Feykir


Feykir - 03.06.2020, Blaðsíða 9

Feykir - 03.06.2020, Blaðsíða 9
Birta frænka mín skoraði á mig að skrifa smá pistil og færi ég henni litlar þakkir fyrir. Hún hringdi í mig fyrir rúmum mánuði síðan þannig að ég hef haft góðan tíma til að hugsa um hvað ég ætti að skrifa. En samt skila ég þessum pistli tveim dögum of seint og veit ekki enn um hvað hann á að vera. Fram undan er sjómannadagurinn, hátíðisdagur sjómanna. Sjómenn eru alvöru kappar sem vinna vinnu sem ég myndi ekki endast lengi í. Að vísu er ég ekkert sérstakur aðdáandi verka þeirra, nema þá helst þeirra sem veiða harðfiskinn. Ég er hrifnari af íslenska lambakjötinu og finnst að bóndadagurinn ætti að verða sérstakur hátíðisdagur íslenskra bónda. Já eða bænda. En þrátt fyrir litla hrifningu á fiski þá óska ég sjómönnum innilega til hamingju með daginn sinn. Ég hef ekki tekið virkan þátt í hátíðarhöldum á sjómannadaginn undanfarin ár fyrir utan eitt ár fyrir um fimm árum síðan. Þá fórum við nokkrir félagar í skemmtilega ferð á Skagaströnd og fögnuðum með heimamönnum. Reyndar vorum við búnir að drekka talsvert magn af ringulreiðar- og hugrekkisvökva þannig að ekki þótti ráðlegt að hleypa okkur í sjóinn en við fengum hins vegar að keppa í reiptogi við heimamenn. Ég man nú ekki alveg hver vann en ég er nú eiginlega viss um að það vorum við. Í lokin skora ég á minn uppáhalds frænda, Tomma Dan, sem er meistari í að gera stutta sögu langa, að skrifa næsta pistil. ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is Sjómenn og bændur VERKFRÆÐISTOFA H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Sveitarfélagið Skagaströnd BLÖNDUÓSBÆR Opnunartími í sumar: Frá og með 2. júní verður opið sem hér segir: Mánudaga - föstudaga kl. 09:30 - 21:30 Laugardaga kl. 10:00 - 19:00 Sunnudaga kl. 11:00 - 19:00 Hofsósi Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn Birkir Þór Þorbjörnsson Hvammstanga VÉLAVERKSTÆÐI LÖGREGLUSTJÓRINN Á NORÐURLANDI VESTRA 22/2020 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.