Feykir - 22.01.2020, Side 7
Fimm fyrirtæki
undir sama þaki
Þann fyrsta maí var nýtt og
glæsilegt húsnæði opnað
við Hólaveg á Sauðárkróki
þangað sem fimm fyrirtæki
fluttu starfsemi sína. Þetta eru
Klippiskúrinn hársnyrtistofa,
Fótaðgerðastofa Stefaníu, Nudd-
stofan Friðmey, Kírópraktors-
stofa Íslands og Dekurlindin
snyrtistofa. Það eru þau Jónína
Róbertsdóttir og Eyþór Fannar
Sveinsson ásamt foreldrum
hans, Sveini Árnasyni og
Eyrúnu Sigurbjörnsdóttur, sem
eru eigendur hússins og stóðu
að endurbótum þess.
Húnvetningar taka á móti
flóttamönnum
Um miðjan maí komu 44 sýr-
lenskir flóttamenn til Hvamms-
tanga og Blönduóss eftir dvöl í
flóttamannabúðum í Lýbanon.
Fimm fjölskyldur fluttu á
Hvammstanga og þrjár til
Blönduóss. Mikil eftirvænting
ríkti fyrir komu fólksins og var
þeim afar vel tekið á báðum
stöðum.
Formleg opnun gagnavers
á Blönduósi
Þann 21. maí var stærsta gagna-
ver á Íslandi, sem staðsett er
við Blönduós, tekið formlega
í notkun að viðstöddum fjöl-
mörgum boðsgestum. Haldnar
voru ræður, klippt á borða og
fólki leyft að skoða aðstæður.
Var það mál manna að vel
hefði til tekist með byggingu
gagnaversins og það þakkað
afbragðsgóðum verktökum sem
og góðum stuðningi sveitar-
félaga á svæðinu. Byggt var á
mettíma en fyrsta skóflustungan
var tekin réttu ári fyrr.
Fjölbrautaskólanemar og
ferfætlingar útskrifast
Maí er mánuður útskrifta og
þann 24. maí var Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra slitið í 40.
sinn við hátíðlega athöfn í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Í máli skólameistara, Þorkels
V. Þorsteinssonar, kom m.a.
fram að 2.677 nemendur hafa
brautskráðst frá skólanum frá
upphafi skólahalds haustið
1979.
Fleiri útskriftir rötuðu á síður
Feykis en um svipað leyti voru
sex teymi fíkniefnaleitarhunda
og þjálfara þeirra útskrifuð eftir
fjögurra lotu nám. Útskriftin
fór fram að Hólum í Hjaltadal.
Við útskriftina voru viðstaddir
gestir sem komu víða að, þar á
meðal sendiherra Bretlands sem
var heiðursgestur.
Júní
Ólseigar Stólastúlkur
Tindastólsstúlkur gerðu það
gott og komust í átta liða úrslit
í Mjólkurbikarnum eftir sigur
í leik gegn Augnabliki úr
Kópavogi og telst það frábær
árangur. „Heimastúlkur reyndu
að jafna en Stólastúlkur voru
ólseigar og héldu út lokamín-
úturnar og fögnuðu sætum sigri
í leikslok,“ segir í frétt Feykis.
Norðurstrandarleið
opnuð
Norðurstrandarleið, eða Arctic
Coast Way, var opnuð með
formlegum hætti þann 8. júní,
annars vegar á mótum þjóðvegar
1 og Hvammstangavegar þar
sem Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgönguráðherra, og Arn-
heiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands, klipptu á borða,
og hins vegar við afleggjarann
inn á Bakkafjörð þar sem
þeir Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, og Árni Bragi
Njálsson, fulltrúi sveitarstjórnar
Langanesbyggðar, munduðu
skærin. Leiðin var í þróun í
meira en þrjú ár og hafði hún
þá þegar vakið mikla athygli
erlendis en ferðavefurinn
Lonely Planet valdi leiðina sem
þriðja besta áfangastað í Evrópu
á árinu.
1238: Baráttan um Ísland
Ný sýndarveruleikasýning sem
segir frá baráttu Íslendinga um
völdin á 13. öld var opnuð við
hátíðlega athöfn á Sauðárkróki
um miðjan júní. Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, opn-
aði sýninguna á táknrænan hátt
er hún hjó á borðann með sverði
sem hlýtur að teljast nokkuð í
anda Sturlungaaldar.
