Feykir


Feykir - 03.06.2020, Qupperneq 5

Feykir - 03.06.2020, Qupperneq 5
Knattspyrna | Mjólkurbikarinn Það er snilld að fá fótboltann aftur Þá er tuðrusparkið hafið á ný og um næstu helgi verður loks sparkað í bolta í fyrsta alvöru keppnisleik sumarsins hér á Norðurlandi vestra. Þá vill einmitt svo skemmtilega til að liðin tvö af svæðinu mætast í 1. umferð Mjólkur- bikarsins á gervigrasinu á Króknum. Við erum semsagt að tala um að lið Tindastóls tekur á móti sameinuðu liði Kormáks/Hvatar sunnu- daginn 7. júní kl. 14:00. Lið Tindastóls féll sem kunnugt er úr 2. deildinni niður í þá þriðju síðastliðið haust eftir ansi erfitt sumar þar sem fátt gekk upp. Kormákur/Hvöt fór alla leið í undanúrslitin í 4. deildinni, undir stjórn Bjarka Más Árnasonar sem enn stýrir K/H skútunni, en urðu að lúta í gras gegn Hvergerðingum og spila því enn í 4. deild. „Það eru allir mjög spenntir!“ sagði James McDonough þjálfari Tindastóls þegar Feykir hafði samband við hann. „Við höfum beðið mjög lengi eftir að komast af stað og ég held að við getum öll sagt að það sé snilld að vera búin að fá fótboltann aftur! Íslendingar hafa unnið ótrúlegt starf í baráttunni við COVID-19 til að gera þetta mögulegt og mér finnst ég mjög heppinn að vera hér að undirbúa liðið fyrir næstu helgi. Við eigum von á spennandi leik. Ég er viss um að endurkoma knattspyrnunnar á Íslandi og tækifærið til að hefja tímabilið gegn nágrönnum okkar þýði að það verði vel mætt á völlinn og við munum vera tilbúnir til að bjóða upp á hörkuleik. Þjálfari þeirra, Bjarki Már, vill að lið sitt spili góðan fótbolta, líkt og ég, þannig að ég er viss um að þetta verður frábær leikur á að horfa,“ segir Jay en ítarlegt og fróðlegt viðtal við kappann birtist á Feykir.is í gær. Jay ásamt Tanner Sica leikmanni Tindastóls á vellinum síðasta haust. MYND: JÓI SIGMARS ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut Sími 455 6000 www.skagafjordur.is Háeyri 1 Sauðárkróki Sími 455 7930 Vísindagarðar Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga | Sími 455 9200 www.tengillehf.is Skagfirðingabraut 29 Sauðárkróki Sími 453 6666 Kaupfélag Skagfirðinga Hofsósi Sími 455 4692 Sími 528 9000 www.rarik.is HOFSÓSI Borgarmýri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5433 Eyrarvegi 20 550 Sauðárkróki Sími 455 4500 www.ks.is www.fmis.is Hesteyri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5923 dogun@dogun.is Skarðseyri 5 550 Sauðárkróki Sími 455 3000 www.steinull.is VERKFRÆÐISTOFA Aðalgötu 21 Sauðárkrókur Sími 453 5050 Hvernig nemandi varstu? Misjafn. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Plötuspilar- inn sem ég fékk í fermingargjöf frá mömmu og pabba. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Bóndi. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Prikhestur. Besti ilmurinn? Góð sjávarlykt og lykt af íslensku birki eftir rigningu. Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? Bifröst. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Led Zeppelin. Hvernig slakarðu á? Í sveitinni. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Íþróttum. Besta bíómyndin? Deer Hunter, vel leikin og áhrifarík mynd. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Michael Jordan. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ryksuga. Hvert er snilldarverkið þitt í eld- húsinu? Rjúpurnar á jólunum. Hættulegasta helgarnammið? Lakkrís. Hvernig er eggið best? Linsoðið. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Leti. Hvað fer mest í taugarnar á þér í ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Guðmundur Sveinsson. ÁRGANGUR: 1960. FJÖLSKYLDUHAGIR: Giftur Auði Steingrímsdóttur og við eigum Svein, Önnu Lóu og Svölu. BÚSETA: Sauðárkrókur. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Sonur Sveins Guðmunds- sonar hrossaræktanda og Ragnhildar G. Óskarsdóttur lista- konu. Alinn upp á Króknum undir Nöfunum. STARF / NÁM: Kjötiðnaðarmeistari, hrossaræktandi og sjómaður. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Vinna. Gummi Sveins fari annarra? Leti. Uppáhalds málsháttur eða til- vitnun? Heima er best. Hver er elsta minningin sem þú átt? Minningar um hesta. Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Donald Trump, ég myndi gera allt vitlaust. Hvaða þremur persónum vild- irðu bjóða í draumakvöldverð? Börnunum mínum, ávísun á skemmtilegt kvöld. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ég myndi eyða einum degi á Furðuströndum með Jóni Ósmann frænda mínum, það yrði eflaust forvitnilegur dagur. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... í sólina á Tenerife. Bucket list spurningin: Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Fara á Old Traffort, NBA leik og fara í fallhlífarstökk. Gummi með afastrákinn Hrafnketil. MYND ÚR EINKASAFNI. 6 21/2019 Skólahreysti Grunnskóli Húnaþings vestra og Varmahlíðarskóli stóðu sig vel Ungmenni á Norðurlandi vestra eru að jafnaði hraust og því kemur það ekki á óvart að tveir skólar af svæðinu hafi staðið sig með prýði í Skólahreysti þetta árið. Grunnskóli Húnaþings vestra varð í 4. sæti og Varmahlíðar- skóli lenti í 7. sæti. Úrslita- keppnin fór fram í Laugar- dalshöll laugardaginn 31. maí að viðstöddu margmenni er átta skólar kepptu til úrslita. Lindaskóli úr Kópavogi varði titilinn síðan í fyrra, í öðru sæti varð Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Árbæjarskóli í því þriðja. Grunnskólar á Norðurlandi hafa að jafnaði staðið sig vel í Skólahreysti. Varmahlíðarskóli hefur t.a.m. komist ansi oft í úrslitin og gerðu sér lítið fyrir og unnu Norðurlandstitilinn í ár. Eins og fyrr segir lentu þau í 7. sæti í lokakeppninni. Grunnskóli Húnaþings vestra lenti í 4. sæti að þessu sinni en hefur sent lið til keppni á hverju ári. Á Facebook-síðu Skóla- hreystis kemur fram að Magnús Eðvalds sé ofuríþróttakennari sem sér um að koma krökkunum í hreystina. Að þessu sinni mætti dóttir hans til leiks og má því ætla að hún sé fædd sama ár og Skólahreysti hóf göngu sína, eða árið 2005. Skólahreysti hefur verið í gangi frá árinu 2005 og var sett á laggirnar með það að leiðarljósi að hvetja grunn- skólabörn til að taka þátt í alhliða íþróttaupplifun þar sem keppendur vinna að mestu með eigin líkama í þrautunum. Þeir sem vilja kynna sér málið betur er bent á heimasíðu keppninnar. Feykir óskar skólunum og krökkunum til hamingju með þennan glæsilega árangur og bíður spenntur eftir að fylgjast með krökkunum keppa að ári liðnu. /SHV Keppendur Grunnskólans Húnaþings vestra ásamt Magnúsi Eðvalds. Mynd: Facebooksíða Skólahreysti. 22/2020 5

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.