Feykir


Feykir - 20.05.2020, Side 2

Feykir - 20.05.2020, Side 2
Nýlega las ég tvær bækur sem áttu það sameiginlegt að vera spennusögur eftir íslenskar skáldkonur. Báðar voru þetta ágætis sögur, vel skrifaðar, spennandi og héldu mér vel við efnið. En þótt ég væri að flestu leyti mjög ánægð með þessar sögur lét ég sama hlutinn pirra mig í þeim báðum. Það var „gamla konan“. Í annarri sögunni fer lögreglan í heimsókn til „gömlu konunnar“ sem er móðursystir líksins í sögunni en það er fætt árið 1983. Í sögunni kemur fram að móðursystirin er á sama aldri og móðirin en hún hafði átt barn sitt frekar ung. Það segir mér að „gamla konan“ sé ekki mikið eldri en sextug. Mig minnir að inni hjá henni hafi verið gamalmennalykt, í það minnsta bauð hún upp á voða gamaldags kaffibrauð! Í hinni sögunni segir frá konu sem misst hefur son sinn. Þó hvergi komi nákvæmlega fram hvað konan sé gömul né hvað sonurinn var gamall þegar hann dó eða hve langt sé síðan það gerðist fór ég ósjálfrátt að reikna út hvað konan væri hugsanlega gömul. (Þó var ég ekki búin að lesa hina söguna þá svo hún hafði ekki áhrif á þessa reikniáráttu mína.) Ég komst að því að konan væri trúlega ekki eldri en sextug, jafnvel yngri. Samt sem áður var hún svo agalega gömul, bæði í orði og háttum og afskaplega þreytt og slitin og mæðuleg. Nú veit ég að í augum barna er sextugt fólk voða gamalt. Skáldkonurnar tvær eru þó engir unglingar, önnur rúmlega þrítug og hin að nálgast fimmtugt (og því rétt að verða gömul kona!). En ég hélt samt að fólk þyrfti að vera orðið örlítið eldra en sextugt til þess að rætt sé beinlínis um það sem „gamla fólkið“. Vissulega er aldur afstæður, árafjöldinn segir ekki allt og jafngamalt fólk er misellilegt jafnt í útliti sem anda. En eftir því sem við eldumst þurrkast aldursmunurinn út, við þroskumst og hættum að horfa á fólk út frá árafjöldanum sem það hefur lifað. En kannski er ástæðan fyrir þessum létta pirringi mínum sú að ég nálgast óðfluga umræddan aldur og vil auðvitað alls ekki viðurkenna að ég sé neitt svo voðalega gömul. Fríða Eyjólfsdóttir blaðamaður LEIÐARI Hvenær er kona gömul? Ekki var ofveiðinni fyrir að fara í síðustu viku en aðeins var landað 53.538 kílóum í höfnum á Norðurlandi vestra þá vikuna. Á Sauðárkróki lönduðu eingöngu handfærabátar sem voru samanlagt með rétt rúm 15 tonn og rúmum 38 tonnum var landað á Skagaströnd. Hvorki barst afli á land á Hofsósi né á Hvammstanga. /FE Aflatölur 10. – 16. maí 2020 á Norðurlandi vestra Lítil veiði í vikunni sem leið SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Badda SK 113 Handfæri 437 Blíðfari HU 52 Handfæri 456 Gammur II SK 120 Handfæri 834 Gjávík SK 20 Handfæri 2.056 Hafey SK 10 Handfæri 1.946 Hafsól SK 96 Handfæri 566 Kópur HU 118 Handfæri 284 Kristín SK 77 Handfæri 1.976 Loftur HU 717 Handfæri 443 Skvetta SK 7 Handfæri 999 Steini G SK 14 Handfæri 1.989 Vinur SK 22 Handfæri 2.335 Ösp SK 135 Handfæri 774 Alls á Sauðárkróki 15.095 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Handfæri 2.381 Blíðfari HU 52 Handfæri 1.402 