Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 20
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5654,
„AÞ Þrif voru stofnuð árið 2006
og eru því 15 ára á árinu. Ég er
aðalstofnandi fyrirtækisins
ásamt konunni minni og bróður
mínum og við þrjú erum eigend-
urnir,“ segir Arnar Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri AÞ Þrifa. „Við
sérhæfum okkur í þrifum fyrir
byggingarverktaka, fyrirtæki og
stofnanir og stærsti hlutinn af
starfsemi okkar er ræstingar og alls
kyns sérverkefni.
Þetta er ungt og framsækið fyrir-
tæki sem er í stöðugum og hröðum
vexti og horfir til nýrrar þjónustu
í framtíðinni. Við erum því ávallt
í ákveðinni nýsköpun, þróun og
stefnumótun,“ segir Arnar. „Við
erum líka með Svansvottun og
höfum verið framúrskarandi fyrir-
tæki fimm ár í röð frá árinu 2017
og höfum háa gæðastaðla.“
Sérhæfð í erfiðum þrifum
„Hjá okkur starfa 125 manns í
fullu starfi og við veitum fjöl-
breytta þjónustu. Við erum
með gluggaþvott, iðnaðarþrif,
gólfhreinsun, mygluhreinsun,
ræstingar og veitum í raun alla
sérhæfða þrifaþjónustu sem þörf
er á,“ segir Arnar. „Við tökum öll
verkefni, hvort sem þau eru lítil
eða stór, og getum leyst allt sem
snýr að þrifum. Við vinnum líka í
erfiðum aðstæðum og erum með
sigmenn ef þörf er á, svo við getum
í rauninni sinnt öllu.
Við erum langstærst í sér-
verkefnum eins og þrifum fyrir
nýbyggingar, erfiðum þrifum við
erfiðar aðstæður, iðnaðarþrifum,
mygluþrifum og við sinnum líka
gólf- og gluggaþvotti. Við erum
mjög sérhæfð í þessum þrifum,“
segir Arnar.
Tími fyrir jólahreingerningu
„Við hvetjum fyrirtæki og stofnan-
ir til að fara að huga að jólahrein-
gerningu til gera allt fínt fyrir jólin
og létta ræstingafólki lífið. Við
tökum að okkur slíkar hreingern-
ingar og þá er farið yfir allt sem er
í seilingarhæð, ljós, loft, hillur og
skápa og það eru gerð stærri þrif
á gólfum og flísum og öllu þessu
sem er ekki tekið í hefðbundinni
ræstingu,“ segir Arnar. „Það verður
auðveldara fyrir ræstingaaðila að
þrífa eftir að það er búið að taka
svona stærri þrif. Ásýndin verður
líka betri og starfsfólki líður betur í
hreinu umhverfi og veikist síður.
Öflugar ræstingar eru gott vopn
gegn Covid og inflúensu. Við erum
líka að byrja að nota nýtt efni
sem dauðhreinsar alla snerti-
fleti og þekur um leið svæðin og
veitir sótthreinsivörn í viku,“ segir
Arnar. „Við búum líka yfir sérþekk-
ingu þegar kemur að sótthreinsun.
Við uppfyllum að sjálfsögðu líka
öll skilyrði fyrir sóttvarnir og fólk
getur verið óhrætt við að fá okkur
til sín,“ segir Arnar. „Við erum öll
bólusett og búin alls kyns göllum
og grímum sem við getum mætt í.“
Áhersla á þjónustulund,
fagmennsku og heiðarleika
„Okkar gildi eru þjónustulund,
fagmennska og heiðarleiki og
þau móta allt okkar starf. Þetta
eru allt þættir sem skipta gríðar-
lega miklu máli fyrir fyrirtæki í
dag,“ segir Arnar. „Það skiptir líka
miklu að fyrirtæki geti gengið að
AÞ Þrif voru stofnuð árið 2006 og eru sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Arnar Þorsteinsson stofnaði fyrirtækið ásamt
Bjarka bróður sínum og konu sinni, Hrund Sigurðardóttur, og þau eru eigendurnir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Starfsfólkið hjá AÞ Þrifum er komið
í jólaskap og farið að huga að jóla-
hreingerningum. MYND/AÐSEND
AÞ Þrif sérhæfa
sig í þrifum fyrir
byggingarverk-
taka, fyrirtæki
og stofnanir.
MYND/AÐSEND
AÞ Þrif vinna við erfiðar aðstæður og geta meðal annars sent sigmenn ef það
er þörf á því til að komast á erfiða staði. MYND/AÐSEND
Allt starfsfólk AÞ Þrifa er bólusett og er búið alls kyns
göllum og grímum. MYND/AÐSEND
AÞ Þrif hvetja fyrirtæki og stofnanir til að fara að huga að
jólahreingerningu. MYND/AÐSEND
því vísu hvaða þjónustu þau fá.
Þeir sem hafa áhuga geta hringt
og fengið tilboð og verð fyrir þau
verk sem þarf að vinna. Við erum
tiltölulega fljót að bregðast við
fyrirspurnum og græja það sem
þarf,“ segir Arnar. „Við sinnum
aðallega verktökum og einkafyrir-
tækjum, en við bjóðum líka upp
á þjónustu fyrir stofnanir og ein-
staklinga og getum tekið öll stærri
þrif sem fólk treystir sér ekki í. Við
sjáum líka um að flytja stærri hluti
á milli rýma ef það er þörf á því
til að klára þrifin og göngum svo
aftur frá þeim eftir á.
Við erum líka alltaf að bæta
við nýrri þjónustu til að reyna
að þjónusta viðskiptavini okkar
betur. Við viljum sífellt gera betur
í dag en í gær og höfum það, ásamt
gildunum okkar, að leiðarljósi,“
segir Arnar að lokum. n
Hægt er að hafa samband við AÞ
Þrif í gegnum síma 517-2215 eða
tölvupóst. Netfangið er ath-thrif@
ath-thrif.is og heimasíðan er
ath-thrif.is.
Við tökum öll
verkefni, hvort
sem þau eru lítil eða stór,
og getum leyst allt sem
snýr að þrifum. Við
vinnum líka í erfiðum
aðstæðum og erum með
sigmenn ef þörf er á, svo
við getum í rauninni
sinnt öllu.
Arnar Þorsteinsson
2 kynningarblað 17. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURJÓLAHREINGERNING