Feykir


Feykir - 20.05.2020, Page 5

Feykir - 20.05.2020, Page 5
Hentum KR út úr Bikarkeppninni Gísli Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Tengils og oddviti sjálfstæðismanna í Svf. Skagafirði, átti glæstan feril í marki Tindastóls á árum áður með viðkomu á Skaganum með ÍA árið 1990. Þá er Gísli skráður í Neista Hofsósi árið 1999 til 2001 en ferilinn endaði kappinn í hinu goðsagnakennda liði Drangeyjar á Sauðárkróki 2017. Arsenal er uppáhaldslið Gísla í enska boltanum, einfaldlega vegna þess að Arsenal spilar fallegasta boltann, „… þó að það sé ekki alltaf til árangurs, er svo mikill fagurkeri á allt!“ Gísli svarar hér spurningum í Liðinu mínu í Feyki þó svo að Covidástandið hafi brenglað ensku deildina heilmikið en eins og flestir vita hafa engir leikir farið fram í langan tíma og ekki búið að klára deildina enn. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Alveg ljóst að árangur er enginn eins og stefnir í hjá flestum liðum vegna COVID-19. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Já og nei. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Ekki mikið. Það hefur enginn getað mótmælt því að Arsenal spilar flottan fótbolta. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Það hlýtur að vera markmaður og þá David Seaman. Hann var þekktur fyrir síða taglið og afar þykkt yfirvaraskegg. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já nokkrum sinnum og ógleymanlega ferð þegar við unnum Manchester United og ég var með Marteini Jóns í herbergi. Það var ekki leiðinlegt! Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Forláta kaffikönnu sem ég nota í vinnunni. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Nokkuð vel. Tvö af þremur, og er að vinna í afabörnunum. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Gleymdu því! Uppáhalds málsháttur? -Lífa lífinu lifandi, ef það er málsháttur. Einhver góð saga úr boltanum? -Vá, þær eru margar en flestar ekki birtingahæfar. En ein frá því í „gamla“ daga þegar Bjarni Jó. var að þjálfa Tindastól og við hentum t.d. KR út úr Bikarkeppninni og komumst í átta liða úrslit. Guðbrandur Guðbrandsson, hinn eini sanni, gerði samning við dyggan stuðningsmann um að hann fengi Whisky flösku fyrir hvern leik sem hann skoraði í en hann yrði að klára flöskuna áður en hann fengi þá næstu. Eins og áður sagði þá gekk vel þetta tímabilið og Guðbrandur skoraði og skoraði þannig að við þurfum nokkrir, ég, Eyjólfur Sverris og Sverrir Sverris, að taka að okkar að hjálpa Guðbrandi við að klára flöskuna. Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína? Þetta var oftast gert á fimmtudagskvöldum og alltaf stóð stuðningsmaðurinn við sitt þegar Guðbrandur skoraði. Hef ekki verið mikið fyrir Whisky síðan. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt? -Var voða lítið í því að hrekkja, lét aðra um það. Spurning frá Fannari Frey: -Er þjálfaramappan týnd? Á ekki að dusta rykið af henni og koma Tindastól í fremstu röð? Svar: Ef ekkert fer að breytast hjá Tindastól þá er ljóst að dusta þarf rykið af þjálfaramöppunni – Djók, minn tími er búinn. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Er ekki best að halda þessu í fjölskyldunni og Arsenal mönnum og þá hjá Jóhanni Daða. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvenær ætlar þú að verða góður í fótbolta eins og pabbi þinn? Mynd tekin 2017 þegar þeir feðgar, Gísli og Jóhann Daði, spiluðu leik með Drangey í 4 deild. AÐSEND MYND ( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is Gísli Sigurðsson / Arsenal AÐSENT | Halla Signý Kristjánsdóttir Varnir, vernd og viðspyrna er yfirskrift á aðgerðaáætlun stjórnvalda við þeirri stöðu sem við stöndum frammi fyrir. Það er mikilvægt hverju samfélagi að halda uppi þéttu og fjölbreyttu atvinnulífi. Það er svo sannlega tími til að virkja þann mikla mannauð sem býr í landsmönnum. Við höfum allt til staðar, viljann, mannauðinn og tæknina. Samgöngur fara batnandi og með allt þetta að vopni náum við viðspyrnu um allt land. Við erum að stefna inn í þyngra efnahagsástand með tilheyrandi uppsögnum og samdrætti á mörgum sviðum vegna COVID-19. Þá hefst slagurinn um að verja störfin. Verja og halda þeim opinberu störfum sem nú þegar eru á lands- byggðinni. Þar þurfa allir að leggjast á eitt. Það hefur því miður verið raunin að fyrir eitt starf sem glatast tekur það tíu ár að fá annað til baka. Það getur líka verið hluti af hagræðingu að verja þau störf sem fyrir eru og hluti af viðspyrnunni að leggja enn meiri áherslu á að skilgreina störf án staðsetningar og dreifa þeim sem best. Störf án staðsetningar Opinber störf á vegum ríkisins eru rúm 20.000. Þá eru ekki meðtalin þau störf sem eru á vegum sveitarfélaga. Hér á landi er skipting opinberra útgjalda milli ríkis og sveitarfélaga 70/30. Það er því ljóst að staðsetning ríkisstarfa skiptir miklu máli og ætti það að vera forgangsmál stjórnvalda að dreifa þeim sem mest um landið. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er að finna áherslu hennar um að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er. Auk þess styður samþykkt byggðaáætlun við þetta markmið. Með aukinni samskiptatækni, háhraða- fjarskiptatengingum um allt land ásamt greiðum samgöngum er nú hægt að dreifa opinberum störfum sem aldrei fyrr. Þeir tímar sem við höfum gengið í gegnum á undanförnum vikum hafa sýnt að fjarvinna er ekki bara draumsýn, heldur raun- verulegur möguleiki. Störf án staðsetningar geta verið jafn vel unnin í Ármúla í Reykjavík og á Hólmavík. Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður NV kjördæmis Opinber störf á landsbyggðinni Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is 20/2020 5

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.