Feykir - 23.09.2020, Side 11
EFTIRRÉTTUR
Oreo ostakaka
með vanillubúðingi
1 Royal vanillubúðingur
240 ml mjólk
1 tsk. vanilludropar
300 ml rjómi
1 dós sýrður rjómi
125 g flórsykur
2 pakkar Oreo kex
Aðferð: Hellið vanillubúðingnum,
mjólk og vanilludropum í skál og
hrærið vel og setjið inn í ísskáp í
5-10 mínútur. Flórsykri og sýrðum
rjóma hrært saman í annarri skál.
Rjóminn þeyttur og öllu blandað
saman.
Myljið Oreo kexið og setjið
helminginn í botninn á mótinu og
hellið búðingnum yfir, stráið síðan
restinni af kexinu yfir allt. Gott að
láta standa í kæli í smá tíma áður
en kakan er borin fram.
Verði ykkur að góðu!
Inga og Jón skora á Rögnu Fanney
og Viktor Guðmunds að koma með
gómsætar uppskriftir.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Gangur
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvað er best
við haustið?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Bústaðarhelgi með
félögunum er alltaf byrjunin
á góðu hausti.“
Stefán Úlfur Árnason
Tilvitnun vikunnar
Njóttu þess smáa í lífinu því einn daginn þegar þú lítur um öxl
áttarðu þig kannski á því að það var það sem skipti mestu máli.
- Robert Breault
„Það er eitthvað svo mikill
sjarmi yfir haustinu og
margt sem heillar mig t.d.
fallegu haustlitirnir, rökkrið,
kertaljós og kósý.“
Guðrún Olga Baldvinsdóttir
„Haustlitir og
smalamennskur.“
Áskell Heiðar Ásgeirsson
„Besta að komast i rútínu
með liðið og sjálfan sig.“
Gyða Mjöll
Níelsdóttir Waage
Einfaldar og
þægilegar uppskriftir
Þau Inga Skagfjörð Helgadóttir og Jón Gunnar Helgason eru
matgæðingar vikunnar að þessu sinni en þau búa á Sauðárkróki.
Inga er fædd og uppalinn á Króknum og vinnur sem sjúkraliði á
dvalarheimili HSN en Jón Gunnar er heimavinnandi húsfaðir og
smiður.
Þau eiga fjögur börn og þrjá unglinga og þá er gott að matreiða
einfalda og þægilega rétti sem öllum á heimilinu þykja góðir.
FORRÉTTUR
Ostabrauðstangir
1 pizzadeig, (heimatilbúið
eða keypt sem passar i skúffu)
200 g rifinn ostur
200 g rjómaostur með
graslauk og lauk
4 msk. olía
3-4 hvítlauksgeirar
1/2 tsk. salt
1 tsk. oregano
Aðferð: Ofninn hitaður í 200°C
með blæstri. Pizzadeigið sett á
ofnplötu. Salt, oregano, olía og
pressaður hvítlaukur sett í skál.
Rjómaostinum smurt á helm-
inginn af deiginu og rifnum osti
dreift yfir. Brjótið deigið svo
saman og skerið í lengjur og snúið
upp á þær. Raðað í ofnskúffu.
Brauðstangirnar penslaðar með
hvítlauksolíunni og bakaðar í ofni
í 8-10 mín.
AÐALRÉTTUR
Ofnbakaður fiskur
með papriku og chilli
900 g þorskur
1 stk. rauð paprika
3 stk. hvítlauksgeirar
200 g rjómaostur með
grillaðri papriku og chilli
500 ml rjómi.
rifinn ostur
salt og pipar
ólifuolia
Aðferð: Hitið ofninn i 180°C.
Fisknum raðað i eldfast mót. Skerið
papriku, rífið niður hvítlaukinn og
steikið upp úr olíu þar til mýkist og
bætið þá við rjóma og rjóma-
ostinum. Hrærið þar til rjóma-
osturinn er bráðnaður. Sósunni
hellt yfir fiskinn og rifinn ostur
settur yfir. Setjið inn í ofn í um
30 mínutur.
Borið fram með hrísgrjónum,
brauðstöngunum og salati.
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Inga Skagfjörð og Jón Gunnar á Sauðárkróki matreiða
Inga og Jón Gunnar. AÐSEND MYND
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Hörku gangnamaður hér á ferð.
36/2020 11
FEYKIFÍN AFÞREYING
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Um fjórðungur af rúmlega 1.200 tegundum núlifandi leðurblaka lifa
á ávöxtum, fræjum eða safa úr blómum, skv. því sem fram kemur
á Vísindavefnum. Þessar ávaxtaætur eru hlutfallslega algengastar
þar sem gróðurfar er gisið svo sem á eyðimerkursvæðum.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá snúa leðurblökur alltaf til vinstri þegar
þær fljúga út úr hellum sínum.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Oft hann standa upp úr sést.
Í honum fólk á rölti.
Ómissandi undir hest.
Eins á stökki og tölti.