Feykir - 05.02.2020, Blaðsíða 1
05
TBL
5. febrúar 2020
40. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Sigurlaug Dóra svarar Rabbinu
Fyrst ætlaði ég að
verða búðarkona og
vinna í Díubúð
BLS. 8–9
Kristinn Hugason skrifar
um hesta og menn
Fáein orð
um reiðfatnað
Hlín Mainka hestakona og
jógakennari í opnuviðtali
„Ísland er ávana-
bindandi en það er
Indland líka...“
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
24
TBL
19. júní 2019
39. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 3
4
Marín Lind Ágústsdóttir
körfuboltakona er íþrótta-
garpur Feykis að þessu sinni
Fullt framundan
BLS. 4
1238: The Battle of Iceland
tekur til starfa á Sauðárkróki
Lilja opnaði
sýninguna með
sverðshöggi
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
BORGARFLÖT 19 550 SA ÐÁRKRÓKUR & 8 9 5 27
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.is
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU
Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100
www.ommukaffi.is
Heimilisiðnaðarsafnið
á Blönduósi
Sýning um íslensku
lopapeysuna á
safninu í sumarSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram
í þrítugasta sinn á laugardaginn
var, þann 15. júní, í blíðskaparveðri
um allt land. Frábær þátttaka var
í hlaupinu og gera má ráð fyrir að
um 10.000 konur hafi tekið þátt
á yfir 80 stöðum um allt land og
víða erlendis, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá Íþrótta- og
Ólympíusambandi Íslands.
Íbúar á Norðurlandi vestra létu sitt ekki
eftir liggja. Á laugardaginn var hlaupið
á Borðeyri, Blönduósi, Sauðárkróki,
Hólum og Hofsósi eftir því sem
Feykir kemst næst. Á Hvammstanga
var tekið forskot og ræst til hlaups
á miðvikudag en í Fljótum verður
hlaupið frá Sólgarðaskóla nk. föstudag
klukkan 10:30. Íbúar Dvalarheimilisins
á Sauðárkróki og notendur Dagdvalar
tóku nú þátt í hlaupinu í fyrsta sinn og
eftir góða upphitun fór myndarlegur
hópur í gönguferð, hver við sitt hæfi,
og fengu þátttakendur að launum
verðlaunapening úr hendi þeirra Árna
Bjarnasonar á Uppsölum og Halldórs
Hafstað í Útvík. /FE
Kvennahlaupið í þrítugasta sinn
Góð þátttaka í hlaupinu
Algengt er að ættliðir fari saman í Kvennahlaupið. Þessar þrjár konur komu samtímis í mark á Hofsósi. Ester Eiríksdóttir, lengst t.h. var elsti þátttakandinn þar, 75 ára gömul, en
hún hljóp léttilega í markið ásamt nöfnu sinni og sonardóttur, Ester Maríu Eiríksdóttur, og tengdadóttur, Kristínu Bjarnadóttur. MYNDIR: FE
Góð þátttaka var hjá íbúum Dvalarheimilisins og notendum Dagdvalar.
i j st íli i !
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
eirapróf - innuvélaná skeið
kuná - ndur enntun
irgir rn reinsson
kukennari
: 892-1790
bigh si net.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sí i 455 7171 nyprent nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
í
Við prentu striga yndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinu ý su st rðu og gerðu
Nýja lyftan á skíðasvæði AVIS í Tinda-
stól var formlega tekin í notkun sl.
sunnudag í upphafi afmælishátíðar
svæðisins því er fagnað þessa vikuna
að 20 ár eru síðan það var tekið í
notkun. Auk Sigurðar Bjarna Rafns-
sonar, formanns deildarinnar, hélt
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Svf.
Skagafjarðar, tölu og séra Sigríður
Gunnarsdóttir blessaði svæðið.
„Nýja lyftan var opnuð formlega og
frítt í fjallið, mjög góð aðsókn og veður-
guðir léku við okkur. Geggjað veður og
gott færi og það var ekki annað að sjá en
allir væru hamingjusamir með nýju lyft-
una,“ segir Sigurður Bjarni, ánægður
með vígsludaginn. Með tilkomu nýju
lyftunnar aukast skíðamöguleikar gríðar-
lega og jafnvel talið að skíðasvæð-ið
fjórfaldist að stærð. Opnun lyftunnar var
upphafið á mikilli skíðaviku í fjallinu sem
endar með gönguskíðamóti um helgina.
„Þetta var eins góður dagur og
mögulegt var. Það hjálpaðist allt að, gott
veður, gott færi og frábær snjór um
allan Stólinn og þó víðar væri leitað.
Það gekk bara allt upp, í einu orði sagt
dásamleg r dagur,“ segir Viggó Jóns-
son, staðarhaldari skíðasvæðisins en
hann er að klára sína síðustu viku í starfi
framkvæmdastjóra skíðadeildarinnar.
Hann segir að nú sé verið að reyna að
peppa fólk upp á gönguskíðunum og í
tilefni af því verður brottfluttur skíða-
garpur fenginn til að kenna. „Við verð-
um með engan annan en Sævar
Birgisson, Ólympíufara, til að kenna á
gönguskíði á fimmtudag og föstudag og
svo verður Tindastólsgangan haldin á
sunnudaginn. Tindastólsgangan verður
skemmtiganga í sjálfu sér, ekki keppt
um sæti heldur á þetta að vera fyrir alla,
nokkurs konar gönguskíðaveisla,“ segir
Viggó sem stendur sínar síðustu vaktir
út vikuna. Hann hyggst stinga skóflunni
í skaflinn, eins og hann segir sjálfur og
líkir því við íþróttamennina sem setja
skóna á hilluna. „Ég er búinn að vera
viðloðandi skíðasvæðið síðan 1989
þannig að það er ágætt að rifa seglin og
hleypa nýju fólki að. Það er nauðsynlegt.
Það á allt sitt upphaf og sinn endi. Þetta
er búinn að vera dásamlegur tími og
frábært að koma þessu í þann farveg
sem það r í dag. Ég vona að fólk sé
ánægt og njóti þess að nota þetta frá-
bæra svæði,“ segir Viggó sáttur við guð
og menn.
Nýtt fólk í brúna
„Vissulega hefði maður viljað sjá meira
eftir sig, að það væri búið að koma
þessu á betri stall en það er alltaf þannig
að maður hefði viljað sjá þetta og hitt
búið, en svona er þetta bara.“
Hvað taki við segist Viggó líklega
finna sér eitthvað til dundurs og hnykkir
á því að líklega muni hann einbeita sér
betur að Drangeyjarferðum.
Skíðadeildin hefur sagt upp samn-
ingum við sveitarfélagið varðandi rekst-
ur svæðisins og segir Sigurður Bjarni
allt í lausu lofti ennþá en deildin muni
þó klára veturinn. Sagði hann samn-
ingana vera orðna þannig að ekki sé
hægt að vinna eftir þeim. Auk þeirra
Sigurðar Haukssonar, sem tekur við
troðaranum, og Rakelar Steinþórsdóttur
sem tekur við framkvæmdastjórastöð-
unni, hafa verið ráðnir fjórir lyftuverðir
á skíðasvæðið. /PF
„Þetta var eins góður dagur og mögulegt var“
Nýja lyftan á AVIS skíðasvæðinu í Tindastól vígð
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
Það gekk bara allt upp, í einu orði sagt dásamlegur dagur,“ segir Viggó Jónsson, staðarhaldari skíðasvæðisins þegar hann var inntur eftir vígsludeginum. .
MYND: VIGGÓ JÓNSSON