Feykir - 23.09.2020, Síða 4
AÐSENT | Ágúst Ingi Ágústsson skrifar
Hringrás sögunnar
Í aðdraganda komandi
keppnistímabils í Dominos
deild karla í körfubolta hafa
félagsskipti sterkra
leikmanna milli tveggja
Reykjavíkurliða verið
áberandi. Misjöfn
fjárhagsstaða
félaganna er víst
ástæða þessara
félagaskipta.
Umræðan verður
oft óvægin þegar
peningar og
íþróttir eru
annars vegar og
stór orð látin
falla.
Undanfarin misseri hefur
umræðan um körfuboltann
á Króknum snúist mikið um
það hvernig sterkir leikmenn
séu lokkaðir Krókinn. Fólk
lætur frá sér misgáfulegar
athugasemdir á samfélags-
miðlum og hefur greinar-
höfundur á vefsíðunni karfan.
is skrifað um Tinda$tól í
annars skemmtilegum pistlum
sín-um. Þessi umfjöllun er
ekki ný af nálinni og ekki úr
vegi að líta 30 ár aftur í tímann
og skoða umfjöllun um öflugt
lið Tindastóls keppnistímabilið
1990-91.
Fyrir leiktímabilið 1990-91
gerðist körfuknattleiksdeild
Tindastóls stórhuga. Til liðsins
voru fegnir tveir Tékkó-
slóvakar, Ivan Jonas og Milan
Rosanik en sá síðarnefndi
þjálfaði liðið. En stóru frétt-
irnar það haustið var koma
Péturs Guðmundssonar á
Krókinn eftir að hafa spilað í
NBA deildinni. Í liðinu, líkt og
undanfarin tvo tímabil, var
svo Valur Ingimundarson,
einn besti leikmaður úrvals-
deildarinnar. Tindastólsliðið
hóf keppni í úrvalsdeildinni af
krafti og sat á toppnum um
jólin þar sem liðið hafði unnið
ellefu leiki og aðeins tapað
tveimur. Gott gengi Tindastóls
virtist fara fyrir brjóstið á
mörgum og sú umræða varð
hávær í fjölmiðlum að
Sauðkrækingar hefðu keypt
þennan góða árangur fyrri
hluta vetrar. Áður en Twitter
og Facebook urðu miðlar fyrir
misgáfulegar skoðanir fólks
gat almenningur látið gamm-
inn geysa í blöðunum.
Nokkrar áhugaverðar greinar
voru skrifaðar um Tindastól
og gott gengi liðsins og verður
hér vísað í tvær þeirra. Þá fyrri
skrifaði Sigrún Jónsdóttir í
Dagblaðið Vísi í október 1990
og segir að Tindastólsliðið
væri búið að „kaupa sér
titillinn“. Hún tekur fram að
fjórir af bestu
leikmönnum liðs-
ins séu aðkeyptir
atvinnumenn og
Tindastóll hafi
með þessu tekið
upp atvinnu-
mennsku í körfu-
bolta að miklu
leyti. Sigrún segir
þennan metnað
Króksara í körfu-
boltanum bitna á
andstæðingunum sem ekki
geta lengur keppt við Stólana á
jafnréttisgrundvelli. Tekur svo
Sigrún djúpt í árina í lok
greinar sinnar þegar hún lýsir
því yfir að ef Tindastóll verði
Íslandsmeistarar í lok leiktíðar
verði fagnað með blendnum
tilfinningum á Króknum með
vísun í að titillinn yrði næst-
um illa fenginn með þessari
atvinnumennsku.
Síðari greinin birtist í
Morgunblaðinu í lok nóv-
ember 1990 þar sem Tómas
Tómasson skrifar í Velvakanda
og gagnrýnir blaðið fyrir að
gera Tindastól og KR hærra
undir höfði í umfjöllun sinni.
Heldur Tómas því fram að
liðin hafi „úr meiri peningum
að moða en hinar skotturnar í
deildinni...“ Því til stuðnings
fullyrðir hann að Pétri Guð-
mundssyni séu borgaðar 150
þúsund krónur á meterinn
auk þess að liðið sé með tvo
útlendinga, en tekur ekki fram
að annar þeirra sé þjálfari.
Tómas segir ennfremur að
gaman væri að sjá Tinda-
stólsliðið ef það myndi ein-
göngu tefla fram heima-
mönnum. Virtust fjölmiðlar
mjög áhugasamir um hvernig
körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls væri rekin og hvaðan
peningarnir kæmu. Í Íþrótta-
blaði Morgunblaðsins var sagt
í gamni haustið 1990 að
körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls væri rekin á tveimur
tékkum og einum víxli!
Ekki verður hér mat lagt á
rekstur körfuknattleiksdeild-
ar Tindastóls né annarra
deilda þá eða nú en hringrás
sögunnar er skemmtileg.
Ágúst Ingi Ágústsson
sagnfræðingur
Heimildir.
Sigrún Jónsdóttir. ,,Búið að kaupa
meistaratitilinn”. Dagblaðið Vísir, 12.
október 1990.
Tómas Tómasson. ,,KR-
Tindastólsdeildin”.
Morgunblaðið, 29. nóvember 1990.
Það var greinilega þörf á
nýjum leiðum til að auka
eftirspurn eftir innan-
landsflugi og við henni var
brugðist. Ekki eru liðnir tíu
dagar frá því að Loftbrú,
verkefni sem samgöngu- og
sveitastjórnarráðherra
opnaði og nú hafa nærri
1.000 þúsund manns
nýtt sér leiðina.
Loftbrú er íslenska
orðið yfir skosku
leiðina sem Fram-
sóknarflokkurinn
kynnti fyrir síðustu
kosningar og við
skiluðum inn í
stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar
og fór inn í sam-
gönguáætlun við
gerð hennar. Málið
var síðan samþykkt á Alþingi
og nú er orðið að veruleika.
Það er mikið fagnaðarefni að
okkur hafi tekist að uppfylla
þetta loforð að fullu, en
Framsókn hefur þurft að
hoppa yfir ýmsar hindranir til
að ná þessu baráttumáli í gegn.
Aukin eftirspurn
Markmið verkefnisins er að
efla innanlandsflug og stuðla
að betri tengingu landsins
með uppbyggingu almenn-
ingssamgangna. Á lands-
byggðinni er oft skortur á
aðgengi að mikilvægri þjón-
ustu, en þeir sem búsettir eru
langt utan höfuðborgarsvæð-
isins þurfa oft að ferðast
langan veg til að nýta sér
þjónustu á höfuðborgarsvæð-
inu sem er jafnvel bara í boði
þar. Auka þarf aðgengi að
þjónustu sem ekki er til staðar
í heimabyggð t.a.m. fyrir
konur sem eru að fara í sónar-
skoðun og það hafa ekki allir
aðgengi að tannlæknaþjónustu
í heimabyggð svo fátt eitt sé
nefnt, nemendur að sækja
staðarlotur og fleiri ástæður
þarf varla að nefna sem við
þekkjum sem ferðumst á milli
landshluta. Síðan verður leiðin
styttri í leikhús okkar þjóð-
arinnar því höfuðborgin er
okkar allra, hér er því verið að
stuðla að frekari jafnrétti fólks
óháð búsetu og mikilvægt
byggðarmál.
Gert er ráð fyrir undan-
tekningum fyrir skilyrði um
búsetu á landsbyggðinni. Þær
undantekningar gilda fyrir
framhaldsskólanema af lands-
byggðinni sem fært hefur
lögheimili sitt tímabundið á
höfuðborgarsvæðið vegna
náms og börn sem eru með
lögheimili á höfuðborgar-
svæðinu en eiga foreldra eða
forráðamenn sem
hafa búsetu á
landsbyggðinni.
Unnið er að út-
færslu á þessum
undanþágum.
Loftbrúin er
mikilvæg leið til að
rétta af þann að-
stöðumun þeirra
sem búa fjærst
höfuðborginni en
þurfa og vilja sækja
þjónustu og menningu þang-
að. Það þarf að lækka flug-
fargjöld svo sá ferðamáti verði
raunhæfur valkostur sem al-
menningssamgöngumáti. Auk
þess eflir þetta eftirspurn í
flugi og þá er von um að fleiri
ferðir verði aftur í boði á þeim
leiðum sem eru inni.
Umhverfisvænn
ferðamáti
Það eru nokkrir sem hafa rifið
niður þessa hugmynd og bent
á súru berin. Ein röddin hefur
bent á að það sé verið að ýta
undir óvistvænan ferðamáta.
Til er félagshagfræðileg grein-
ing á innanlandsflugi sem
fram kom fyrir nokkrum
árum. Þar kom fram að lofts-
lagslegur ávinningur af innan-
landsflugi gagnvart vegasam-
göngum var umtalsverður og
samkvæmt samanburði sem
unninn var á vegum sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins var losun á hvern
farþega í innanlandsflugi álíka
mikil eða minni á leiðinni
Reykjavík–Akureyri og losun
á hvern farþega í meðalfólksbíl,
með einum til ríflega tveimur,
þetta var miðað við Fokker
vélar en nýjar Bombardier-
vélar í innanlandsflugi eyða
30% minna eldsneyti.
Halla Signý Kristjánsdóttir
þingmaður
Framsóknarflokksins
AÐSENT | Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar
Við svífum
um loftin blá
Ivan Jonas, Milan Rosanik og Pétur Guðmundsson.
MYND: ÍÞRÓTTABLAÐ DV MÁNUDAGINN 8. OKTÓBER 1990.
4 36/2020