiga að stuðla að eflingu listgrein- anna á þeirra eigin forsendum. Segja má að í stefnunni sé bæði horft út á við og inn á við. Lögð er áhersla á hverfamenningu og sett fram sú framtíðarsýn að öll hverfi borgarinnar verði suðupottur menningar og lista. Um leið er áréttað að Reykjavík eigi að verða heimsþekkt menningarborg. Af hverju menningarstefna? Jú, hún gefur meðal annars listafólki og þeim sem reka menningarstofn- anir kleift að hafa áhrif á það hvaða markmiðum skuli stefnt að næstu árin og til hvaða aðgerða skuli gripið til að ná settu marki. Menningarstefnan byggir á víðtæku samráði við fulltrúa allra listgreina, menn- ingarstofnana og félaga sem borgin styrkir. Stefnan brýnir borgaryfirvöld til að leggja metnað í að skapa sem bestar aðstæður fyrir listsköpun og öflugt menn- ingarstarf. Hún lýsir markmiðum og gerir grein fyrir hvernig þessum markmiðum skuli náð. n List og menning í Reykjavík 2030 Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi Samfylkingar- innar og formaður menningar-, íþrótta- og tóm- stundaráðs Elín Hirst elinhirst @frettabladid.is Ferskur fiskur og fiskréttir, lax á grillið og humarsúpan í hádeginu. Sjávarhornið - fiskverslun, Bergstaðarstræti 14 benediktboas@frettabladid.is Frosið spons Ekki er langt síðan hvert stórfyrirtækið á fætur öðru vildi tengja sig við hetjurnar í karlalandsliðinu en nú er öldin önnur. Nú er það Dr. Oetker með sínar frábæru frosnu pitsur Ristorante sem var í sam- starfi við RÚV til að sýna leik Íslendinga og Norður Make- dóníu. Hnignun landsliðsins mælist víða en þó pitsurnar séu frábærar teljast þær tæplega á pari við helstu stórfyrirtæki landsins úr röðum fjármála- fyrirtækja, matvöruverslana og jafnvel bílaumboða sem slógust um að vera með í ferðalagi RÚV í stofur landsmanna, þegar best lét. Afsláttur Allir tala nú um að sóttvarna- yfirvöld séu búin að tapa íslensku þjóðinni, réttara sagt þolinmæði æstrar þjóðar. Það er ekki rétt enda landsmenn alltaf til í að semja. Það nær skammt að segja að vonir séu um að þriðja sprautan geri okkur frjáls. Sölumenn þekkja að það er betra að bjóða afslátt, það þarf ekki að vera Singles’ Day, geymum það til sjöundu sprautunnar. Þeir sem fá þriðju sprautuna gætu fengið 30 prósenta afslátt af næstu sóttkví, 20 prósent af næstu einangrun, hálftíma lengur á barnum og jafnvel tvo fyrir einn í grímulaust leikhús. n Nafnið á Covid-19 farsóttinni er illu heilli orðið úrelt, því nú má einnig kenna farsóttina við árin 2020 og 2021. Líklega bætist árið 2022 fljótlega við, ef til vill árið 2023 líka, en vonandi ekki. Ekkert er þó úti- lokað í þeim efnum. Óþægilegt er að hugsa til þess hvernig kínversk yfirvöld brugðust við árið 2019, þegar veiran kom fyrst upp þar í landi, með afneitun og leynd sem olli að líkindum mun meiri útbreiðslu en ef gripið hefði verið strax í taumana. Því miður hafa bólusetningar ekki skilað þeirri vörn sem vonast var til. Menn skiptast nú í tvö horn. Þeir sem vilja grípa til hertra aðgerða til að vernda Landspítalann og þeir sem vilja litlar sem engar hömlur. En staðan er því miður sú að íslenska þjóðin býr við heilbrigðiskerfi með eldgamla og úr sér gengna innviði, sem hefur lítið þanþol. Sum húsakynni LSH eru ekki einu sinni músheld. Við Íslendingar höfum ekki borið gæfu til að hlúa að heilbrigðismálum okkar eins og eðlilegt hefði verið í velmegunarsamfélagi þar sem þjóðarauður hefur vaxið ríkulega á síðustu áratugum. Hvað ætli kjósendur hafi oft grátbeðið um endurbætur, loforð hafa verið gefin, en síðan fæðast bara litlar mýs, í orðsins fyllstu merkingu. Ekki verður núverandi valdhöfum einum kennt um, heldur byrjaði þessi hruna- dans fyrir mörgum áratugum. Enginn hefur haft pólitískan kjark til þess að segja hingað og ekki lengra. Auðvitað verður það miklu dýrara fyrir íslenska þjóð að rétta þetta kerfi við, heldur en ef við hefðum byggt það upp jafnt og þétt. Vísindamenn vonast til þess að Covid- veiran muni hætta að stökkbreytast að lokum og breytast í væga kvefpest, en ómögulegt sé að segja til um hvenær. Árið 2022 og jafnvel 2023 gætum við því staðið frammi fyrir stöðugu kapphlaupi við stökk- breytingar veirunnar. Smitsjúkdómalæknar eru efins um að þriðja sprautan muni nægja. Ný af brigði geta því kallað á enn fleiri endur- bólusetningar. En góður fréttirnar eru þær að íslensk stjórnvöld hafa borið gæfu til þess að hlusta á vísindin þrátt fyrir sífelldan kryt við ríkis- stjórnarborðið þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn stendur vörð um „frelsi einstaklingsins“ og atvinnurekenda, enda er það leiðarstef í stefnuskrá hans. Raddir skynseminnar hafa sem betur fer haft betur við þetta margum- talaða ríkisstjórnarborð. n Músagangur SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.