Fréttablaðið - 17.11.2021, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Jú, ég veit að það eru 39 dagar
til jóla og að mörgum finnst of
snemmt að byrja að huga að þeim.
Þessum mörgu má gróft séð skipta
í tvo hópa:
a) Þá sem hafa almennt lítið lagt
til jólaundirbúningsins og standa
líklega í þeirri trú að jólatöfrar
séu til í alvörunni, enda hafa á
aðfangadagskvöld gólf skúrast,
matur eldast og jólagjafir keypst.
b) Þá sem er sama um jólahrein-
gerningu og finnst bara fínt að
dimma ljósin, kasta glimmeri yfir
næstu pottaplöntu og kveikja á
kertum, altso þeir sem skreyta yfir
skítinn.
Ég sum sé tilheyri hvorugum
hópnum en stíg nú fram og opna
umræðuna um mikilvægi hreinna
eldhússkápa, vel pússaðra spegla
og fallega straujaðra rúmfata svona
almennt, en þó sérstaklega fyrir
jólin. Fyrir okkur sem aðhyllumst
hugmyndafræðina um „hreint hús
= hrein samviska“ þá veitir ekkert
af tímanum sem nú er eftir fram
að jólunum og ég gef ekkert fyrir
kvart ofangreindra hópa.
„Allt of snemmt“ hvað? Hvernig
var þetta hér á fyrri tíð – þurfti
ekki að velja vænan sauð strax að
hausti fyrir jólin? Og hvaða suð er
þetta um vesalings verslunarfólkið
sem þurfi að hlusta á jólatónlist
frá því í október? Ekki er því ágæta
fólki vorkennt að afgreiða sólar-
vörn í febrúar.
Nei. Það er einmitt snjallt að
hafa tímann fyrir sér, enda er
maður í rúmlega fullri vinnu dags-
daglega. Fara í gegnum húsið og
grynnka óþarfa, pússa hér og skafa
þar og strauja svo jólasængurfötin
með upplestur Róberts Arnfinns-
sonar á Aðventu Gunnars Gunn-
arssonar í eyrunum.
Njótið aðventunnar. n
Jólin
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur á Instagram @66north
Jólagjöfin er
66°Norður
NÝR NETBÆKLINGUR