Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 11

Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 11
FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2021 Viðskiptastjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði arionbanki.is Arion banki atvinna Arion banki leitar að öflugum og söludrifnum viðskiptastjóra á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið. Hlutverk sviðsins er að bjóða alhliða fjármálaþjónustu til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga auk stýringar á fjármögnunarverkefnum. Um er að ræða starf í teymi sem sinnir þjónustu við meðalstór og lítil fyrirtæki sem gera kröfur um gott samstarf, þekkingu og framúrskarandi þjónustu. Veitt er alhliða þjónusta í takt við þarfir hvers fyrirtækis. Þjónustan snýr að ýmsum tegundum fjármögnunar og almennri bankaþjónustu. Helstu verkefni Stýring og ábyrgð á viðskiptasamböndum Öflun nýrra viðskiptavina Þjónusta, ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini Umsjón með lánveitingum og annarri fjármögnun til viðskiptavina Greining á rekstri fyrirtækja Hæfniskröfur Metnaður, drifkraftur og frumkvæði við öflun nýrra viðskiptavina Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund Háskólamenntun sem nýtist í starfi Haldbær þekking á greiningu ársreikninga og áhugi á íslensku atvinnulífi Nánari upplýsingar um starfið veita Kristján Einarsson, forstöðumaður á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði, kristjan.einarsson@arionbanki.is, og Hanna María Pálmadóttir mannauðsstjóri, hanna.maria.palmadottir@arionbanki.is Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2021. Sótt er um starfið á www.arionbanki.is Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. magdalena@frettabladid.is Eignir félagsins Solomio í lok árs 2020 námu 2,5 milljörðum króna samanborið við 1,8 milljarða króna árið áður. Eigið fé félagsins í árslok 2020 nam 1,7 milljörðum króna og hélst óbreytt milli áranna 2019 og 2020. Lán eru við tengda aðila. Félagið er í eigu hjónanna Egg- erts Þórs Dagbjartssonar og Bjargar Bergsveinsdóttur. Eggert er fjár- festir sem hefur starfað lengst af í Bandaríkjunum og meðal annars verið nemi við hinn virta Harvard- háskóla. Eggert hefur í rúm 30 ár starfað hjá f járfestingafélaginu Equity Resource Investments (ERI). Þá kom hann að byggingu Reykjavík Edition hótelsins í gegnum fast- eignafélagið Carpenter & Company sem Eggert er meðal annars hlut- hafi í. Hann kom einnig að verkefni sem sneri að því að byggja íbúðir við Austurhöfn og verslunarhús- næði við hlið Hörpu. n Eignirnar nema 2,5 milljörðum Eggert Þór Dagbjartsson, eigandi Solomios magdalena@frettabladid.is Upplýsingatæknifyrirtækið Svar hefur vegna aukinna umsvifa ráðið til sín sjö nýja starfsmenn, þau Önnu Lilju Sigurðardóttur, Bessa Toan Ingason, Grétar Örn Hjartar- son, Írisi Dögg Eiðsdóttur, Katrínu M. Guðjónsdóttur, Lindu Wessman og Sigríði Birnu Sigurðardóttur. Nýju starfskraftarnir hafa f lestir framhaldsmenntun á sviði við- skipta, bókhalds og tölvunarfræði. „Það er mjög ánægjulegt hversu öfluga einstaklinga við höfum feng- ið til liðs við okkur og aukinn áhugi kvenfólks á störfum í tæknigeir- anum er auðvitað gleðiefni,“ segir Rúnar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Svars. Svar veitir viðskiptavinum sínum tæknilausnir í skýinu, eins og bók- haldskerfi, rekstrarkerfi og verk- og tímaskráningarkerfi. n Svar ræður til sín nýja starfsmenn Rúnar Sigurðs- son, fram- kvæmdastjóri Svars helgivifill@frettabladid.is Sögn, fyrirtæki í eigu Baltasars Kor- máks Baltasarssonar kvikmynda- gerðarmanns, hagnaðist um 163 milljónir króna árið 2020, saman- borið við 37 milljóna hagnað árið áður. Fyrirtækið greiddi 105 milljónir króna í arð árið 2020 og 75 millj- ónir króna árið 2019, samkvæmt ársreikningi. Eigið fé Sagnar var 752 milljónir króna við lok árs 2020 og eiginfjár- hlutfallið var 84 prósent. Sjóður og bankainnstæður námu 241 milljón króna samanborið við 57 milljónir ári áður. Tekjur Sagnar jukust verulega á milli ára. Þær námu 30 milljónum árið 2019 en voru 283 milljónir í fyrra. Á meðal eigna Sagnar er 100 prósenta hlutur í framleiðslufyrir- tækinu RVK Studios sem framleiðir meðal annars þáttaröðina Ófærð. Baltasar Kormákur hefur meðal annars leik st ý r t Holly wood- mynd unum 2 Guns með Denzel Washington og Mark Wahlberg og Contraband sem hinn síðarnefndi lék líka í. Á næsta ári á að frumsýna kvik- myndina Beast í leikstjórn Baltas- ars Kormáks, sem skartar Idris Elba í aðalhlutverki. n Félag Baltasars Kormáks greiddi yfir hundrað milljónir í arð Baltasar Kormákur Baltasarsson kvikmynda- gerðarmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.