Feykir


Feykir - 23.09.2020, Blaðsíða 12

Feykir - 23.09.2020, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 36 TBL 23. september 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 7. janúar Jóhannes Jónsson bóndi í Hofstaðaseli reið út í sveit. Á heimleið um kvöldið féll hann af baki og kom niður á höfuðið. Maður var með honum, svo að hann var þegar fluttur til næsta bæjar. Hann hjarði mál- og máttlítill til 16. janúar. 6. apríl Jósep Þorbergsson, 9 ára fósturbarn í Saurbæ í Kol- beinsdal, féll ofan um ís á Kolbeinsdalsá og beið bana af. 1851 Maður nokkur var í sauðaleit, en hvorki greina heim- ildir nafn hans né heimili. Undan honum ,,sprakk klakasnös, er hann ætlaði að stökkva yfir gjá. Datt hann áfram á prik, er hann hafði í hendi, gekk það gegnum kinnina og dó hann af því.“ /PF Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947 1851 Umhverfisverðlaun Skagafjarðar 2020 afhent Vatnspósturinn á Hofsósi valinn einstakt framtak Meðlimir úr Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar afhentu á dögunum umhverfisverðlaun Skagafjarðar, 16. árið í röð, en komin er hefð fyrir því að farið sé í skoðunarferðir um Skagafjörð á sumrin til að meta bæi, hverfi og svæði í firðinum fyrir umhverfisverðlaunin, sem er samvinnuverkefni klúbbsins og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Á heimasíðu sveitarfélagsins er sagt frá veitingu viðurkenning- anna og kemur fram að að mati loknu hafi verið valið úr hópi tilnefninga í samráði við garð- yrkjustjóra sveitarfélagsins. Í ár voru veitt sex verðlaun í fimm flokkum og hafa því verið veittar 100 viðurkenningar þau 16 ár sem verkefnið hefur lifað. Viðurkenningarflokkarnir sem koma til greina eru sjö talsins, en ekki eru alltaf veitt verðlaun í öllum flokkum á sama ári. Tvenn verðlaun voru veitt í flokknum lóð í þéttbýli: Dalatún 1, Sauðárkróki, í eigu Steinunnar Huldu Hjálmarsdóttur og Halldórs Hlíðars Kjartanssonar. Þórdís, Helga og Ingi Friðbjörnsbörn taka við umhverfisverðlaunum Skagafjarðar af Sigríði Káradóttur í Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar fyrir vatnspóstinn á Hofsósi. MYNDIR: SOROPTIMISTAKLÚBBUR SKAGAFJARÐAR Með starfsstöð í Skagafirði Teitur Björn til liðs við Íslensku lögfræðistofuna Teitur Björn Einarsson, lögmaður, bætist í hóp lögmanna Íslensku lögfræðistofunnar nú í septem- ber og verður með starfsstöð í Skagafirði. „Við sinnum margvíslegum verkefnum og ráðgjöf fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki um land allt og það er tímabært að færa út kvíarnar svo auðsóttara verði að veita persónulega þjónustu á fleiri stöðum á landinu. Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fá Teit til liðs við hópinn og við hlökkum til þess að geta í auknum mæli sinnt ráðgjöf utan höfuðborgarsvæð- isins,“ segir Haukur Örn Birgisson, einn eigenda Íslensku lögfræðistofunnar, en Teitur Björn er með starfsstöð í Skagafirði. Teitur útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2006 og varð héraðsdómslögmaður árið 2007. Teitur hefur í gegnum tíðina sinnt félaga-, skatta- og lög- fræðiráðgjöf ásamt því að hafa gegnt fjölbreyttum trúnaðar- og félagsstörfum. Hann var aðstoðarmaður fjármálaráðherra árin 2014-2016 og þingmaður Sjálf- stæðisflokksins kjörtímabilið 2016-2017. Teitur er kvæntur Margréti Gísladóttur og eiga þau saman tvo syni. Íslenska lögfræðistofan annast alla almenna lög- fræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Hjá stofunni starfa átta lögmenn með málflutningsréttindi á öllum dómstigum. Íslenska lögfræðistofan er með aðsetur í Stóra- Turni Kringlunnar. /Fréttatilkynning Raftahlíð 29, Sauðárkróki í eigu Herdísar Klausen og Árna Stefánssonar. Verðlaun fyrir snyrtilegustu götuna hlutu íbúar Furulundar í Varmahlíð. Lóð við opinbera stofnun sem hlaut verðlaun í ár er Slökkvistöðin á Sauðárkróki. Verðlaun fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis hlaut Kjarninn á Sauðárkróki. Að lokum voru veitt verðlaun fyrir einstakt framtak en þau komu í hlut Svanhildar Guðjónsdóttur og fjölskyldu fyrir vatnspóstinn á Hofsósi sem vígður var í sumar. „Vatnspósturinn er gjöf frá Svanhildi og fjölskyldu og er til minningar um eiginmann Svanhildar, Friðbjörn Þórhallsson. Minnisvarðinn er mikil prýði og stendur við sundlaugina á Hofsósi, rétt fyrir ofan Staðarbjargavík þar sem spor Friðbjörns gjarnan lágu eins og segir á vatnspóst- inum.“ Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimista- klúbbur Skagafjarðar óska öllum verðlaunahöfum til hamingju og þakka þeim fyrir að láta umhverfið skipta sig máli. Feykir tekur heilshugar undir þær kveðjur. /PF Steinunn Hjálmarsdóttir tók við verðlaunum fyrir Dalatún 1 frá þeim Sigríði Káradóttur og Herdísi Gunnlaugsdóttur úr Soroptimista- klúbbnum og Ingu Huld Þórðardóttur, formanni Umhverfis- og samgöngunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Árni Stefánsson og Herdís Klausen hlutu verðlaun fyrir Raftahlíð 29. Íbúar við Furulund í Varmahlíð fengu verðlaun fyrir snyrtilegustu götuna. Gunnar Valgarðsson, Gísli Sigurðsson og Páll Sighvatsson taka við verðlaunum fyrir hönd Kjarnans. Svavar Atli Birgisson og Guðmundur R. Guðmundsson tóku við verðlaununum fyrir hönd slökkvistöðvarinnar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.