Feykir - 03.06.2020, Side 8
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Tómas Reykjarvíkurskáld sem á
fyrstu vísu þessa þáttar.
Um auðæfi mig er að dreyma
árangur það lítinn ber,
en aldrei vildi ég gimstein geyma
í götunum á sjálfum mér.
Hef verið að reyna að rifja upp og fá
upplýsingar um höfund næstu vísu en
ekki fengið neitt enn á hreint með það.
Ill er hlutdeild örlaganna
um atómskálda rímlaust fjas,
að höfuðsmiður hortittanna
heita skuli Matthías.
Eitthvað mun hafa verið deilt um laun til
skálda þegar Kristján Ólason orti svo:
Þeir sem hafa aldrei átt
andríkinu að fagna,
verða þá að hafa hátt
helst að bölva og ragna.
Held að það hafi verið Guðmundur
Arnfinnsson sem orti svo um raunir
kunningja.
Hann Simbi ók sinni Möstu
sérdeilis ljótu og höstu,
á lausu hann var
og Lindu bauð far
en Linda kvaðst vera á föstu.
Oft hefur verið hér áður fyrr birst á prenti
vísur eftir hinn magnaða hagyrðing Einar
Andrésson, sem kenndur var við Bólu.
Minnir að þessi magnaða andagift sé eftir
hann.
Æsku brjálast fegurð fer
fjörs er stálið sprungið,
hýðið sálar hrörnað er
heims af nálum stungið.
Þá er til þess að taka að í þætti númer 758
birti ég eftirfarandi vísu sem í dóti mínu
var sögð eftir Káinn og sögð gerð um
samferðamann hans:
Ég sem bölva æði oft
og yfir mörgu kvarta,
fyrir að vera laus við Loft
lofa ég guð af hjarta.
Hef nú fengið þær upplýsingar að þar
mun farið ógætilega með sannleikann.
Vísan mun eftir Höskuld Einarsson, áður
bónda á Vatnshorni í Skorradal, og ort
um hest sem hann hafði þá verið með í
tamningu um nokkurn tíma án þess að
vera sáttur við árangurinn. Síðan skeður
það að hópur ferðamanna kemur að
Vatnshorni, en þar var þá, eins og kannski
einhverjir sem eldri vita, vel tekið á móti
öllum gestum og margir þáðu þar góðar
veitingar. Voru þeir með haltan hest sem
hafði slasast í girðingu og vildu endilega
fá að skilja hann eftir og fá annan í staðinn
hjá bónda. Voru kaupin gerð og mun þá
umrædd vísa hafa orðið til.
Síðar, þegar Höskuldur fór að hugleiða að
kannski væri þessi vísa full gróf varð þessi
til, sem sárabót fyrir Loft:
Ég hitti að austan hrossakaupaskálk
sem hafði af mér fagra beislaglaðinn.
Með gaddavíri gamlan rifinn jálk
hann greip hjá sér og lét mig hafa í
staðinn.
Þakka mikið vel fyrir þessar upplýsingar
sem ég dreg ekki í efa að muni réttar.
Víkjum þá næst að Ingólfi Ómari sem
mun hafa ort svo er nálgaðist vorið:
Lægir vind og léttir til
ljósar myndir skarta.
Veitir lyndi vonaryl
veðrið yndisbjarta.
Önnur vísa í svipuðum dúr kemur hér
eftir Ingólf:
Björt á tindum blikar sól
birtu strindi gefur.
Geislasindur grund og hól
gullnum myndum vefur.
Ein vísa í viðbót eftir Ingólf Ómar og er
hún ort í tilefni af sjómannadegi.
Ágjöf hræðast ei né grand
ægishetjur djarfar.
Aflaföngin færa á land
fræknir landsins arfar.
Það er Ólafur Stefánsson sem yrkir svo
skringilega á vordegi:
Gott er vorið grösum prýtt
í garðinum stend og moka.
Hef ég strákum starra snýtt
- í uppsveitum er afar hlýtt,
út til stranda ekkert nema þoka.
Sá leyndardómsfulli og ágæti hagyrðingur
Helgi Björnsson, á Snartarstöðum í
Lundareykjadal, er eins og allir bændur
með óþrjótandi verkefni á dögum vorsins.
Afar sjaldan upp ég lít
og við fáa tala,
ber út moð og moka skít
mjólka kýr og smala.
Í miklu annríki á sauðburði mun Helgi
hafa ort þessa:
Tíma hef ég tæpast enn
til að sinna konum.
Komast aðeins ætla senn
út úr fjárhúsonum.
Harður tónn er í næstu vísu sem
höfundur, Einar H. Guðjónsson, kallar
okrarastéttina.
Hún vill hlúa að sverum sjóð
á silfrið trúa og fela.
Þráfalt sjúga þreyttra blóð
þjóðarbúi stela.
Hef lengi hrifist af fjallavísum Adolfs J.
Petersen. Þessi er ein að þeim sem ort er í
Eyvindarveri.
Þeim varð gæfugatan hál
að greiðastaðinn finna.
Auðnin geymir einkamál
útlaganna sinna.
Tel þá heppilegt, lesendur góðir, að
leita til Adolfs með lokavísuna. Er þar
lagleg hringhenda á ferð sem ort er eftir
næturgistingu á fjöllum.
Döggin vætir dalarós,
dagsins mætir veldi.
Rjóð á fætur röðulljós
rísa af næturfeldi.
Veriði þar með
sæl að sinni.
/Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Vísnaþáttur 761
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Kæru brautskráningarnemar frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Sveitarfélagið Skagafjörður sendir ykkur
hamingju- og heillaóskir í tilefni áfangans
Við þökkum samfylgdina
á liðnum árum og hlökkum til
að eiga samleið með ykkur
sem flestum í framtíðinni
8 22/2020