Feykir - 25.03.2020, Page 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Snúður
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvað finnst þér
um viðbrögð
íslenskra
ráðamanna við
COVID-19?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : frida@feykir.is
„Það er sjálfsagt endalaust hægt
að þrefa eitthvað yfir því. En ég
efast um að aðrar leiðir hefðu
verið betri.“
Eydís Magnúsdóttir
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Lifesavers er amerískt sælgæti, hringlaga brjóstsykur sem líkist
björgunarhring og er nafnið af því komið. Sælgætið er í áberandi
umbúðum, marglita og með ávaxtabragði. Clarence Crane í
Garrettsville, Ohio hóf framleiðslu þess árið 1912 sem „sumar nammi“
sem átti að þola hita betur en súkkulaði. Ótrúlegt, en kannski satt, þá
er heimsmetið í að halda brjóstsykurshringnum órofnum, í munni sér,
7 klst. og 10 mínútur.
Tilvitnun vikunnar
Maður er ekki gamall fyrr en eftirsjáin hefur
komið í stað draumanna. – John Barrymore
„Það er vissulega ekki ein rétt
leið í þessu. Það er mikilvægt
að setja reglur til þess að hefta
útbreiðslu Covids en veita
líka undanþágu ef í sumum
tilfellum þessi bönn gera illt
verra.“
Hlín Christiane Mainka
Jóhannesdóttir
„Ég er mjög sátt við fagleg
og yfirveguð vinnubrögð
stjórnvalda við þessari vá.“
Sjöfn Guðmundsdóttir
„Ég er mjög ánægð með hvernig
brugðist hefur verið við hér á
landi.“
Margrét Berglind
Einarsdóttir
Bakstur til afþreyingar
Marga vantar eflaust eitthvað til að hafa fyrir stafni þessa
samkomulausu daga sem nú ganga yfir. Fátt er eins róandi og að
sletta í form, eins og sagt er, að minnsta kosti ef allt gengur smurt
fyrir sig. Hér fylgja þrjár góðar uppskriftir sem eiga það
sameiginlegt að vera fremur auðveldar viðureignar og auk þess
er afraksturinn bara hinn bragðbesti.
BAKSTUR 1
Kotasælubollur
30 g smjör, brætt
50 g ger
5 dl volg mjólk
100 g kotasæla
1 tsk. salt
½ msk. sykur
3 msk. sesamfræ
650 g hveiti
1 egg
sesamfræ til skrauts
Aðferð: Látið gerið jafnast út í
volgri mjólkinni. Bætið smjöri,
salti og sykri út í. Blandið
sesamfræjum eða hörfræjum,
kotasælu og hluta af hveitinu út í.
Hrærið vel. Stráið hveiti yfir og
látið hefast undir klút á hlýjum stað
í 30-40 mín. Sláið deigið niður með
sleif. Hnoðið meira hveiti upp í
deigið en ekki öllu í einu þar sem
ekki er víst að þörf sé á því öllu.
Hafið deigið það blautt að það rétt
losni frá borðinu. Mótið bollur og
setjið þær á smurða bökunarplötu
og látið þær hefast undir klút í 15-
20 mín. Penslið bollurnar með
sundurslegnu eggi og stráið
sesamfræjum yfir. Bakið í u.þ.b. 12
mín. við 225°C.
Mjög góðar bollur með uppáhalds
ostinum eða góðu salati.
(Uppskriftin er fengin af vef
Mjólkursamsölunnar, ms.is)
BAKSTUR 2
Hrökkbrauð
1 dl graskersfræ
1 dl sesamfræ
1 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl hörfræ
3½ dl rúgmjöl
2 dl kalt vatn
1¼ dl ólífuolía eða önnur góð olía
1 tsk. lyftiduft
2½ tsk. Maldon salt
Aðferð: Allt sett í hrærivélarskál
og hnoðað eða hrært þangað til
blandan verður jöfn og þétt. Skipt
til helminga og hvor þeirra flattur
út þunnt með kökukefli og
bökunarpappír hafður undir og
ofan á. Síðan lagt á bökunarplötu.
Þar er deigið skorið í ferninga (t.d.
með pizzuhníf). Stærðin fer eftir
smekk.
Bakað við 200° hita í u.þ.b. 15-20
mínútur eða þangað til brauðið er
stökkt.
Kælt á ofnrist.
Ekkert mælir á móti því að prófa
sig áfram með að nota saxaðar
hnetur eða aðrar frætegundir ef
hlutföllum er haldið réttum. Eins
er kúmen tilvalið sem krydd í þetta
hrökkbrauð.
(Sótt á vef Leiðbeiningastöðvar
heimilanna, leidbeiningastod.is)
BAKSTUR 3
Bananakaka
100 g smjör eða smjörlíki
2 dl sykur
2 egg
4 dl hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
3 vel þroskaðir bananar
½ dl mjólk
Krem:
200 g rjómaostur, t.d. Philadelphia
50 g smjör eða smjörlíki
2 dl flórsykur
2 msk. kakó
Aðferð: Hrærið smjör og sykur
vel saman. Bætið eggjum út í, einu
í einu og hrærið á milli. Blandið
hveiti, matarsóda og lyftidufti við
og hrærið saman. Stappið banana
og bætið út í ásamt mjólk.
Hellið í smurt form og bakið
neðarlega í ofni við 175°C í u.þ.b.
45 mínútur.
Hrærið saman rjómaosti og smjöri
þar til áferðin er slétt. Blandið
flórsykri og kakói við og hrærið.
Smyrjið kreminu yfir kökuna.
Hægt er að skreyta með
bananasneiðum sé þess óskað.
Verði ykkur að góðu!
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) frida@feykir.is
Hrökkbrauðið. MYND AF NETINU
12/2020 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Snælduhala held ég um.
Harður er á snærunum.
Inni á rafali er á ferð.
Uppvafinn í kökugerð.