Fréttablaðið - 16.11.2021, Síða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
tjónum heilmikið og þannig
sparað þjóðarbúinu hluta af þeim
kostnaði sem fylgir umferðar
óhöppum, en samkvæmt Sam
göngustofu er hann áætlaður yfir
30 milljörðum á hverju ári.“
Traustir viðskiptavinir og
áhersla á umhverfisvernd
„Það er komin mjög góð reynsla
af notkun Green Diamond dekkja
hér á landi frá traustum og
ábyrgum aðilum og viðskiptavinir
eru hæstánægðir,“ segir Kristinn.
„Þessi reynsla talar sínu máli og
er enn dýrmætari en jákvæðar
prófanir.
Við erum meðal annars í traustu
sambandi við Hafnarfjarðarbæ
og fleiri sveitarfélög, Ístak og
fjölda annarra stórra aðila. Ístak
kaupir til dæmis af okkur nálægt
200 dekk á hverju ári. Þessi við
skipti eru eðlilega komin til vegna
almennrar ánægju með dekkin,
en einnig sannarlega vegna
þeirrar stefnu fyrirtækjanna og
stofnananna að stuðla að aukinni
sjálfbærni og umhverfisvernd,“
segir Kristinn. „En það er alveg
ljóst að forgangsbifreið Björgunar
sveitarinnar á Flúðum væri ekki
búin að vera á Green Diamond
dekkjum í níu vetur ef þau væru
ekki að virka. Ef Green Diamond
virkar í uppsveitum Árnessýslu, þá
þarf engin nagladekk á suðvestur
horni landsins.
Í ljósi stöðugt aukinnar umræðu
um mikilvægi umhverfisverndar
og bættra loftgæða trúum við
því að mörg fyrirtæki, stofnanir
og sveitarfélög hljóti að skoða til
hlítar þann möguleika að setja bif
reiðar sínar á umhverfisvæn Green
Diamond harðkornadekk,“ segir
Kristinn.
Stuðlar mjög að sjálfbærni
að endurnýta dekk
„Sumum bregður þegar ég nefni
að dekkin séu endursóluð, en það
eru þau dekk þar sem belgurinn
er endurnýttur og nýr gúmmí
slitf lötur settur á. Tækninni í
endursólun hefur f leygt fram og
gallatíðni er sambærileg við ný
dekk, við framleiðsluna er notuð
sambærileg tækni og þekkist
hvort tveggja hjá Formúlu 1 og í
f lugvélabransanum,“ segir Krist
inn. „Belgurinn sem við notum
er líka framleiddur til að vera
endurnýttur, en hann er allt að
75% af nýja dekkinu. Við spörum
nálægt 100 lítra af jarðefnaelds
neyti á einum dekkjagangi og það
er engin spurning að við verðum
að endurnýta allt sem við getum.
Hvert einasta kolefnisspor skiptir
miklu máli og margt smátt gerir
eitt stórt. Allir sem fylgjast með
umræðunni um loftslags og
umhverfismál hljóta að vera sam
mála mér.“
Eru Green Diamond dekkin
samkeppnishæf í verði?
„Já, þau eru það. Green Diamond
dekkin eru ekki ódýrustu dekkin á
markaðnum, en maður ætti aldrei
að gefa afslátt af öryggi og þau eru
mjög endingargóð, þannig að þetta
eru sannarlega hagstæð kaup,“
segir Kristinn. „Það er vel þess
virði að fjárfesta í gæðadekkjum,
bæði til að tryggja öryggi, vernda
umhverfið og spara umfelgun.“ n
Nánari upplýsingar má finna á
hard kornadekk.is og í síma 611
7799. Einnig má senda póst á info@
hardkornadekk.is. Þegar ákvörðun
um kaup liggur fyrir er dekkjunum
komið á tiltekið dekkjaverkstæði.
Green Diamond harðkornadekkin
eru íslensk hönnun fyrir íslenskar
aðstæður sem henta í flestum til
vikum betur en nagladekk, menga
margfalt minna og endast ein
staklega vel. Green Diamond eru
einu umhverfisvænu og vistvænu
dekkin sem bjóðast fyrir einka
bílinn hér á landi og augljós kostur
fyrir þá sem kjósa að hlífa umhverf
inu með því að sleppa nöglunum.
„Það sem er kannski skemmti
legast við þetta er ekki bara að
framleiðsla dekkjanna sé byggð á
íslensku einkaleyfi, heldur hvað
þetta er flott vara,“ segir Kristinn
Sigurðsson, seljandi dekkjanna.
„Að sjálfsögðu notum við 100%
náttúrulegt gæðagúmmí í slitlagið
og við blöndum iðnaðardemanti í
allt slitlag Green Diamond dekkja.
Virknin varir því allan líftíma
dekksins, en það eru á bilinu 300
400 grömm af iðnaðardemanti í
hverju fólksbíladekki. Sumir leyfa
sér að auglýsa harðkornadekk sem
hafa kannski 20 grömm af iðnaðar
demanti, sem er mulningur í efsta
yfirborðinu, en mér finnst það vera
hrein og klár vörusvik.“
Nagladekk eru barn síns
tíma og veita falskt öryggi
„Green Diamond harðkorna
dekk hafa mikilvæga kosti fram
yfir nagladekk. Ítarleg rann
sókn doktors Haraldar Sigþórs
sonar umferðarverkfræðings gefur
í fyrsta lagi sterkar vísbendingar
um að naglarnir geti gefið falskt
öryggi og að ökumenn á negldum
hjólbörðum valdi hlutfallslega fleiri
slysum en aðrir,“ segir Kristinn.
