Fréttablaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 6
Við eigum í margvís-
legu samstarfi og
fannst rökrétt að heyra
í félögum okkar.
Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri
Grundarfjarðar
Deildarstjóri á velferðar
sviði borgarinnar segir þörf
á kvennaathvarfi fyrir konur
með fjölþættan vanda og
vímuefnavanda. Þær þurfi
öryggi og viðeigandi stuðn
ing. Slíkt úrræði hefur reynst
vel í Danmörku.
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Hrafnhildur Ólöf Ólafs
dóttir, deildarstjóri á velferðarsviði
Reykjavíkurborgar, segir reynsluna
sýna að mikil þörf sé á Kvennaat
hvarfi, fyrir konur með fjölþættan
vanda og virkan vímuefnavanda,
hér á landi. Konur sem glími við
vímuefnavanda og/eða geðrænan
vanda og hafi orðið fyrir of beldi
þurfi að geta leitað í athvarf þar
sem þær fái öryggi og viðeigandi
stuðning.
„Skortur á kvennaathvarfi fyrir
þennan hóp kvenna gerir það meðal
annars að verkum að þær eiga erfið
ara með að ná að nýta og halda sjálf
stæðri búsetu, þar sem algengt er að
konur með fjölþættan vanda verði
ítrekað fyrir ofbeldi í nánum sam
böndum,“ segir Hrafnhildur.
Í apríl í fyrra veitti félagsmála
ráðuneytið Reykjavíkurborg 40
milljóna króna styrk til þjónustu
við heimilislausa einstaklinga með
fjölþættan vanda. Málaf lokkur
inn var skoðaður af velferðarsviði
borgarinnar þar sem meðal annars
kom í ljós að konum, sem leituðu í
neyðarskýli eða vettvangsþjónustu
borgarinnar vegna aukins ofbeldis í
þeirra garð, hafði fjölgað mikið.
Eygló Margrét Stefánsdóttir
kynjafræðingur starfar í kvenna
athvarfi í Óðinsvéum í Danmörku,
sem sérstaklega er ætlað konum
með tvíþættar greiningar, það eru
í mörgum tilfellum konur sem eru
með virkan vímuefnavanda og/
eða þungar geðraskanir. Konurnar
geta því ekki verið í hefðbundnum
kvennaathvörfum þar sem eru
börn. Hún segir úrræðið hafa reynst
vel.
„Margar af þeim heimilislausu
konum sem koma til okkar búa við
daglegt of beldi og óöryggi og hafa
gert í mörg ár. Það hafa ekki verið
mörg úrræði fyrir þennan hóp og
erum við eitt af fyrstu kvennaat
hvörfunum sem bjóðum þessar
konur velkomnar,“ segir Eygló.
Kvennaathvarfið er opið allan
sólarhringinn og þar er pláss fyrir
tuttugu konur sem orðið hafa fyrir
of beldi. Þær búa í athvarfinu allt
frá örfáum vikum upp í tvö ár og
þar er leyfilegt að neyta neyslu
skammta vímuefna. „,Við erum að
sjálfsögðu með reglur og ramma í
kringum það,“ segir Eygló og bætir
við að ekki allar konurnar neyti
vímuefna.
Eygló segir úrræði líkt því og hún
starfi í vel geta nýst hér á landi. „Við
þurfum að opna úrræði sem veitir
þessum hópi kvenna möguleika á
að komast úr of beldisaðstæðum og
gefur þeim trú á að þær eigi betra
skilið,“ segir hún.
„Það myndi gagnast þeim konum
sem verða fyrir of beldi, bæði í
nánum samböndum og þeim sem
geta ekki komið í hefðbundin
kvennaathvörf,“ segir Eygló og bætir
við að margar konur sem verði fyrir
ofbeldi þori ekki að leita sér hjálpar
þegar þær verði fyrir ofbeldinu.
„Því oft fylgir lífi í vímuefna
neyslu eða lífi með geðröskunum
alls kyns skömm, fordómar annars
fólks og samfélagsins og gífurlegar
sjálfsásakanir,“ segir hún.
