Feykir


Feykir - 05.02.2020, Page 2

Feykir - 05.02.2020, Page 2
Yrki ég einn í sandinn, aldan stafina þvær. Horfnir háværir leikir, hláturinn nú er fjær. Fjörubyggingar fallnar, flóðið sléttaði þær. En sandurinn er hinn sami, sandurinn frá því í gær. Hafið úr botninum brýtur björgin í fjörusand. Bylgjurnar slípa brotin og bera síðan á land. Klettarnir hverfa að lokum, en kærleikans silfurband, bindur eilífð við eilífð, ekkert því vinnur grand. Þetta ljóð Hilmis Jóhannessonar er að finna í ljóðabók hans frá 2012, Ort í sandinn. Nú er Hilmir allur og langar mig að nota leiðarann að þessu sinni til að minnast manns sem lífgaði upp á samfélagið með gleði og gamanyrðum og gerði alla betri í kringum sig. Ég kynntist Hilmi fyrir rúmlega 30 árum, þegar ég var að stíga mín fyrstu spor á leiksviði Bifrastar. Á þeim tímum var hann fenginn til að skrifa revíur fyrir Ungmennafélagið Tindastól og fékk hann mig til að vera með. Mér fannst hann taka mér sem jafningja þó aldursmunurinn væri þó nokkur. Þetta var skemmtilegur tími og Hilmir kátur og hress eins og var hans eðli, ávallt með gamanyrði á vörum og oft í bundnu máli. Allir andlitsdrættir tóku þátt í því að mynda breitt brosið, ekki síst augun sem nánast ultu úr augntóftunum að manni fannst. Hann sagði skemmtilega frá og dró ekkert undan til að gera atburðarásina kómískari og oft var hann í því hlutverkinu sem grínið beindist að. Hilmir var mjólkurfræðingur að mennt, fæddur á Húsavík en settist að á Sauðárkróki eftir búsetu í Borgarnesi. Hann var gjaldkeri sjúkrasamlags á Sauðárkróki, síðast bókavörður við sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Eftir það sagðist hann vera kominn á botninn sem lægst settasti maður á Íslandi. Hann væri nefnilega aðstoðarmaður dagmóður en þær þættu ekki hátt skrifaðar í þjóðfélaginu, hvað þá aðstoðarmenn þeirra. Þarna átti hann við sína hægri hönd og styrku styttu á hans ævivegi, eiginkonuna Huldu sem starfaði lengi við að gæta barna á Sauðárkróki. Ég gæti trúað að hún hafi átt mikinn þátt í því að aldan máði ekki allt það sem ort var í sandinn – enda minnist Hilmir á leikni Huldu í ritvinnslu á baki ljóðabókar sinnar og sagðist aldrei hafa kunnað á neitt nema blýant. Hilmir skrifaði og gaf út tvær bækur, skáldsöguna Gollar 2011 og ljóðabókina Ort í sandinn 2012. Níu leikverk sendi hann frá sér: Sláturhúsið Hraðar hendur, fyrst sett upp á Borgarnesi árið 1968, en seinna farandsýning leikhópsins Emelíu. Umf. Tindastóll sýndi leikritið á Sauðárkróki árið 1978. Ósköp er að vita þetta, samið árið 1971. Gullskipið kemur, samið árið 1974, sýnt af Leikfélagi Akureyrar. Karlmenningarneysla, Verkakvennafélagið Aldan setti upp á Sauðárkróki árið 1975. Hinn þögli meirihluti, UMFT setti upp á Sauðárkróki 1983. Hvað helduru mar (revía), tónlist eftir Geirmund Valtýsson. UMFT setti upp á Sauðárkróki 1988. Það sem aldrei hefur skeð (revía), Tónlist eftir Geirmund Valtýsson. UMFT setti upp á Sauðárkróki 1990. Tímamótaverk, Leikfélag Sauðárkróks setti upp 1991. Trítill, samið með Huldu Jónsdóttur, tónlist eftir Eirík Hilmisson. Leikfélag Sauðárkróks setti upp árið 1997. Um leið og ég þakka góð kynni af skemmtilegum karli votta ég aðstandendum alla mína samúð. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Ort í sandinn Brúðuleikverkið Handbendi Sæhjarta frumsýnt á Hvammstanga Brúðuleikhúsið Handbendi frumsýnir verkið Sæhjarta eftir Gretu Clough í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 11. febrúar næstkomandi klukkan 20:00. Sæhjarta er einleikið brúðu- leikverk fyrir fullorðna og er það höfundurinn, Greta Clough, sem fer með hlutverk í verkinu. Leikstjóri er Sigurður Líndal, tónlist og hljóðmynd eru í hönd- um Júlíusar Aðalsteins Róberts- sonar og Egill Ingibergsson sér um leikmynd og lýsingu. Í Sæhjarta er sögð margslungin furðusaga konu með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbund- ins leikhúss, segir í fréttatilkynn- ingu frá Handbendi. Verkið endurskapar og endurvekur gömlu sagnirnar um urturnar sem komu á land og fóru úr selshamnum til að búa og elska meðal manna. Verkið er ekki ætlað börnum undir 16 ára að aldri þar sem það inniheldur atriði og lýsingar á kynlífi, ofbeldi og nekt. Sæhjarta verður einnig sýnt í Tjarnarbíói í Reykjavík dagana 14., 19. og 27. febrúar. Sýningarnar hefjast allar klukkan 20:00. /FE Áburður lækkar í verði Allt að 14,5% lækkun Verðskrá íslenskra áburðarinnflytjenda lækkar umtalsvert milli ára sem skýrist fyrst og fremst af lækkun á áburði á erlendum mörkuðum. Alls eru fimm aðilar sem flytja inn áburð þetta árið og boða allir breytingar á verði. Meginplöntunæringarefnin í áburði eru aðeins þrjú: köfnunarefni (N), fosfór (P) og kalí (K) og þarf að bera árlega á tún til þess að ásættanleg uppskera náist. Fjölmörg önnur efni s.s. brenni- steinn (S), kalsíum (Ca), magnesíum (Mg) o.fl., eru nauðsynleg plöntum en misjafnt er eftir aðstæðum hvort eða hversu mikið þarf að bera á af þeim, eftir því sem fram kemur á Bóndi.is. Nokkur verðmunur er á milli tegunda og segir Björn Magni Svavarssonar, sölumaður hjá KS, að munurinn liggi í þeim efnum sem í áburðinum er. „Við höfum aðallega verið með 13 tegundir og einnig boðið upp á kalk og skeljasand. Sá gæða áburður sem KS selur undir nafninu Græðir, er bæði fjölkorna og einkorna áburður.“ Að sögn Björns Magna hefur áburðarverð lækkað hjá þeim milli ára allt að 14,5%. Hann segir það skipta miklu máli að geta verið í nánu sambandi við bændur með þeirra óskir um innihald á tegundum en þeir fylgist vel með, skoði heysýni og breyti áburðavali ef þeir telja þess þurfa. Hann segir flesta bændur búna að ganga frá pöntunum en von er á áburði um mánaðamótin mars apríl. /PF Sex bátar lögðu upp á Skagaströnd í liðinni viku og var samanlagður afli þeirra tæp 23 tonn. Á Sauðárkróki var landað rúmum 352 tonnum úr þremur skipum og á Hvammstanga landaði einn bátur, Harpa HU 4, tæpum fimm tonnum. Heildarafli vikunnar á Norður-landi vestra var 379.764 kíló. /FE Aflatölur 26. jan.– 1. feb. 2020 á Norðurlandi vestra Heildaraflinn 380 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 103.467 Jóhanna Gíslad. GK 557 Lína 78.724 Málmey SK 2 Botnvarpa 169.917 Alls á Sauðárkróki 352.108 SKAGASTRÖND Auður HU 94 Landbeitt lína 1.612 Bergur sterki HU 17 Lína 3.070 Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 5.578 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 1.603 Onni HU 36 Dragnót 6.621 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 4.229 Alls á Skagaströnd 22.713 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 4.943 Alls á Hvammstanga 4.943 MYND: HANDBENDI BRÚÐULEIKHÚS Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki | Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum 2 05/2020

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.