Feykir


Feykir - 03.06.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 03.06.2020, Blaðsíða 7
Um þetta leyti var Kobbi á Brekkunni2) með handavinnu- kennslu drengja í efri bekkjum barnaskólans. Veturinn 1959- 60, að ég tel, ákvað hann að kenna netagerð. Um veturinn riðum við strákarnir rauð- maganet, eitt net á mann. Um vorið var netið fellt með teinum, en þá vantaði korkinn. Var þá brugðið á það ráð að ganga út í Bæ og fá leyfi hjá Birni3) til að ganga fjörur og leita að korki. Var það auðsótt og gengum við Bæjarmölina út að Þórðarhöfða og til baka. Söfnuðum við korki og netakúlum í strigapoka sem við bárum á bakinu inn í Hofsós. Reyndar vildi Björn fá að líta yfir fenginn og tók heillegustu kúlurnar í rekaleigu. Þótti okkur það súrt í broti. Korkurinn var skorinn til og bundinn á teininn, en í þá daga var enginn maður með mönnum nema að eiga vasahníf. Aflangir litlir fjörusteinar voru notaðir á neðri teininn og var þá allt tilbúið. Á þessum tíma vorum við mikið saman ég og Villi Geirmundar4). Geirmundur5) hafði fengið Gíma5) til að smíða pramma og gefið Villa í fermingargjöf og ákváðum við að stunda rauðmagaveiðar um vorið á prammanum. Þægi- legast var að vera með net á Rifinu, gjöful mið og stutt að fara, en eldri menn í bænum þóttust eiga þar allar netalagnir og fóru sumir snemma á vorin og lögðu kaðal á milli bóla til að eigna sér lagnirnar. Urðum við Villi því að finna önnur mið og ákváðum að fara með netið inn að Selsteini suður undir Grafarósi en það var nokkur róður. Í huga mér get ég ennþá heyrt ískrið í árunum sem bergmálaði undir bökkunum í kyrrðinni á sólríkum vor- morgnum. Einu sinni vorum við hætt komnir. Það hafði hvesst meðan við vorum innfrá að vitja um og farið að brjóta á Rifinu. Þar reið að okkur alda en Villi var snarráður og kippti í stjórnborðsárina og beindi prammanum upp í ölduna og minnkaði þannig gusuna sem við fengum inn í prammann. Veiðin var þokkaleg, bæði rauðmagi og grásleppa. Mamma7) og Gauja8) elduðu rauðmagann en hrognin fóru inn á reikning í kaupfélaginu. Hluti af inneigninni var notaður til kaupa á efni til færaveiða, nælon, króka, sigurnagla og pilk. Í sparnaðarskyni var færið vafið upp á fjöl. Um sumarið fórum við á færi, þegar tími gafst, en afli var rýr þetta sumarið þótt mikið væri keipað. Lítið var af fiski fyrir innan Drangey á þessum tíma. Við reyndum oftast fyrir okkur á tveim miðum sem kölluð voru Grunnhlið og Djúphlið. Ég man ekki lengur hver miðin voru en annað var allavega þegar Málmeyjan kom undan Þórðarhöfðanum. Eftir að kirkjan var byggð var kirkju- turninn mikið notaður til að fylgjast með rekinu inn og út og var tekið mið að ýmsum kennileitum í fjöllunum á bak við.9) Á þessum árum fór ég stundum á færi með Kúti á Berglandi10). Hann var for- framaður í skakinu eftir að hafa verið hjá frændum sínum í Grímsey. Eitt af hans ráðum, ef illa gekk, var að taka vélinda úr veiðibjöllu og þræða það upp á öngulinn. Reyndum við þetta með þokkalegum árangri, en Kútur smyglaði haglabyssu um borð í prammann í strigapoka svo að enginn fullorðinn sæi til. Skaut ég veiðibjölluna á flugi en Kútur sá um krufninguna. Þegar rökkva tók um haustið tókum við til við að stela harðfiski úr hjöllum manna eins og önnur haust. Var það mikið sport og spennandi. Við Villi lögðum að sjálfsögðu mesta áherslu á að stela frá þeim sem höfðu meinað okkur aðgang að Rifinu um vorið. Var fiskurinn étinn með góðri lyst þó að hann væri ennþá mjúkur inn við dálkinn. Svona var lífið hjá 12 ára strák í Hofsós á því herrans ári 1960. Þessi pistill birtist fyrst 11. júní 2017 undir nafninu Sjómannadagskveðja á Facebooksíðunni Hofsósingar nær og fjær. Höfundur hans, Þorsteinn Þorsteinsson, er fæddur á Hofsósi árið 1948 og alinn þar upp, sonur hjónanna Þorsteins Hjálmarssonar, símstöðvar- stjóra, og Pálu Pálsdóttur, kennara. Þorsteinn var meðal annars bæjarstjóri á Sauðárkróki (1978-82) og fyrsti framkvæmdastjóri Steinullarverk- smiðjunnar (1982-86). Birti Þorsteinn alls fimm pistla með æskuminningum frá Hofsósi á Facebooksíðunni og hefur Feykir fengið leyfi til að birta þá, einn af öðrum. Þorsteinn Þorsteinsson Bernskuminningar úr sjávarþorpi Kvittunin frá Hraðfrystihúsinu, undirrituð af Birni Björnssyni verkstjóra. AÐSEND MYND 1) Björn Björnsson (1906-1998) Bjarkarlundi á Hofsósi. Frystihússtjóri hjá Kaupfélagi Austur- Skagfirðinga, Hofsósi. 