Feykir


Feykir - 25.03.2020, Side 8

Feykir - 25.03.2020, Side 8
þeirra kvenna sem ekki hafa þann möguleika að koma sér hratt og örugglega á næsta fæðingarstað. Sú tilhugsun að sitja í bíl með hríðar og þurfa að ferðast yfir Öxnadalsheiði í misjöfnu veðri þegar þú ert komin af stað í fæðingu er langt frá því að vera óskastaða, en þetta er sú heilbrigðisþjónusta sem við búum við í dag. Þótt margt sé betra við að búa úti á landi þá er ég ákaflega fegin því að hafa ekki þurft að ferðast alla þessa vegalengd með hríðar og koma mér svo aftur heim með nýfætt barn að vetrarlagi þegar allra veðra er von. Ég dáist að þeim konum sem þurfa að leggja slíkt á sig, þær eiga hrós skilið. Í frítíma okkar reynum við fjölskyldan að vera dugleg að njóta þeirrar fegurðar sem landið hefur upp á að bjóða. Heimahagarnir toga engu að síður alltaf í mann og nýt ég hverrar stundar vel sem ég get varið með fjölskyldunni í Skagafirði. - - - - - - Ég skora á Ragnhildi Sigrúnu Björnsdóttur sem næsta pistlahöfund. Heimahagarnir toga ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is Sauðárkrókur er lítill og rólegur bær sem ég var svo heppin að fá að alast upp í. Ég er fædd og uppalin á Sauðárkróki en þegar ég var á átjánda ári pakkaði ég í tösku og flutti suður. Að flytja frá heimavelli voru mikil viðbrigði fyrir mig en aftur á móti hefur borgarlífið einhvern veginn alltaf átt vel við mig. Það voru mikil forréttindi að fá að alast upp úti á landi og eyða barnæskunni þar. Núna, þegar ég er nýorðin móðir þá hugsa ég oft til þess hvort væri ekki málið að flytja aftur heim, jú ég vil auðvitað að barnið mitt fái að upplifa það sama og ég, þau forréttindi að fá að alast upp í náttúrunni. Ég hef komið mér vel fyrir ásamt manninum mínum í einu af úthverfum Reykjavíkur nánar tiltekið Úlfarsárdal. Úlfarsárdalur minnir mig oft á það að búa á Króknum, lítið og rólegt hverfi þar sem stutt er í náttúruna. En þrátt fyrir það finn ég hvað mest fyrir fjarlægðinni, fjarlægðinni frá fjölskyldunni nú þegar ég er að ala upp mitt fyrsta barn. Ég hugsa til systra minna sem áttu sín börn fyrir norðan með foreldra mína í næsta húsi og gestir á hverjum degi sem kíktu við í eins og einn kaffibolla með litlum sem engum fyrirvara. Hér í höfuðborginni er annar bragur á heimsóknum, fólk hringir á undan sér og boðar komu sína í heimsókn með fyrirvara enda um meiri fjarlægðir að ræða þar sem það tekur lengri tíma að koma sér á milli staða. En að öðru. Í gegnum tíðina hefur sá orðrómur einkennt Reykjavík að það sé ekki spennandi að eignast börn í Reykjavík. Eins og kom fram hér að framan þá eignaðist ég nýlega mitt fyrsta barn og fékk því að kynnast því sjálf hvernig það er að eiga og ala upp barn í Reykjavík en uppeldi og fæðing eru tveir ólíkir þættir. Að eignast barn er dásamleg upplifun í alla staði, ég var einstaklega heppin og átti dásamlega fæðingu þar sem ég var komin á fæðingardeildina skömmu eftir að ég yfirgaf heimili mitt. Þegar ég hugsa til baka þá hefur það tekið mig um tíu mínútur að komast á fæðingardeildina. Eftir þessa upplifun mína af fæðingu í Reykjavík get ég ekki annað en hugsað heim á Krók til Pála Rún með manni og barni. AÐSEND MYND Pála Rún Pálsdóttir brottfluttur Króksari Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is 8 12/2020 Heilir og sælir lesendur góðir. Það er sá ágæti Þormóður Pálsson sem er höfundur að fyrstu vísunni að þessu sinni. Helgimyndir heimskunnar hyllir blindur fjöldinn. Svo fer yndi æskunnar allt í syndagjöldin. Nú fyrir stuttu sá ég á prenti í blaði ágæta vísu sem ég hef kunnað mjög lengi, er hún þar sögð eftir Böðvar Bjarkason. Aldrei hef ég, svo muni til, heyrt vísur