Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 2021
thordisg@frettabladid.is
Vinsæll jólamarkaður Bjarna
Sigurðssonar keramíkers verður
opnaðu á fimmtudag í fimmtánda
sinn. Á markaðnum verða einungis
ný verk sem Bjarni hefur unnið
undanfarna mánuði í nýrri og
stærri vinnustofu sinni.
Bjarni er einn fræknasti leirlista-
maður Íslendinga í samtímanum.
Hann vinnur nú að verkum fyrir
veitingastað Jean-George í New
York, sem er Michelin-staður og er
Jean-George sjálfur mjög þekktur í
sínum bransa.
„Ég er einmitt nú að vinna vasa
fyrir þá sem ég sendi utan í næstu
viku, en þeir eru þegar búnir að fá
eina sendingu frá mér. Jean-George
er einnig með litla verslun og vill
gjarnan setja verkin mín í sölu,“
segir Bjarni.
Vinsæll um veröld víða
Eftirspurn eftir verkum Bjarna hér
heima og erlendis hefur margfald-
ast undanfarin misseri.
„Enda keypti ég mér nýjan ofn
í fyrra og í næstu viku er annar á
leið til landsins. Eftirspurn og sala
hefur aukist svo mikið á Norður-
löndunum að ég sé fram á að þurfa
að senda flest sem ég framleiði
eftir jólamarkaðinn beint til Dan-
merkur, Svíþjóðar og Noregs,“
upplýsir Bjarni.
Jólamarkaður Bjarna er að
Hrauntungu 20 í Hafnarfirði. Opið
fram á sunnudag frá klukkan 10 til
18. Afsláttur er að venju af öllum
verkum og veitingar í boði fyrir
unga sem aldna.
Allir hjartanlega velkomnir! ■
Bjarni í jólaskapi
Bjarni Viðar Sigurðsson, keramíker.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Green Diamond harðkornadekk
geta komið í stað nagladekkja
Green Diamond eru augljós kostur fyrir alla sem vilja hætta að nota nagladekk til að
vernda umhverfið og auka öryggi sitt. Mjög góð reynsla hjá fjölmörgum aðilum og sú stað-
reynd að þau valda mun minni svifryksmengun en nagladekk styður þennan valkost. 2
Kristinn Sigurðsson, seljandi Green Diamond dekkjanna, segir að þau hafi marga mikilvæga kosti fram yfir nagladekk og séu bæði umhverfisvænni og öruggari.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN