Feykir - 03.06.2020, Side 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Finna skal karlmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Mígreni er sérstök tegund höfuðverkja sem hrjáir allt að því 5%
fólks og er algengari hjá konum en körlum, eftir því sem fram
kemur á Vísindavefnum. Verkjaköstin byrja yfirleitt í æsku eða á
yngri árum og sjaldan eftir 35 ára aldur. Ótrúlegt, en kannski satt,
þá jókst mígreni um 60% í Bandaríkjunum árið 1980.
Helgi Sæmundur Guðmundsson og Kolfinna Kristínardóttir á
Sauðárkróki eru matgæðingar þessarar viku. Þau fluttu á Krókinn í
fyrra, á heimaslóðir Helga Sæmundar, þar sem hann starfar í 1238
ásamt því að vera í tónlist og framleiðslu á efni fyrir samfélagsmiðla.
Kolfinna er í fæðingarorlofi út sumarið en starfaði sem yfirfreyja hjá
Wow Air áður en það fór í gjaldþrot og nýtti svo fæðingarorlofið í að
klára mastersnám í Hagnýtri menningarmiðlum við Háskóla Íslands.
„Við erum miklir matgæðingar og held ég úti instagraminu Eldhúsið,
lágkolventa matarblogginu www.icelandketo.com og nýjasta verkefnið var
stafræn matarhátíð í Skagafirði, www.matarhatid.com,“ segir Kolfinna.
„Okkur finnst ótrúlega gaman að prufa alls konar uppskriftir, þróa þær og
gera að okkar. „Hér koma tvær uppskriftir, beikonusultu-smjördeigskoddar
og hægeldað lamba tacos. Beikonsultuna geri ég yfirleitt sem pinnamat fyrir
partý og slær alltaf í gegn. Lamba tacoið er innblásið af lambavefjunni í
Gránu, sem er geggjuð!“
Kolfinna og Helgi Sæmundur matreiða
Tilvitnun vikunnar
"Frelsi er ekki háð staðsetningu. Það er ástand."
- Abdu´l Bahá
RÉTTUR 1
Smjördeigs koddar fylltir
með trönuberja-
beikonsultu og Brie osti
1 pakki af Wewalka smjördeigi
1 Brie ostur
1 egg
fersk steinselja til að skreyta með
Beikonsulta með trönuberjum:
200 g beikon
½ rauðlaukur
25 g smjör
50 g púðursykur
1 msk. hlynsýróp
2 msk. sterkt (soðið) kaffi
60 g þurrkuð trönuber
Aðferð: Skerið beikonið mjög
smátt og steikið á pönnu, þegar það
er byrjað að brúnast er smátt
söxuðum rauðlauk bætt út í og
hitinn lækkaður. Látið laukinn og
beikonið malla þangað til það er
orðið brúnt og mjúkt (beikonið á
ekki að verða stökkt). Bætið
púðursykrinum, smjörinu,
sýrópinu og kaffinu út í, passið að
hafa hitann ennþá lágan svo
sykurinn brenni ekki. Látið malla á
mjög lágum hita í um 30 mínútur,
hrærið og bætið svo þurrkuðum
trönuberjum við.
Feykir spyr...
Hvernig ætlar þú
að halda upp á sjó-
mannadaginn í ár?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : SHV
„Maður fer sennilega á hótel
og fær sér eitthvað sérstaklega
gott að borða.“
Ingi Björgvin Kristjánsson
„Ætli ég verði ekki bara að vinna
eins og vanalega.“
Viggó Jónsson
„Ég ætla að vera heima með
flestum afleggjurunum mínum.
Þeim fjölgar alltaf stöðugt.“
Snorri Snorrason
„Vegna Covid verður dagurinn
með breyttu sniði. Ætli við
skellum okkur ekki bara í
útilegu þetta árið.“
Viktor Guðmundsson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Skellur
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is
Beikonusultusmjör-
deigskoddar og
hægeldað lamba taco
Smjördeigið er skorið í jafna
ferninga, u.þ.b. 2x2cm. Á annan
hvern ferning er sett örlítill biti af
Brie ostinum og smá af
beikonsultunni (passa að setja ekki
of mikið því þá lekur allt út), svo er
settur ferningur af deiginu yfir og
endunum þrýst saman með
fingrunum (ef notaður er gaffall
kemur ekki sama fallega áferðin á
deigið). Að lokum eru ferningarnir
penslaðir með eggi. Bakist í 10
mínútur á 200°C. Tekið út og Brie
osti og beikonsultu bætt ofan á
hvern „kodda”, sett svo aftur inn í
ofn í u.þ.b. 3 mínútur (þangað til
osturinn er bráðinn). Að lokum er
smá steinselju bætt ofan á hvern
kodda. (Auðvitað má svo einfalda
þessa uppskrift með því að gera
lengju eða hring eða slíkt.)
RÉTTUR 2
Hægeldað lamba tacos
með vískí sósu
Lambabógur sem hefur náð
stofuhita er settur í stóran pott og
soðnu vatni hellt yfir hann (þannig
að hann sé alveg á bólakafi í
pottinum), bætið kjötkrafti út í
vatnið. Lokið er sett á pottinn og
inn í ofn á 50°C í a.m.k. 12 klst.
Leyfið kjötinu að kólna alveg áður
en það er rifið niður, hægt er að
gera það með tveimur göfflum eða í
höndunum.
Vískí piparsósa:
1½ l lambasoð
5 hvítlauksgeirar
4 msk. púðursykur
2 dl sýróp
klípa af smjöri
Vískí eftir smekk (mæli með u.þ.b.
1 bolla)
salt og pipar
Aðferð: Steikið kraminn hvítlauk
upp úr olíu þar til hann mýkist.
Hellið soðinu út í pottinn og sjóðið
niður í um 15-20 mín. Bætið þá
restinni af hráefnunum við og
sjóðið þar til sósan byrjar að
þykkna. Bætið svo rifna kjötinu út í
pottinn og leyfið því að blandast vel
saman.
Berið fram með ferskum
plómum, fetaost mulningi (eða
gráðost) og fersku salati. Berið fram
ofan á litlum hveiti tortillum (ég
legg litla skál ofan á tortillur og sker
meðfram, fæ u.þ.b. 3 stk. úr einni
stórri).
Verði ykkur að góðu!
Við erum í skemmtilegum
matarklúbb og skorum á vinapar
okkar, Jón Gest Atlason og Hönnu
Maríu Gylfadóttur.
Helgi Sæmundur og Kolfinna
matgæðingar vikunnar
MYND: ÚR EINKASAFNI
22/2020 11
Vísnagáta
Hurð að stöfum hrundið er.
Hrút minn glapti flæðisker.
Grátt lék klaki gróinn völl.
Glímulistin brást mér öll.