Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. tjónum heilmikið og þannig sparað þjóðarbúinu hluta af þeim kostnaði sem fylgir umferðar­ óhöppum, en samkvæmt Sam­ göngustofu er hann áætlaður yfir 30 milljörðum á hverju ári.“ Traustir viðskiptavinir og áhersla á umhverfisvernd „Það er komin mjög góð reynsla af notkun Green Diamond dekkja hér á landi frá traustum og ábyrgum aðilum og viðskiptavinir eru hæstánægðir,“ segir Kristinn. „Þessi reynsla talar sínu máli og er enn dýrmætari en jákvæðar prófanir. Við erum meðal annars í traustu sambandi við Hafnarfjarðarbæ og fleiri sveitarfélög, Ístak og fjölda annarra stórra aðila. Ístak kaupir til dæmis af okkur nálægt 200 dekk á hverju ári. Þessi við­ skipti eru eðlilega komin til vegna almennrar ánægju með dekkin, en einnig sannarlega vegna þeirrar stefnu fyrirtækjanna og stofnananna að stuðla að aukinni sjálfbærni og umhverfisvernd,“ segir Kristinn. „En það er alveg ljóst að forgangsbifreið Björgunar­ sveitarinnar á Flúðum væri ekki búin að vera á Green Diamond dekkjum í níu vetur ef þau væru ekki að virka. Ef Green Diamond virkar í uppsveitum Árnessýslu, þá þarf engin nagladekk á suðvestur­ horni landsins. Í ljósi stöðugt aukinnar umræðu um mikilvægi umhverfisverndar og bættra loftgæða trúum við því að mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hljóti að skoða til hlítar þann möguleika að setja bif­ reiðar sínar á umhverfisvæn Green Diamond harðkornadekk,“ segir Kristinn. Stuðlar mjög að sjálfbærni að endurnýta dekk „Sumum bregður þegar ég nefni að dekkin séu endursóluð, en það eru þau dekk þar sem belgurinn er endurnýttur og nýr gúmmí­ slitf lötur settur á. Tækninni í endursólun hefur f leygt fram og gallatíðni er sambærileg við ný dekk, við framleiðsluna er notuð sambærileg tækni og þekkist hvort tveggja hjá Formúlu 1 og í f lugvélabransanum,“ segir Krist­ inn. „Belgurinn sem við notum er líka framleiddur til að vera endurnýttur, en hann er allt að 75% af nýja dekkinu. Við spörum nálægt 100 lítra af jarðefnaelds­ neyti á einum dekkjagangi og það er engin spurning að við verðum að endurnýta allt sem við getum. Hvert einasta kolefnisspor skiptir miklu máli og margt smátt gerir eitt stórt. Allir sem fylgjast með umræðunni um loftslags­ og umhverfismál hljóta að vera sam­ mála mér.“ Eru Green Diamond dekkin samkeppnishæf í verði? „Já, þau eru það. Green Diamond dekkin eru ekki ódýrustu dekkin á markaðnum, en maður ætti aldrei að gefa afslátt af öryggi og þau eru mjög endingargóð, þannig að þetta eru sannarlega hagstæð kaup,“ segir Kristinn. „Það er vel þess virði að fjárfesta í gæðadekkjum, bæði til að tryggja öryggi, vernda umhverfið og spara umfelgun.“ n Nánari upplýsingar má finna á hard kornadekk.is og í síma 611 7799. Einnig má senda póst á info@ hardkornadekk.is. Þegar ákvörðun um kaup liggur fyrir er dekkjunum komið á tiltekið dekkjaverkstæði. Green Diamond harðkornadekkin eru íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður sem henta í flestum til­ vikum betur en nagladekk, menga margfalt minna og endast ein­ staklega vel. Green Diamond eru einu umhverfisvænu og vistvænu dekkin sem bjóðast fyrir einka­ bílinn hér á landi og augljós kostur fyrir þá sem kjósa að hlífa umhverf­ inu með því að sleppa nöglunum. „Það sem er kannski skemmti­ legast við þetta er ekki bara að framleiðsla dekkjanna sé byggð á íslensku einkaleyfi, heldur hvað þetta er flott vara,“ segir Kristinn Sigurðsson, seljandi dekkjanna. „Að sjálfsögðu notum við 100% náttúrulegt gæðagúmmí í slitlagið og við blöndum iðnaðardemanti í allt slitlag Green Diamond dekkja. Virknin varir því allan líftíma dekksins, en það eru á bilinu 300­ 400 grömm af iðnaðardemanti í hverju fólksbíladekki. Sumir leyfa sér að auglýsa harðkornadekk sem hafa kannski 20 grömm af iðnaðar­ demanti, sem er mulningur í efsta yfirborðinu, en mér finnst það vera hrein og klár vörusvik.