Feykir - 03.06.2020, Síða 10
Íslenska gæðingakeppnin
– þróunin fram til dagsins í dag
Lesendur góðir, í þessari grein
verður botninn sleginn í
umfjöllunina um íslensku
gæðingakeppnina. Tekið
verður hlé á skrifum í sumar en
haldið áfram í haust og í fyrsta
tölublaði september verður
hafin umfjöllun um íþrótta-
keppnina.
Á landsmótinu 1970 var
tónninn á margan hátt sleginn,
hvað þróun gæðingakeppn-
innar varðaði, allt fram til
dagsins í dag, þó mikið vatn
ætti eftir til sjávar að renna
hvað þau mál öll varðar. Þá var
tekið upp það kerfi hvað fjölda
hrossa á mótið varðar að kvóti
hvers félags tæki mið af fjölda
félagsmanna. Þannig festist í
sessi, og hefur viðhaldist æ
síðan, sú grunnhugsun
gæðingakeppninnar, að
hestamannafélögin sjálf séu
ábyrg fyrir vali sinna
þátttakenda og jafnframt
haldist hvað yngri flokka
afsprengi gæðingakeppninnar
varðar. Þá var á mótinu 1970, í
fyrsta sinn, keppt í tveimur
aðgreindum flokkum góðhesta:
Flokki alhliða gæðinga
(A-flokki) og í flokki klárhesta
með tölti (B-flokki). Í A-flokki
er keppt um gæðingabikar LH,
gefinn af Birni Gunnlaugssyni,
fyrst veittur á Hólum 1966. En í
B-flokki er keppt um
Háfetabikarinn sem land-
búnaðarráðuneytið gaf þegar
keppnin í B-flokki hófst 1970.
Loks var á mótinu ´70 kynntur
fyrsti vísir að sjálfstæðum
vinnubrögðum hvers dómara
fyrir sig; þannig var tilskilið að
hver dómari skyldi frumdæma
hvern hest og færa dóm sinn á
dómblað sem svo skyldu
samræmd. Ennþá voru það
einvörðungu geltir reiðhestar
sem tóku þátt í góðhesta-
keppninni, nokkuð það sem
aldeilis hefur tekið breytingum.
Á þessum tíma var þó tekið að
opna á þátttöku hryssna og
stóðhesta, skv. áður tilvitnaðri
reglugerð, en þá aðeins á
mótum þar sem ekki væru
kynbótasýningar. Var þá enn
byggt á þeirri hugsun að
kynbótasýningarnar og
gæðingakeppnin væru tvær
hliðar á sama peningi sem
hvoru tveggja hefði þann
tilgang að leggja mat á gæði
íslenska hrossastofnsins.
Spjaldadómar halda innreið
sína
Sá vísir að sjálfstæði við
dómstörfin sem birtist í þeirri
reglu sem var praktiseruð á
landsmótinu 1970, að hver
dómari gæfi einkunn sér sem
væru svo aftur samræmdar í
eina lokaeinkunn, var þróuð
áfram næstu árin. Árið 1973
var svo fyrsta formlega
námskeiðið í gæðingadómum
haldið, skv. nýrri útfærslu
keppninnar (spjaldadómar).
Áður hafði einu sinni verið
haldið námskeið (1966) eftir
gamla forminu. Spjaldadómar
er sem sagt dómsfyrirkomulagið
eins og það er nú alkunna í
gæðinga- (og íþróttakeppnum);
hver dómari fyrir sig vinnur
sjálfstætt, oftast þó með ritara
sér við hlið og gefur einkunn,
ýmist heildareinkunn í formi
meðaltals eða einkunn fyrir
hvert einstakt dómsatriði. Fyrri
hátturinn er venjulegast hafður
á í forkeppni og milliriðlum en
hinn í úrslitum. Nafnið
spjaldadómar er svo einfaldlega
dregið af því að einkunnin var
kunngjörð með að rétta upp
spjöld. Á síðustu árum, á
tímum tölvutækni og rafrænna
samskipta, eru spjöldin horfin,
nema þá til vara ef bilanir koma
upp, en aðferðin sú sama.
Vissulega ýttu erlend áhrif
þarna undir, spjaldadómar
voru til að mynda viðhafðir á
fyrsta Evrópumótinu sem
haldið var á búgarði Felmann-
feðga í Aegidienberg við Rín
árið 1970. Hinn hefðbundni
250 m hringvöllur, sem
íþróttakeppnin fer fram á, er
jafnvel álitið að skýrist af því að
ekki varð stærri velli komið
fyrir á keppnisstaðnum. Við
uppbyggingu vallarmannvirkja
hér á landi á þessum tíma urðu
hringvellir æ algengari. Hvað
gæðingakeppnina áhrærir varð
löglegur gæðingakeppnisvöllur
300 m hringvöllur með aðgengi
að beinni braut – kapp-
reiðabraut – til að sýna skeið í
keppni alhliða gæðinga. Hvað
hringvelli varðar er þó alls ekki
hægt að segja að þeir hafi
alfarið komið til fyrir erlend
áhrif, vissulega kom 250 m
völlurinn þannig til en útfærsla
300 m gæðingavallarins er
séríslensk og á gömlum
mótsvæðum voru mjög stórir
hringvellir, þeir nýttust sem
hlaupabrautir í langhlaupum,
við útfærslu hópreiða á
stórmótum og við hópsýningar
ræktunarhrossa.