2) Jakob Brekkmann Einarsson (1928-2014), Brekku á Hofsósi. Kennari á Hofsósi 1967-1998. 3) Björn Jónsson (1902-1989), bóndi og hreppstjóri í Bæ. 4) Vilhjálmur Geirmundsson (1943-2018). Lengst af búsettur á Hofsósi. 5) Geirmundur Jónsson (1912-1999). Kaupfélagsstjóri á Hofsósi og síðar bankastjóri við Samvinnubankann á Sauðárkróki. 6) Þorgrímur Hermannsson, (1906-1998), útgerðarmaður, skipstjóri og bátasmiður á Hofsósi. 7) Pála Pálsdóttir (1912-1993), móðir greinarhöfundar. Var m.a. kennari á Hofsósi 1939-1977. 8) Guðríður Guðjónsdóttir (1920-2011), seinni kona Geirmundar, föður Villa. 9) Hið rétta um smábátamiðin fram undan Hofsós mun vera að Grunnhlið var þar sem fyrsti stallur á Þórðarhöfða kom undan Naustakletti, Djúphlið þegar höfðinn var kominn alveg vestur fyrir klettinn, en Eyjatá þegar Málmeyjan kom undan Þórðar höfðanum. Heimildar maður er Sveinn Einarsson. 10) Fjólmundur Bergland Fjólmundsson (1947). Móðir hans, Steinunn H. Traustadóttir var frá Grímsey. Faðir hans var Fjólmundur Karlsson frá Ólafsfirði sem stofnaði og rak hljóðkútaverk- smiðjuna Stuðlaberg á Hofsósi. Okkur þótti þetta vera þannig að það væri svolítið erfitt að sinna hagsmunamálum svona stórs svæðis í einu félagi. Þess vegna verður þetta Skaga- fjarðarfélag til. Raunar held ég að Skalli hafi þróast þannig að Siglfirðingarnir séu farnir að sækja í félagsskapinn fyrir austan þá með Ólafsfirðingum, Dalvíkingum og öðrum Eyfirðingum, sem er auðvitað mjög rökrétt. Skalli er síðan með Skagaströnd, Hvamm- stanga, Hólmavík og Drangsnes. Það má segja að það sé rökrétt að það sé félag fyrir Húnavatnssýslurnar og Strandir, þ.e. Húnaflóann og annað félag fyrir Skagfjörð og svo það þriðja fyrir Eyjafjörð. Þetta var ekki gert í neinum leiðindum, alls ekki.“ Magnús segir að sagan á bak við það að hann gerðist formaður hafi ekki verið mikil. Steinar, sem var formaður, hætti útgerð og þá þurfti einhver annar að taka við keflinu og varaformaðurinn, Hjálmar Höskuldur Hjálmarsson, baðst undan þeirri ábyrgð. „Til að gera langa sögu stutta þá komu nokkrir sjómenn hérna og spurðu hvort ég væri til í að taka þetta að mér. Ég sagðist vera til í það en um leið og einhver hefur áhuga á, meiri sjómaður en ég, þá er það sjálfsagt að hann taki við þessu kefli. Ég verð ekki í þessu til eilífðarnóns.“ Framundan er sjómanna- dagshelgi, en því miður í skugga Covid og þess vegna engar skipulagðar hátíðir. En Magnús er beðin um að rifja upp minningar frá sjómanna- degi ungs Króksara. „Það er enginn einn sjómannadagur sem ég man eftir sérstaklega, en mér fannst mjög gaman á sjómannadaginn bæði vegna þess að ég hafði mikinn áhuga á sjómennsku og fór á sjó eiginlega fljótlega eftir að ég mundi almennileg eftir mér. Þá var farið í mikla siglingu, stór hópur smábáta og nokkrir stærri bátar og mér fannst það alltaf mjög hátíðlegt þegar flotinn lagði úr höfn fánum skrýddur. Þannig man ég eftir sjómannadeginum aðallega út af siglingunni út fyrir höfnina. Ég man ekki eftir neinni sérstakri uppákomu,“ segir Magnús að lokum sem vill óska öllum sjómönnum gleðilegrar sjómannahátíðar hvernig svo sem sjómannadeginum verður varið þetta árið. Hér er gömul kvittun fyrir innlögn á 7 kg af grásleppuhrognum í Hraðfrystihúsið Hofsósi 9. maí 1960. Björn Björnsson1), verkstjóri, kvittar fyrir með sinni fallegu rithönd. Hér er að baki saga sem mig langar að deila með ykkur. Þorsteinn. MYND ÚR EINKASAFNI VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir Gömul mynd frá Hofsósi. Ártal og ljósmyndari ekki þekkt. 22/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.