“ Nagladekk eru barn síns tíma og veita falskt öryggi „Green Diamond harðkorna­ dekk hafa mikilvæga kosti fram yfir nagladekk. Ítarleg rann­ sókn doktors Haraldar Sigþórs­ sonar umferðarverkfræðings gefur í fyrsta lagi sterkar vísbendingar um að naglarnir geti gefið falskt öryggi og að ökumenn á negldum hjólbörðum valdi hlutfallslega fleiri slysum en aðrir,“ segir Kristinn. „Ökumenn á nöglum keyra hraðar, sem þýðir lengri bremsuvegalengd, og á höfuðborgarsvæðinu er oftast keyrt á þurru eða blautu malbiki, en við slík skilyrði er hemlunar­ vegalengd bifreiða á nagladekkjum almennt lengri. Þá þekkist það við ákveðnar aðstæður að bílar á nöglum geta „skautað“ og það skapar hættu. Staðreyndin er sú að á suðvestur­ horninu er veturinn orðinn svo mildur að ávinningurinn af notkun nagladekkja er hverfandi í saman­ burði við skaðann af þeim, þegar heildarmyndin er skoðuð,“ segir Kristinn. „Naglarnir tæta malbikið og skapa gríðarlega mikla svifryks­ mengun og það er vandamál sem er að versna með mildari vetrum. Ég leyfi mér bara að orða það þannig að naglar drepa. Læknar segja að allt að 60 Íslendingar deyi ótímabærum dauða árlega vegna svifryksmengunar og mörg hundruð glíma við heilsufars­ vandamál. Það má rekja allt að 25% af uppsprettu svifryks til nagla­ dekkja,“ segir Kristinn. „Þegar naglarnir sverfa göturnar myndast líka djúp hjólför sem fyllast af vatni og geta skapað slysahættu, auk þess sem tjaran úr malbikinu sest á dekk og minnkar veggrip. Green Diamond dekkin sverfa vegina hins vegar 14 sinnum minna. Nagladekk eru barn síns tíma. Reykjavíkurborg hefur í mörg ár lagt áherslu á þetta í sínum eigin auglýsingum. Fulltrúar Reykja­ víkurborgar eru meðal annars að horfa til þess kostnaðar sem borgin stendur frammi fyrir vegna slits á götum vegna naglanna, en sá kostnaður er brot af því heilsufars­ vandamáli sem naglarnir valda,“ segir Kristinn. „Naglarnir eru bara tímaskekkja, þannig að þó að það sé löglegt að fara á nagla núna vil ég hvetja sem flesta til að velta því fyrir sér hvort það sé endilega rétt niðurstaða, bæði fyrir þeirra eigið öryggi og fyrir umhverfið.“ Koma vel út í prófunum „Við eigum próf frá annarri af tveimur stofnunum í heiminum sem hafa alþjóðlega vottun til að Iðnaðar­ demanturinn í Green Dia mond dekkinu er vel sjáanlegur og nær hann gegnum allt slitlag dekksins. Virknin varir því allan líftíma dekksins. Naglarnir eru bara tímaskekkja, þannig að þó að það sé löglegt að fara á nagla núna vil ég hvetja sem flesta til að velta því fyrir sér hvort það sé endilega rétt niðurstaða, bæði fyrir þeirra eigið öryggi og fyrir umhverfið. Í ljósi stöðugt aukinnar umræðu um mikilvægi umhverfis- verndar og bættra loft- gæða trúum við því að mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hljóti að skoða til hlítar þann möguleika að setja bif- reiðar sínar á umhverfis- væn Green Diamond harðkornadekk. Bestu vetrardekk sem ég hef ekið á „Ég hef verið atvinnubílstjóri í 47 ár. Green Dia­ mond dekkin eru bestu vetrardekk sem ég hef ekið á. Við höfum notað Green Diamond dekkin í átta ár. Dekkin hafa alveg ótrúlegt grip. Bílarnir skríða aldrei til að aftan, þeir eru eins og negldir við veginn. Það er sama hversu mikið Green Diamond dekkin slitna, það er alltaf frábært grip í dekkjunum.“ Guðmundur Sigurðsson, eigandi og framkvæmda- stjóri ferðaþjónustufyrirtækisins GTice. gera samanburðarrannsóknir á dekkjum, VTI (Vej og Teknik Institut), sem er hliðarfyrirtæki við sænsku vegamálastofnunina,“ segir Kristinn. „Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu eru algengustu óhappaskilyrðin hér á höfuð­ borgarsvæðinu þegar það er blautur ís við frostmark og þau skilyrði voru endursköpuð á rannsóknar­ stofunni. Green Diamond reyndist hafa 36% meiri virkni í bremsu­ prófi en það dekk sem kom næst og 32% meiri virkni í beygjuprófi. Hér skilur milli lífs og dauða.“ Einstakt grip allan líftíma dekksins fækkar tjónum „Athuganir sýna að það virðast allt að þrisvar sinnum meiri líkur á að ökumenn á slitnum hjólbörð­ um valdi árekstri en þeir sem eru á nýlegum hjólbörðum og f lestöll dekk byrja strax að missa grip þegar þau slitna,“ segir Kristinn. „Green Diamond dekkin halda virkninni aftur á móti miklu betur af því að iðnaðardemantur­ inn er í öllu slitlaginu, en ekki bara efst, og það er sama góða gúmmíið í öllu dekkinu. Green Diamond dekkin geta því fækkað 2 kynningarblað A L LT 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.