eftir þann mann en ef mig misminnir ekki hrapalega er sú umrædda vísa eftir okkar góða húnvetnska vin og snjalla hagyrðing, Bjarna frá Gröf. Bið ég lesendur að gefa mér upplýsingar þar um ef þeir kunna vísuna. Öli hresstur ekki sést eins og prestur breyti. Nú er flest sem fannst mér best farið að mestu leyti. Fleira þarf vitna við lesendur góðir. Sé á prentuðu blaði í sama dóti aðra mjög kunna vísu. Er hún þar talin eftir Kristmann Guð- mundsson, finnst mér ég ekki muna fyrir víst að það sé rétt og bið um að fá frá lesendum staðfestingu á því, ef þeir þekkja vísuna. Gegnum lífið létt að vanda liðugt smó hann, nennti síðast ekki að anda og þá dó hann. Eins og flest allir vita eru oft hörð átök í pólitíkinni. Þegar andstæðingar Framsókn- arflokksins héldu því fram að hann væri með skottið á milli fótanna, greip Hjálmar Freysteinsson tækifærið og orti svo: Þetta gerir Framsókn flott fínn er þeirra siður. Ýmist reisir upp sitt skott eða leggur niður. Um svipað leyti var mikið rætt í fréttum um biluð klósett við Dettifoss. Af því tilefni orti læknirinn Hjálmar: Í veröld hér er varla að finna vandfengnara hnoss en að ganga örna sinna austur við Dettifoss. Enn kemur vafaatriði sem mig langar að vita meira um. Er þar um að ræða fallega vorvísu sem sögð er eftir Kristján Bjarnason. Finnst mér það ekki beint trúverðugt og bið enn um upplýsingar um höfund að henni, er vísan mér vel kunn og held að um misritun gæti verið að ræða. Vægir rosa og veðra þyt vermist flos á steini. Gegnum mosans gróðurlit guð er að brosa í leyni. Eina staka vísu fann ég í dótinu og er hún reyndar höfundarlaus. Tel mig muna fyrir víst að hún sé eftir Ágúst Sigfússon og mun hann þar vera að lýsa stúlkum sem honum varð starsýnt á á dansleik. Vísnaþáttur 756 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is Agn það gerist ýtum ljóst ævi sér þó stytti. Handlegg beran hafa og brjóst huldar eru um mitti. Vel er við hæfi á slíkum tímum og við nú lifum að rifja næst upp þessar vetrarvísur Ingólfs Ómars. Vetrar geisa veður stríð viknar fjallahringur. Þekur stalla, holt og hlíð hvítur mjallarbingur. Stjörnum prýdd er himinhöll helköld nóttin svarta. Glottir máni, glóir mjöll greinar hélu skarta. Að lokum þessi frá Ingólfi. Ungur dáði óðarkvak unni Grími og Páli. Nam ég þeirra tungutak tært í bundnu máli. Einhverju sinni var Kristján frá Djúpalæk beðinn um að yrkja afmælisvísu til forstjóra elliheimilisins á Akureyri fyrir hönd vistmanna. Kristján brást vel við og orti: Árum saman okkar þú ellistyrkinn hirtir. Hér við saman söfnumst nú sem þú ekki myrtir. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins héldu fund á Siglufirði um það leyti sem farið var að tala í alvöru um Héðinsfjarðargöng. Meðal þeirra var Halldór Blöndal, þá samgönguráðherra, taldi hann að hægt væri að byrja fljótt á verkinu. Séra Hjálmar Jónsson, sem einnig var á fundinum, mun þá hafa ort svo: Allt mun takast ef menn þora áhuginn kveikir bálið. Við skulum Halldór byrja að bora í bítið í fyrramálið. Þegar Ólafur Jens Sigurðsson, þá prestur í Borgarfirði, var að byggja sér hús, mun, að loknum erfiðum steypudegi, Jakob bóndi á Varmalæk hafa ort svo: Mótin fyllast meðan prestsins andi mætti þrunginn svífur yfir landi heiður og hreinn. Menn horfa á sín handarverk að lokum hér var steypt úr gríðar mörgum pokum utan um einn. Gleður okkur þá að ljúka með þessari ágætu vísu Jakobs, sem sumir töldu að ort hefði verið er Jón Baldvin lét af ráðherraembætti. Leitt er mjög en samt er satt að sumir geta bara vakið yndi og aðra glatt er þeir kveðja og fara. Veriði þar með sæl að sinni. /Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.