„Sumar af þeim sem koma til
okkar fara aftur á götuna eftir að
hafa fengið öryggið hjá okkur um
stund en sumum tekst að finna íbúð
og tekst jafnvel að búa þar um hríð,“
segir Eygló. „Stundum gera þessar
pásur sem þær fá hjá okkur það að
verkum að þær fá meiri trú á sjálfar
sig, þær vita að það er fólk sem vill
þeim vel og er til staðar.“ ■
Þurfum að opna kvennaathvarf fyrir
heimilislausar konur í Reykjavík
Eygló Margrét
Stefánsdóttir,
starfar í Kvenna-
athvarfi fyrir
konur með tví-
þættan vanda
í Danmörku,
hún segir slíkt
úrræði geta
gagnast vel hér
á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hrafnhildur
Ólöf Ólafsdóttir,
deildarstjóri á
velferðarsviði
Reykjavíkur-
borgar
Eygló Margrét
Stefánsdóttir,
kynjafræðingur
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTURLAND Fulltrúar allra fimm
sveitarfélaganna á Snæfellsnesi
munu koma saman bráðlega til að
ræða óformlega um sameiningu.
Fundurinn er að undirlagi Grundar
fjarðar, sem er eina sveitarfélagið
sem þegar er ekki í neinum sam
einingarviðræðum. Snæfellsbær
og Eyja og Miklaholtshreppur eru
í formlegum viðræðum og Stykkis
hólmsbær og Helgafellssveit eru í
óformlegum viðræðum við Dala
byggð.
„Við eigum í margvíslegu sam
starfi og fannst rökrétt að heyra í
félögum okkar,“ segir Björg Ágústs
dóttir, sveitarstjóri Grundarfjarðar.
Hún segir fundinn óháðan þeim við
ræðum sem þegar eru í gangi. „Það er
vaxandi umræða um sameiningar
mál á Snæfellsnesi.“
Árið 2005 var tillaga um stóra
sameiningu á Snæfellsnesi felld með
afgerandi hætti í öllum sveitarfélög
unum. Síðan þá hafa verið þreifing
ar, til að mynda milli Grundarfjarð
ar, Stykkishólms og Helgafellssveitar
á síðasta kjörtímabili.
Samkvæmisleikurinn f lækist
enn því brátt munu Stykkishólmur
og Helgafellssveit funda með Dala
byggð, sem hefur nýlokið fundi með
Húnaþingi vestra. Kristján Sturlu
son, sveitarstjóri Dalabyggðar, seg
ist ekki eiga von á að ákvörðun um
formlegar viðræður í aðra hvora
áttina verði tekin fyrr en eftir kosn
ingar í maí. Veturinn verði meðal
annars notaður til þess að kynna
kosti og galla fyrir íbúum.
Ofan á þetta ákváðu fulltrúar
Strandabyggðar að bjóða Dala
byggð, Húnaþingi vestra, Reykhóla
hreppi, Ásahreppi og Kaldaðarnes
hreppi í viðræður um sameiningu.
„Erindi Strandamanna var tekið
fyrir á sveitarstjórnarfundi og
ákveðið að bregðast ekki við því
á meðan hinar viðræðurnar eru í
gangi,“ segir Kristján. ■
Ræða óformlega um stóra sameiningu á Snæfellsnesi
svavamarin@frettabladid.is
REYKJAVÍK Eyþór Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn,
fagnar því að borgin ætli með raf
orkukaup og LEDljósavæðingu í
útboð. Það hefði átt gera þetta strax
í byrjun kjörtímabilsins.
„Það hefur ekki þurft að tefja
þetta,“ segir hann. Borgin kaupir nú
rafmagn af Orku náttúrunnar.
„Við höfum bent á það að þessi
innri viðskipti borgarinnar eru
tímaskekkja,“ segir Eyþór. „Þarna
er samstæða að kaupa af sjálfri sér,
svipað eins og kaupfélagið í gamla
daga.“ ■
Ekki þurft að tefja
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
arib@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Ís lenskur karl maður
á fimm tugs aldri er grunaður um
að hafa nauðgað íslenskri konu og
frelsis svipt hana, í Hollandi í síðustu
viku.
Sam kvæmt heimildum Frétta
blaðsins hefur meintur gerandi
tví vegis verið dæmdur fyrir nauðg
anir og of beldi á Ís landi, síðast árið
2018. Heimildir blaðsins herma að
brota þoli hafi gefið skýrslu hjá lög
reglunni í Hollandi í síðustu viku en
konan sé nú komin til Ís lands og hafi
einnig gefið skýrslu hér heima. Lög
regla í Hollandi leitar mannsins. ■
Leita að Íslendingi
6 Fréttir 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