Feykir


Feykir - 25.03.2020, Síða 7

Feykir - 25.03.2020, Síða 7
sem voru haldin, sem mér finnst kannski vanta að við gefum okkur tíma til í dag. Saumanámskeið, prjónanám- skeið og svo var vinnuvakan þannig að þær fóru helgi í Löngumýri og saumuðu þar og útbjuggu fyrir basarinn í lokin,“ segir Ásbjörg og er þar að vísa í vinnuvöku Sambands skag- firskra kvenna en þá koma öll félögin í Skagafirði og vinna saman. Ingibjörg minnist þess að á saumanámskeiðunum hafi félagar saumað sér sparikjóla og fermingarkjóla á dæturnar og alls konar annað fínt, enda ætíð fenginn góður kennari. Eins og sést á upptalningu viðfangsefna upphafsáranna hafa mörg framfaramál verið sett á oddinn og ávallt þurft að afla tekna og málefnin breyst í takti við tíðarandann. „Já, það hefur alltaf þurft að afla peninga. Meðal annars vorum við með kartöflugarð og settar niður kartöflur sem voru svo seldar. Svo var verið að halda kökubasara og spilavistir, sem haldnar voru nokkuð oft, og svo seldum við jólakort. Svo höfum við séð um erfidrykkjur fyrir Nesbúa og ýmsar kaffiveislur og jafnvel bakað laufabrauð og selt. Þetta er það sem mest var á döfinni þá,“ segir Ingibjörg, sem gekk í félagið árið 1971. „Við vorum að afla peninga til að geta gefið í líknar- og menningamál en við reyndum að gefa í góð málefni. Okkur voru oft send bréf með beiðni um styrk í hin ýmsu mál og sem ennþá er gert,“ segir Ingibjörg og nefnir að t.d. hafi Heilbrigðisstofnunin alltaf notið góðs af. Ásbjörg bætir við að hún eigi þá æskuminningu í kringum jólin að þegar kvenfélagsfundir voru haldnir var farið með smákökurnar af bænum til að leyfa öðrum að smakka. „Þú getur ímyndað þér hvernig það var sem krakki þegar smá- kökurnar fóru,“ segir hún hlæjandi en bætir við að það hafi nú ekki verið klárað úr baukunum svo jólunum var bjargað. Hún segir kvenfélagið alltaf hafa haldið jólaböll og súkkulaðiveislu sem fylgdi því og þá hafi þær fengið hjálp frá eiginmönnum í jólasveinavinnu. Þrátt fyrir mikla og góða starfsemi í gegnum árin hjá Kvenfélagi Rípurhrepps hefur það einnig gengið í gegnum erfiða tíma. Þannig fór að starfsemi þess minnkaði það mikið að hún lá nánast í dvala á árunum milli 1930 og 1950. Árið 1951 var síðan blásið í glæðurnar og félagið reist við á ný og fundur haldinn að Hamri þar sem um 15 konur mættu. Þær Ásbjörg og Ingibjörg segja að auðvitað hafi þetta alltaf verið sama félagið. „Það hætti ekki, starfsemin lá bara niðri á tímabili,“ segja þær. Á þessum endurreisnartíma var ákveðið að kaupa spunavél sem mikið var notuð en slík vél er ætluð til að spinna þráð og tók við af rokkunum. „Ég man þegar ég var að fara út eftir með mömmu að spinna en vélin var þá staðsett á Svanavatni. Hún var mikið notuð til að spinna svokallað eingirni, fínt ullar- garn, sem notað var m.a. í prjónaföt. Þar var prjónað ýmislegt m.a. nærföt á karlana, skyrtubolir sem maður var í sem krakki. Þær áttu prjónavél heima, mamma og Sigga móðursystir mín, og prjónuðu helling á þá vél. Ég held að þessi spunavél hafi þótt þarfaþing,“ segir Ingibjörg. Það var svo um 1970 sem ráðist var í byggingu félagsheimilis í Hegranesinu og að sjálfsögðu tók kvenfélagið þátt í því og eignaðist 10% í húsinu. Starfsemin öflug í dag Á tímum allsnægta og of- framboðs á hvers kyns af- þreyingu mætti ætla að starfsemi kvenfélaga ætti erfitt uppdráttar en þær Ásbjörg og Ingibjörg eru ekki sammála því. Starfsemi Kvenfélags Rípur- hrepps stendur í miklum blóma og næg verkefni. M.a. eru haldin ýmis námskeið, jólaballið á sínum stað og Vinnuvaka SSK svo eitthvað sé nefnt. Þá er einnig farið á dvalarheimilið reglulega og heilsað upp á fólk. „Við förum með ís og ávexti og syngjum og reynum að skemmta heimilisfólkinu. Kvenfélögin í Skagafirði skiptast á um að gera þetta einu sinni í mánuði. Fólkinu finnst þetta virkilega gaman og við leyfum yngri börnunum að koma með okkur og það gleður þau líka,“ segir Ingibjörg. Í tilefni tímamótanna nú, segir Ásbjörg félagsmenn ætla að lifa, njóta, borða og dekra við sjálfa sig meðfram fjáröflunar- verkefnum. „Við vorum með jólaball og í tilefni afmælisins var öllum sveitungum boðið sérstaklega. Oft er það þannig að þeir koma bara sem eiga börn en núna var mjög vel mætt og flestallir sveitungar, sem ætla ekki að missa af þessu aftur. Þetta var mjög góð stund. Það var veislukaffi og fólk sat og spjallaði og náttúrulega dansað í kringum jólatré og skemmtilegir