Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 36

Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 36
odduraevar@frettabladid.is Förðunarfræðingarnir Heiður Ósk og Ingunn Sig hjá HI beauty hafa gengið til liðs við Kristínu Péturs- dóttur í förðunarþáttunum Make Up. „Við erum ótrúlega spenntar og ánægðar með að það sé að koma svona makeup-keppni á Íslandi,“ segir Heiður. Hún og Ingunn halda úti einum vinsælasta snyrtimiðli landsins og eru eigendur Reykjavík Makeup School. Þær hafa kennt yfir þrjú hundr- uð manns að farða sig sjálf með vinsælu námskeiðunum Kvöld- stund með HI beauty og unnið við fjölda förðunarverkefna. Það lá því beint við fyrir Kristínu að leita til þeirra. „Við erum að leggja lokahönd á undirbúninginn og förum bráðlega að fara yfir umsóknirnar, vonandi bætast f leiri við og svo förum við að sigta út,“ segir Heiður en enn er leitað að keppendum og er hægt að sækja um á makeup@siminn.is. n Kristín Péturs fær góðan liðsauka Félagaskipti Heiðar og Ingunnar hafa vakið verðskuldaða athygli. Jonny Ensall, breskur blaða- maður og plötusnúður, setur á laggirnar „pop up“ diskótek á Þingeyri í apríl næst- komandi eftir að hafa kynnst hjónaballi Þingeyringa. svavamarin@frettabladid.is „Ég var í verkefni á Þingeyri árið 2018 og festist fyrir vestan vegna veðurs. Þá hitti ég þau Hauk Sigurðsson og konu hans Vaida Braziunaite sem reka Blábankann á Þingeyri. Ég fékk þá hugdettu að halda far- and-diskótek á afskekktum stöðum í heiminum og fannst mér Þingeyri kjörinn staður til að byrja á,“ segir Jonny. Að sögn Hauks hýstu þau hjónin Jonny og kynntu hann fyrir Hjóna- ballinu þar sem hugmyndin að farand-diskótekinu kom upp og komu honum í kjölfarið í samband við Íslandsstofu og Visit Vestfjords. Fyrsta stopp af vonandi mörgum ber heitið Partíið við jaðar heimsins eða Detour Discotheque. „Ég hef fengið frábæra plötusnúða til liðs við mig frá Bretlandi, Banda- ríkjunum og Hermigervill kemur frá Íslandi,“ segir Jonny og bætir við að Partíið við jaðar heimsins sé ekki tónleikahátíð heldur diskótek í anda sjöunda áratugarins. n Breti breytir litlu Þingeyri í skemmtilegan skemmtistað Frá toppi Sandfells við Dýrafjörð. Jonny Ensall heillaðist upp úr skónum af fegurð fjarðarins í tengslum við gigg árið 2018. Hann ætlar að koma með hátíðina Detour Discotheque, eða Partíið við jaðar heimsins. MYND/AÐSEND Rós í hnappagat Vestfjarða Vestfirðir eru efstir á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir lönd, svæði og borgir til að heimsækja á komandi ári og hlutu svokallaða Best in Travel-viðurkenningu, sem birt var 28. október. Val Lonely Planet mun beina kastljósi heimsbyggðarinnar að Vestfjörðum sem getur reynst mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu og Ísland sem áfangastað. Á hverju ári tilnefna ferðarithöfundar, bloggarar og starfsfólk Lonely Planet staði fyrir Best in Travel-listann, sá listi fer síðan fyrir dómnefnd sem fær það hlutverk að velja 10 staði sem skara fram úr. Hver staður sem er valinn er einstakur, býr yfir ákveðnum „vá- faktor“ og hefur lagt sitt af mörkum til framþróunar sjálfbærrar ferðaþjónustu odduraevar@frettabladid.is Íslenski söngvarinn Natan Dagur situr ekki auðum höndum síðan hann komst í undanúrslit The Voice í Noregi. „Það gengur mjög vel, ég er í fullt af verkefnum með mismunandi tónlistarfólki og hef fengið tvö mjög spennandi boð sem ég veit ekkert hvort verði eitthvað úr,“ segir Natan þegar Fréttablaðið slær á þráðinn til hans. „Ég er náttúrulega svo nýr í þessum tónlistarbransa og hef lengi verið að leika mér að því að syngja en þegar maður tekur ábreiður er maður ekkert að spá í sjálfum sér sem tónlistarmanni,“ útskýrir Natan en hann hefur gert Vor í Vaglaskógi vinsælt í Noregi. „Ég hef verið að reyna að átta mig á því hvaða rödd ég hef og hvernig orku ég vil í lögunum mínum,“ segir söngvarinn einlægur. „Ég er búinn að setja mér eitt markmið en mig langar til þess að gefa út fyrstu smáskífuna mína fyrir enda janúar,“ segir hann. Nokkur lög séu mjög nálægt því að vera til- búin. „Kannski slær eitt þeirra í gegn og þá þarf ég að endurskoða hin, svo maður veit aldrei í hvaða átt þetta fer. “ Natan ver tíma sínum heima í að semja. „Þegar ég er ekki að vinna með öðru tónlistarfólki er ég bara heima að búa til laglínur og skrifa texta,“ segir Natan Dagur sem segir engan bilbug á sér að finna. n Markmið Natans er að gefa út smáskífu í janúar Söngrödd Natans vekur athygli. 24 Lífið 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.