Breytingin sem varð á
dómstörfunum við tilkomu
spjaldadómanna var djúp-
stæðari en bara það að farið
væri að vinna fyrir opnum
tjöldum eða eins og segir í
greininni „Starfsreglur fyrir
gæðingadómara LH“ sem
birtist í Hestinum okkar 3. tbl.,
14. árg. 1973, á bls. 109 til 112,
þar sem á síðum 110 til 112 er
fyrsti vísir að leiðara, þ.e.
stigunarkvarða fyrir gæðinga-
dóminn: „Þessi breyting er gerð
til að mæta nýjum viðhorfum
og kröfum áhorfenda um að
geta fylgzt betur með störfum
dómaranna en verið hafði, svo
og að hestarnir hlytu dóm sinn
fyrir það, sem dómarar þóttust
geta spáð í, en ekki kom fram í
keppninni sjálfri. Með öðrum
orðum sagt, var nú verið að
gera gæðingakeppnina að
keppni, afmarkaðri keppni
tiltekins dags eða stundar, í stað
þess, að áður var sjónarmiðið
Hlynur frá Akureyri, sigurvegari í B-flokki gæðinga á landsmótinu 1978. Knapi: Eyjólfur Ísólfsson, síðar yfirreiðkennari Hólaskóla um
árabil. Þeir sigruðu einnig töltkeppni landsmótsins með hæstu einkunn sem gefin hafði verið. Hesturinn fór jafnframt í kynbótadóm
sem geldingur og afkv. föður síns Sörla 653 frá Sauðárkróki og var áberandi í heiðursverðlaunasýningu hans á mótinu þar sem Sörli
hlaut Sleipnisbikarinn. Mynd úr safni SÍH, ljm. Kristján Einarsson.
Kristinn Hugason
fremur leit að eðlisbezta
hestinum.“ Ekki er höfundar
greinarinnar getið, en fara má
nærri um að hann sé Sigurður
Haraldsson í Kirkjubæ (1919-
1998) hann var áhrifamikill í
málefnum gæðingakeppninnar
á þessum árum og lengi síðan,
enda listrænn fagurkeri á sviði
hestamennskunnar, vel máli
farinn og ritfær.
Hvorki er hér rúm til né
ástæða að rekja hvert
landsmótið fyrir sig, s.s. hverjir
skipuðu dómnefndir eða hvaða
hestar unnu hverju sinni. Enn
um skeið var keppnin eingöngu
keppni geltra reiðhesta en á
landsmótinu 1978 brá fyrst
fyrir að hryssur væru meðal
keppnishrossa. Deilur voru
hins vegar uppi um
raunverulegan þátttökurétt
stóðhesta í keppninni, þær
voru til lykta leiddar fyrir
landsmótið 1994 og þá varð
hreinlega sprenging hvað
þátttöku þeirra varðar og hafa
þeir verið allt að því
yfirgnæfandi í keppninni á
landsmótum allar götur síðan.
Yngri flokka afsprengi
gæðingakeppninnar (B-flokks-
ins) eru keppnisflokkar barna,
unglinga og ungmenna. Fyrst
hófst keppni í yngri flokkunum
á landsmótinu á Skógarhólum
árið 1978, talað var þar um
unglingakeppni 10 – 12 ára og
unglingakeppni 13 – 15 ára.
Nöfnum aldursflokkanna var
svo breytt fyrir landsmótið
1994 og farið að tala um börn
og unglinga í þessu sambandi
og ungmennaflokkur bættist
svo við á landsmótinu 1998.
Einhverjar breytingar hafa
orðið innbyrðis í
aldursflokkauppgreiningunni á
seinni árum sem ekki verður
tíundað hér en þessir
aldursflokkar í heild sinni ná
yfir aldursárin 10 til 21 árs.
Núna á seinni árum hafa
verið gerðar tilraunir til að fá
alþjóðlega útbreiðslu á íslensku
gæðingakeppnina, án afgerandi
árangurs, því miður. Eflaust
þarf að ganga róttækar fram í
því máli ef árangur á að nást
sem ekki verður rætt nánar hér.
Jafnframt hefur þátttaka í
gæðingakeppni hestamanna-
félaganna snardaprast, því
miður, nema þá helst á
landsmótsárum. Þegar
kynbótahross mæta til keppni
jafnhliða úrtökum.
10 22/2020