Fréttablaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 1
2 2 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1 Hættuleg sambönd Yfir hundrað ráð í fanginu Menning ➤ 20 Lífið ➤ 26 Þú færð okkar besta verð á líf- og sjúkdómatryggingum og getur tryggt þig og þína á örfáum mínútum á tm.is Tryggingar fyrir það allra mikilvægasta NÝR NETBÆKLINGUR Heilsugæsla höfuðborgar- svæðisins ætlar að aka um og bjóða bólusetningu við Covid-19. Forstjóri segir að ná verði til óbólusettra. birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 „Við beitum öllum ráðum til að veita öllum tækifæri til að komast í bólusetningu,“ segir Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á næstunni mun strætó verða ekið um götur borgarinnar og fólki verða boðið um borð í hann í bólusetningu gegn Covid-19. Strætóinn verður staðsettur á nokkrum stöðum á höfuðborgar- svæðinu á mismunandi tímum og í hann geta öll þau sem ekki hafa fengið bólusetningu komið og látið bólusetja sig gegn Covid. „Við erum enn á byrjunarreit en það gæti þá verið þannig að bíllinn eða strætóinn myndi vera fyrir utan vinnusvæði eða bara í Smára- lind eða Kringlunni, og þar getur fólk fengið bóluefni,“ segir Óskar. Nú þegar eru 89 prósent lands- manna sem náð hafa tólf ára aldri fullbólusett. Í þessari viku hefur einnig verið hafist handa við að veita fólki örvunarskammt bólu- efnis sem auka á vernd gegn sjúk- dómnum enn frekar. Óskar segir að helst sé reynt að ná til þess hóps sem ekki hefur fengið neinn skammt bóluefnis með því að bólusetja víðs vegar um borgina í bólusetningarstrætónum. „Númer eitt er bara að ná til sem flestra og minnka útbreiðslu sjúk- dómsins og minnka álagið á spítal- anum. Það gerum við með því að bólusetja sem flesta.“ Þá segir Óskar að sóttvarnalækn- ir hafi í samstarfi við aðra greint vel hvaða hópar það eru sem ekki hafi þegið bólusetningu. Reynt verði að fara með bólu- setningarstrætóinn þar sem auð- velt aðgengi verði að honum fyrir þessa hópa. „Stefnan er að bólusetja alla sem ekki eru bólusettir. Það er mikil- vægt og tilgangurinn með þessu,“ segir Óskar. n Nota strætó við bólusetningarátak Óskar Reykdals- son, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins Arnaldur Indriðason hlaut í gær Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega á degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, og eru ætluð þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu til hags í skáldskap, fræðimennsku eða öðrum störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR SAMFÉLAG Mikil þörf er á athvarfi fyrir konur með fjölþættan vanda og virkan vímuefnavanda að mati deildarstjóra á velferðarsviði Reykja víkurborgar. Borgarstjórn samþykkti í gær að vísa tillögu Sjálfstæðismanna um neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur til velferðarráðs borgar- innar. Eygló Margrét Stefánsdóttir kynjafræðingur, sem starfar í kvennaathvarfi í Óðinsvéum í Dan- mörku, segir úrræðið hafa reynst vel. Mikil skömm fylgi lífi í neyslu og miklar sjálfsásakanir. SJÁ SÍÐU 6 Telur mikla þörf á sérstöku athvarfi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.