„Ökumenn á nöglum keyra hraðar,
sem þýðir lengri bremsuvegalengd,
og á höfuðborgarsvæðinu er oftast
keyrt á þurru eða blautu malbiki,
en við slík skilyrði er hemlunar
vegalengd bifreiða á nagladekkjum
almennt lengri. Þá þekkist það
við ákveðnar aðstæður að bílar
á nöglum geta „skautað“ og það
skapar hættu.
Staðreyndin er sú að á suðvestur
horninu er veturinn orðinn svo
mildur að ávinningurinn af notkun
nagladekkja er hverfandi í saman
burði við skaðann af þeim, þegar
heildarmyndin er skoðuð,“ segir
Kristinn. „Naglarnir tæta malbikið
og skapa gríðarlega mikla svifryks
mengun og það er vandamál sem er
að versna með mildari vetrum.
Ég leyfi mér bara að orða það
þannig að naglar drepa. Læknar
segja að allt að 60 Íslendingar
deyi ótímabærum dauða árlega
vegna svifryksmengunar og mörg
hundruð glíma við heilsufars
vandamál. Það má rekja allt að 25%
af uppsprettu svifryks til nagla
dekkja,“ segir Kristinn. „Þegar
naglarnir sverfa göturnar myndast
líka djúp hjólför sem fyllast af vatni
og geta skapað slysahættu, auk
þess sem tjaran úr malbikinu sest
á dekk og minnkar veggrip. Green
Diamond dekkin sverfa vegina hins
vegar 14 sinnum minna. Nagladekk
eru barn síns tíma.
Reykjavíkurborg hefur í mörg ár
lagt áherslu á þetta í sínum eigin
auglýsingum. Fulltrúar Reykja
víkurborgar eru meðal annars að
horfa til þess kostnaðar sem borgin
stendur frammi fyrir vegna slits
á götum vegna naglanna, en sá
kostnaður er brot af því heilsufars
vandamáli sem naglarnir valda,“
segir Kristinn. „Naglarnir eru bara
tímaskekkja, þannig að þó að það
sé löglegt að fara á nagla núna vil
ég hvetja sem flesta til að velta því
fyrir sér hvort það sé endilega rétt
niðurstaða, bæði fyrir þeirra eigið
öryggi og fyrir umhverfið.“
Koma vel út í prófunum
„Við eigum próf frá annarri af
tveimur stofnunum í heiminum
sem hafa alþjóðlega vottun til að
Iðnaðar
demanturinn í
Green Dia mond
dekkinu er
vel sjáanlegur
og nær hann
gegnum allt
slitlag dekksins.
Virknin varir
því allan líftíma
dekksins.
Naglarnir eru bara
tímaskekkja,
þannig að þó að það sé
löglegt að fara á nagla
núna vil ég hvetja sem
flesta til að velta því fyrir
sér hvort það sé endilega
rétt niðurstaða, bæði
fyrir þeirra eigið öryggi
og fyrir umhverfið.
Í ljósi stöðugt
aukinnar umræðu
um mikilvægi umhverfis-
verndar og bættra loft-
gæða trúum við því að
mörg fyrirtæki, stofnanir
og sveitarfélög hljóti að
skoða til hlítar þann
möguleika að setja bif-
reiðar sínar á umhverfis-
væn Green Diamond
harðkornadekk.
Bestu vetrardekk sem ég hef ekið á
„Ég hef verið atvinnubílstjóri í 47 ár. Green Dia
mond dekkin eru bestu vetrardekk sem ég hef
ekið á. Við höfum notað Green Diamond dekkin
í átta ár. Dekkin hafa alveg ótrúlegt grip. Bílarnir
skríða aldrei til að aftan, þeir eru eins og negldir
við veginn. Það er sama hversu mikið Green
Diamond dekkin slitna, það er alltaf frábært grip
í dekkjunum.“
Guðmundur Sigurðsson, eigandi og framkvæmda-
stjóri ferðaþjónustufyrirtækisins GTice.
gera samanburðarrannsóknir
á dekkjum, VTI (Vej og Teknik
Institut), sem er hliðarfyrirtæki við
sænsku vegamálastofnunina,“ segir
Kristinn. „Samkvæmt upplýsingum
frá Umferðarstofu eru algengustu
óhappaskilyrðin hér á höfuð
borgarsvæðinu þegar það er blautur
ís við frostmark og þau skilyrði
voru endursköpuð á rannsóknar
stofunni. Green Diamond reyndist
hafa 36% meiri virkni í bremsu
prófi en það dekk sem kom næst og
32% meiri virkni í beygjuprófi. Hér
skilur milli lífs og dauða.“
Einstakt grip allan líftíma
dekksins fækkar tjónum
„Athuganir sýna að það virðast
allt að þrisvar sinnum meiri líkur
á að ökumenn á slitnum hjólbörð
um valdi árekstri en þeir sem eru
á nýlegum hjólbörðum og f lestöll
dekk byrja strax að missa grip
þegar þau slitna,“ segir Kristinn.
„Green Diamond dekkin halda
virkninni aftur á móti miklu
betur af því að iðnaðardemantur
inn er í öllu slitlaginu, en ekki
bara efst, og það er sama góða
gúmmíið í öllu dekkinu. Green
Diamond dekkin geta því fækkað
2 kynningarblað A L LT 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR