Feykir


Feykir - 05.02.2020, Qupperneq 8

Feykir - 05.02.2020, Qupperneq 8
Í þessari grein langar mig til að taka smá sveig í umfjöllun minni um sögu og þróun hestamennsku og keppni á hestum hér á landi og víkja ögn að þróun reiðfatnaðar. Ekki ætla ég hér að fara djúpt í efnið eða að hverfa langt aftur í tímann en í hinni stórfróðlegu bók Þórðar Tómassonar í Skógum, Reiðtygi á Íslandi um aldaraðir, sem út kom hjá Máli og mynd árið 2002, er gamla tímanum gerð góð skil og mun ég síðar víkja að því og gera þessu efni frekari skil. Enda er það svo víðfeðmt að ekki verður afgreitt í einni stuttri grein. Núna langar mig hins vegar til að tæpa á fáeinum seinni tíma sögupunktum. Áður en lengra er haldið vil ég þó vitna í eftirfarandi upphafsorð kaflans „Fararbúnaður af ýmsum toga“ í téðri bók eftir Þórð í Skógum, þar segir: „Gamlar heimildir og gamlar myndir bera því vitni að fólk fyrri tíða átti sér sérsaumuð reiðföt og reyndar hafa nokkur þeirra borgist fram á þennan dag. Um aldir hafa þau borið blæ af klæðasniði annarra þjóða, því menning þjóðarinnar var lengst af með einum eða öðrum hætti innflutt.“ Lokaorðið í málsgreininni, innflutt, er lykilorðið í þessu samhengi, íslensk menning, og þá á sama hvaða sviði er, rís hæst eflist hún í krafti erlendra áhrifa. Í sambandi við innflutning vöru hingað til lands er rétt að hafa í huga að hann var lengi vel í takt við þá háttu sem á voru hjá nágrannalöndum okkar hvað verslunarstefnu áhrærði og réðist af kaupgetu almennings allt þar til fram á síðustu öld kom, þ.e. tuttugustu öldina. Á síðari hluta nítjándu aldar og allt fram að fyrri heimstyrjöld sveif mikill frjálslyndis- andi yfir vötnum heimsviðskiptanna og mikill hagvöxtur ríkti. Vitaskuld réði kaupgeta hvers og eins hvað fólk gat leyft sér en ýmsir, bæði menn og konur, voru mjög svo hoffmannlega búin á hestbaki og í reiðfatnaði sem sýnilega var fenginn erlendis frá. Var klæðnaðurinn ekki einungis fagur og hátískulegur heldur og skjólgóður, þó stundum brigði til beggja átta með það, en svo segir gamall málsháttur: „Fár kann sig í fögru veðri heiman að búa.“ Um hremmingar þær sem á dundu í tengslum við fyrri heimsstyrjöldina en þó einkanlega kreppuna miklu sem hófst 1929 og var mjög langvinn, má víða lesa í bókum; fræðiritum, fjöl- mörgum ævisögum og skáldsögum s.s. í Sjálfstæðu fólki eftir Laxness. Fræðimenn telja skýringanna á því hversu langvinn kreppan varð að leita í röngum aðgerðum til að vinna bug á henni en aðgerðirnar fólust mest í ýmiskonar aðhaldsaðgerðum og versl- unarhöftum. Óvíða varð kreppan langvinnari en hér á landi og hið svo- kallaða haftatímabil stóð yfir samfellt frá 1931 til 1960 eða í allt að 13 árum lengur en í nokkru nágrannalandi okkar og enn lengur gætti áhrifa þeirra í landinu. Um þessa sögu alla má fræðast í bókinni Þjóð í hafti, eftir Jakob F. Ásgeirsson sem út kom hjá AB árið 1988. Haftabúskapurinn hafði áhrif í stóru sem smáu, þannig höfðu inn- flutningshöftin meira að segja áhrif á jafn smátt svið í heildarsamhenginu og reiðbúnað allan. Þegar skoðaðar eru myndir frá þessu tímabili er algengt að sjá fólk klætt upp á séríslenska vísu en líka margt mjög smekklegt. Ekki var þó allt neikvætt, þannig viðhélst klæð- skeraiðnaður og fataframleiðsla varð til. Þannig eru til glæsimyndir af knöpum í alfatnaði sérsaumuðum hér á landi; reiðjakki og buxur úr alullar- efnum en fyrir tíma teygjuefnanna þannig að pokinn þurfti að vera til staðar á buxunum til að þær þjónuðu tilgangi sínum. Vil ég hér koma á framfæri beiðni þess efnis til lesenda að ef nokkur þeirra veit til að leynist inni í fataskáp slíkur reiðfatnaður að hafa samband við mig. Slíkt væri kærkomin viðbót við safnkost Sögusetursins. Um stígvél eða skó og nokkuð um yfirhafnir Þegar ég var strákur að alast upp norður á Akureyri minnist ég þess vel að þá var fólk búið á allan mögulegan hátt á hestbaki. Inn á milli fólk mjög vel til haft þegar það átti við, s.s. í reiðfötum þeim er ég lýsti hér á undan eða í annars konar jökkum og reið- buxum, gegnum gangandi í pokabux- um en pokinn mismikill. Stígvél voru allsráðandi, oftast gúmmístígvél og yfirleitt af gömlu þekktu merkjunum, s.s. Nokia og Víking sem stóðu reyndar mjög föstum fótum fyrir norðan, þá þótti flott að vera í háleistum sem iðulega var brett upp yfir stígvélin. Svo komu Aigle-stígvélin með þrönga bolnum um kálfann! Enginn þótti maður með mönnum nema að vera í Aigle-stígvélum, jafnvel í smala- mennskum og víðar þar sem þau hentuðu alls ekki en þau voru svo flott og létu sér í léttu rúmi liggja máls- háttinn áður nefnda; fár kann sig í fögru veðri heiman að búa. Reiðskór þekktust ekki en leðurstígvél voru til en ekki algeng. Yfirhafnir voru ýmiskonar og tölu- vert um að menn riðu út í vinnugöllum. Margir stórhestamenn, s.s. atvinnu- tamningamenn o.fl. sem riðu mikið út í misjöfnu veðri voru í gæruúlpunni frábæru frá VÍR, ekki þótti þetta flottur klæðnaður eða mikill viðhafna- klæðnaður á þeim tíma og voru úlpurnar kallaðar ýmsum nöfnum sem ég hygg að ýmsir minnist, en vegur þessarar flíkur átti aldeilis eftir að aukast, verða tískuklæðnaður á hippaárunum og fyrirtækið sem fram- leiddi að sigla í gegnum brotsjó á bæði borð og fara að framleiða á alþjóðlegan markað útvistar- og tískuklæðnaðar og heitir í dag 66°Norður. Smekkfólk var svo í fyrrnefndum klæðskerasaum- aða reiðfatnaðinum á tyllidögum eða þá í stökum jökkum ýmiskonar við reiðbuxurnar, sjaldan þó eiginlegum sérsaumuðum reiðjökkum þegar ég man fyrst eftir. Þáttaskil urðu þó fljótlega hvað þetta varðar en árið 1970 var Félag tamningamanna (FT) stofnað. Var það fyrst félaga til að taka upp samstæðan félagsbúning. Kveikti þetta almenna viðleitni til að klæðn- aður hestamanna yrði snyrtilegur og samstæður; á næstu árum þar á eftir voru félagsbúningar teknir upp í hestamannafélögum um land allt. Fljótlega varð jakki í sniði sem kallað er enskur reiðjakki algerlega ofan á en í millitíðinni voru sums staðar gerðar tilraunir með peysur og skikkjur. Jafnframt tóku reiðbuxurnar stakka- HESTAR OG MENN Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins Fáein orð um reiðfatnað Mynd frá landsmótinu á Vindheimamelum 1974. Til vinstri er Núpur frá Kirkjubæ, sigurvegari í flokki alhliða gæðinga á mótinu, setinn af eiganda sínum Sigurfinni Þorsteinssyni klæddum í félagsbúning FT að vísu ekki með rautt bindi, þess í stað með klút. Til hægri Jóhann Friðriksson í Kápunni afar smekklega klæddur í brúntóna sjatteringu, buxurnar drappleitar og reiðstígvélin brún leðurstígvél. Hesturinn sem Jóhann situr er óþekktur en gæti verið afkvæmi Blesa frá Núpakoti (577) eins og Núpur sjálfur en Blesi var sýndur með afkvæmum á mótinu og hlaut Sleipnisbikarinn. LJÓSMYND ÚR SAFNI SÍH, LJM.: FRIÐÞJ. ÞORKELSSON. Mynd frá landsmótinu á Vindheimamelum 1982. Lengst til hægri er sigurvegari í flokki klárhesta með tölti á mótinu, Hrímnir frá Hrafnagili, setinn af eiganda sínum Birni Sveinssyni klæddum í félagsbúning en til vinstri er Vængur frá Kirkjubæ sem varð í öðru sæti, setinn af eiganda sínum Jóhanni Friðrikssyni í Kápunni. Jóhann er þarna kominn í skóbuxur og reiðskó, íklæddur reiðstakk með derhúfu, allt í eigin stíl LJÓSMYND ÚR SAFNI SÍH, LJM.: JÓN TR. STGR. 8 05/2020

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.