Bogga í Vík Hu 6 Handfæri 626 Bragi Magg HU 70 Handfæri 810 Geiri HU 69 Handfæri 1.367 Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.454 Hafdís HU 85 Línutrekt 1.187 Hafrún HU 12 Dragnót 2.356 Hjalti HU 313 Handfæri 1.573 Hjördís HU 16 Handfæri 88 Hrund HU 15 Handfæri 2.094 Húni HU 62 Handfæri 819 Indriði Kristins BA 751 Lína 12.743 Kópur HU 118 Handfæri 743 Loftur HU 717 Handfæri 1.514 Onni HU 36 Dragnót 3.955 Sæunn HU 30 Handfæri 989 Viktor Sig HU 66 Handfæri 997 Víðir EA 423 Handfæri 1.345 Alls á Skagaströnd 38.443 Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Austur Húnavatnssýsla Bíll eyðilagðist í eldi Eldur kviknaði í bíl á Svínvetningabraut rétt við bæinn Kagaðarhól sl. sunnudag. Lögregla og slökkvilið fengu tilkynningu um eld í tengi- tvinnbíl um klukkan hálf þrjú og var mikill eldur og reykur í bílnum. Enginn slasaðist í eldinum. Húni.is greinir frá því að Ingvar Sigurðsson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Austur- Húnvetninga hafi sagt í samtali við Ríkisútvarpið að bíllinn hafi verið alelda frá upphafi og út frá honum barst eldur í sinu. Annar bíll hafi verið upp við þann sem kviknaði í en honum var forðað áður en eldurinn náði í hann. /PF Örsláturhús að veruleika Tilraunir með heimaslátrun í haust Hópur áhugafólks um lögleiðingu örsláturhúsa á Íslandi átti fund með Kristjáni Þór Júlíussyni, landbúnaða- rráðherra, og starfsfólki ráðuneytisins á dögunum þar sem fram kom vilji hins opinbera til að koma að tilraunaverkefni heima- slátrunar í haust. Fram kemur á Facebook- síðunni Við Styðjum Örslátur- hús að fundurinn hafi verið mjög fínn en endanlegt skipulag liggur enn ekki fyrir. „Við höfum lagt áherslu á að sem flestir geti verið með og að ekki séu gerðar stífar kröfur um aðstöðu. Markmiðið er fyrst og fremst að kanna hvort gæði kjötsins séu ásættanleg og nýta reynsluna til að aðlaga regluverk varðandi heima- slátrun þannig að bændur geti selt beint til neytenda og þannig aukið verðmætasköpun sína. Kjöt af lömbum í tilrauna- verkefninu verður ekki selt og einungis miðað við að slátra fáum lömbum hjá hverjum bónda, með aðstoð vanra slátrara ef óskað er eftir,“ skrifar Þröstur Erlingsson, bóndi í Birkihlíð í Skagafirði. Í samtali við Feyki segir Þröstur landbúnaðarráð- herrann sjálfan vera áhuga- saman um verkefnið og styðji það heilshugar. Hann hvetur þá bændur sem vilja taka þátt í verkefninu að hafa samband við sig á netfangið raggalara@ gmail.com, Guðnýju í Breiðdalsbita gudnyhardar@ gmail.com eða Matthías í Húsavík á Ströndum husavik@ simnet.is og láta vita af áhuga. „Við gerum svo ráð fyrir því að láta formlega vita af fyrir- komulagi laust fyrir mánaða- mót og þá geti bændur nýtt fyrstu daga júní til að íhuga frekar hvort þeir vilji taka þátt í tilraunaverkefninu.“ /PF Frá umdeildri heimaslátrun í Birkihlíð haustið 2018. MYND: MATÍS.IS Mikill eldur og reykur var í bílnum sem var tveggja ára Mitsubishi Outlander. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON 2 20/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.