jólasveinar komu í heimsókn,“ segir Ásbjörg. Hún nefnir fleira sem er á döfinni en líklega verða einhverjar breytingar, alla vega frestanir á einhverjum verk- efnum vegna COVID-19, þar sem ýmislegt hefur breyst í samfélaginu frá því viðtalið var tekið upp. Meðal þess er markaður sem settur var á dagskrá sumardaginn fyrsta, 23. apríl, með sumarkaffi og fleiru. Lifa, njóta, borða Til þess að hvert félag haldi lífi þarf endurnýjun félagsmanna og það hefur Kvenfélag Rípurhrepps þurft að reyna líkt og sagt er frá hér fyrr í greininni þegar starfsemin var í láginni fyrir miðja síðustu öld. Fyrir átta árum stóð félagið frammi fyrir svipuðum aðstæðum og munaði litlu að það hefði lognast útaf. „Við vorum að verða svo fáar og margar orðnar gamlar. Við sáum ekki annað en að þetta félag yrði svæft á ný, ef ekki kæmu yngri konur inn. Það var gerð gangskör að því að athuga hvort ekki væri hægt að fá einhverjar konur til að ganga í félagið,“ segir Ingibjörg, „Og þær flykktust bara margar í félagið, ungar konur, þannig að þetta tók kipp á ný.“ Þær stöllur eru sammála blaðamanni um það að aftur séu þeir tímar að koma að konur séu tilbúnar að ganga í kvenfélög. „Fólk vill að þessi félög starfi og þau mega bara ekki leggjast niður,“ segir Ingibjörg og Ásbjörg kinkar kolli til samþykkis. „Þetta er mikið að lifna við aftur og margar konur að taka þátt og ég held að fólk verði áfram í kvenfélagi. Ég held að kvenfélög haldi áfram að vera eins konar líknarfélög sem styrkja góð málefni en líka að starfsemin verði meira félagslegt, að hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman, ekki bara að baka og vera að selja,“ segir formaður- inn. Í dag telur Kvenfélag Rípur- hrepps16 konur og segir Ás- björg pláss fyrir fleiri. En þurfa félagsmenn að tengjast eða búa í Rípurhreppi? „Nei, alls ekki. Það eru allir velkomnir að lifa, njóta, borða!“ segir hún brosandi og vill hvetja áhugasamar konur til að hafa samband við sig eða aðra í stjórninni ef áhugi er til að gerast félagskonur. Með Ás- björgu sitja í stjórn, Edda María Valgarðsdóttir, en þær systur eru einmitt afkomendur Sigur- laugar Gunnarsdóttur, stofn- anda félagsins, og Steinunn Arndís Auðunsdóttir, sú eina í stjórninni sem býr í Hegranesi. félagsins í yfir 20 ár. Þær eru sammála um það að frum- kvöðlarnir hafi verið stórhuga og framsýnar konur og hljóta að hafa verið kraftmiklar. „Ég hef gluggað mikið í fundagerðarbækur allt frá 1952 og finnst gaman að lesa hvað var gert. Öll þessi námskeið Frá aðalfundi sem haldinn var í Áshúsi í febrúar sl. en það var byggt á árunum 1883-1886 í Ási í Hegranesi og flutt að Glaumbæ árið 1991. Hjónin Sigurlaug Gunnarsdóttir og Ólafur Sigurðsson, sem byggðu húsið, stóðu oft fyrir námskeiðum í Ási, bæði fyrir stúlkur og drengi og héldu skagfirska kvennaskólann á heimili sínu 1877, fyrsta árið sem hann starfaði. Markmiðið með byggingu hússins var einmitt að hýsa skólann þar, en af því varð þó ekki. Búið var í húsinu til 1977. Þá höfðu fjórar kynslóðir sömu fjölskyldu búið þar, segir í texta um húsið á vef Byggðasafns Skagfirðinga. Á myndinni eru þær Steinunn Arndís Auðunsdóttir, Edda María Valgarðsdóttir, Elín Petra Gunnarsdóttir, Ragnheiður (Hebba) Ólafsdóttir, Embla Björnsdóttir, Sigurlína Erla Magnúsdóttir, Hildur Þóra Magnúsdóttir, Ásdís Helga Arnarsdóttir og Ásbjörg Valgarðsdóttir en á bak við hana má sjá búninginn fræga sem Sigurlaug, stofnandi félagsins, saumaði á sínum tíma. Hér eru þær systur Jónína og Sigríður Sigurðardætur á saumanámskeið sem haldið var á Egg 1965. Með þeim er Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Hamri. Prúðbúnar konur á afmælishátíð árið 1976 en þá var haldið upp á það að 25 ár voru frá því að félagið var reist við á ný eftir tveggja áratuga svefn. F.v. Jónína á Egg, Edda í Ási, Sigríður á Svanavatni, Lauga á Kárastöðum, Sólveig á Ríp, Salbjörg í Eyhildarholti, Sigrún á Hamri og Sigríður á Hamri. Þær tvær sem eru á bak við eru þær Kristín í Keldudal og Ingibjörg í Ketu. Minnst var þess er 50 ár voru liðin frá endurvakningu Kvenfélagsins í Nesinu og komu félagskonur saman af því tilefni. F.v. Sigríður Jónsdóttir, Ingibjörg Jóhannes- dóttir, Sólveig Júlíusdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Sigurbjörg Valtýsdóttir, Sigrún Hróbjartsdóttir, Jónína Sigurðardóttir og Ragna Hróbjartsdóttir. 12/2020 7

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.