250 leikir á Smábæjaleikum
á Blönduósi
Smábæjaleikarnir í knattspyrnu
fóru fram á Blönduósi í 16. sinn.
Mikið fjölmenni sótti leikana
en 62 lið kepptu á mótinu
eða um 400 þáttakendur sem
spiluðu um 250 leiki. Auk þeirra
mætti fjöldi þjálfara, foreldra
og annarra gesta. Um 70-80
sjálfboðaliðar komu einnig að
mótinu.
Júlí
Aldarafmæli Verzlunar
Haraldar Júlíussonar
Sá merkisatburður átti sér stað
þann 28. júní að Verzlun Har-
aldar Júlíussonar á Sauðár-
Vatnavextir í Vatnsdal.
MYND: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
Lilja Dögg Alfreðsdóttir heggur á borðann við opnun 1238: The Battle of Iceland.
MYND: PF
komust færri að í veislutjaldinu
en vildu.
Við þetta tækifæri var
Bjarni Haraldsson útnefndur
heiðursborgari Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, sá fyrsti eftir að
sameinað sveitarfélag varð til í
Skagafirði árið 1998.
FM Trölli sendir út í
Skagafirði
Tímamót urðu í sögu útvarps-
stöðvarinnar FM Trölla í
júli þegar ræstur var sendir
á Sauðárkróki, sem þjónar
bænum og stórum hluta
Skagafjarðar, þar með Hofsósi
og nágrenni. Sendirinn á
Sauðárkróki var sá fimmti sem
FM Trölli setur upp, en hinir
fjórir eru á Siglufirði, Ólafsfirði,
Hrísey og á Hvammstanga. Það
er Hljóðsmárinn ehf. sem á og
rekur bæði útvarpsstöðina FM
Trölla, og fréttavefinn Trölli.is
en eigendur eru hjónin Gunnar
Smári Helgason og Kristín
Sigurjónsdóttir, oft nefnd
„Tröllahjónin“.
Borað til bráðabirgða
Í júlí sagði frá því að Skaga-
fjarðarveitur hefðu látið bora
fjórar holur til að freista þess
að auka kalda vatnið fyrir
Sauðárkrók en vatnsskortur
hafði þá undanfarið plagað
Króksara. Tvær holanna voru
boraðar í Skarðsdal og tvær á
Veðramóti í Gönguskörðum.
Að sögn Indriða Þórs Einars-
sonar, sviðstjóra Veitu- og
framkvæmdasviðs, höfðu allar
holurnar gefið vatn en mismikið
og leit ágætlega út með
vatnsmagnið. Hér væri þó um
bráðabirgðaaðgerð að ræða og
huga þyrfti að öðrum svæðum
til vatnsöflunar.
Kormákur/Hvöt á
skotskónum – Markaveisla á
Blönduósvelli
Lið Kormáks/Hvatar átti góða
leiki í 4. deild karla síðasta
sumar og segir frá einum
slíkum seinni part júlímánaðar.
Leikið var gegn liðinu Afríku
á Blönduósvelli. „Fyrri hálf-
leikurinn var mjög rólegur
miðað við seinni hálfleikinn
því það voru aðeins skoruð
þrjú mörk í fyrri hálfleik en
í þeim síðari komu mörkin á
færibandi og voru skoruð sex
mörk í seinni hálfleik,“ segir
í frétt blaðsins. Leiknum lauk
með sigri Kormáks/Hvatar, 8-1.
Frh. í næsta tölublaði Feykis
Norðurstrandarleið opnuð formlega.Sigurður Ingi Jóhannsson klippir á borðann.
MYND: PF
Geirmundur Valtýsson ásamt Mínvervu Björnsdóttur konu sinni.
MYND: PF
króki fagnaði aldarafmæli.
Aðeins tveir ættliðir hafa
rekið verslunina þessi 100 ár,
Haraldur Júlíusson sem versl-
unin er kennd við, en hann setti
hana á laggirnar árið 1919, og
Bjarni, sonur hans, sem rekið
hefur verslunina frá árinu 1973.
Í tilefni afmælisins var gestum
og gangandi boðið til mikillar
veislu og var fjölmenni mætt til
að samfagna kaupmanninum,
sem oft hefur verið kallaður
bæjarstjórinn í útbænum, og
03/2020 7