Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Side 1

Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Side 1
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA 44. tbl. Laugardaginn 20. des. 1975 6. árgangur GLEÐILEC JÓL! Akureyri ljósum prýdd. | ? X i i ❖ 1 X | 1 ♦% I <♦ ❖ HIÍSHORIMIÐ Skrifstofa AB Afgreiðsla: Sími: 2-18-75. Mánudagur: kl. 13 — 15,30 Þriðjud.: kl. 10 — 11,30 og kl. 13-15,30. Miðvikud.: kl. 10 — 11,30 og kl. 13-15,30. Þeir Akureyringar, sem fengið hafa heimsenda miða í happdrætti Þjóðviljans, eru vinsamlegast beðnir að gera skil. Aðalskiladagur happdrættisins um land allt er laugar dagurinn 20. des. Þá verður Haraldur Bogason við á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins, Eiðsvallagötu 18 (gengið inn að austan) frá kl. 10,00 f. h. til kl. 19,00 e. h. Eiðsvallagata 18. Ritnefndarfundur AB-blaðsins verður næst föstudag- inn 2. jan. kl. 17,30. Blaðið kemur næst út 9. janúar. Almennur félagsfundur í Alþýðubandalaginu verður haldinn sunnud. 11. janúar næstkomandi í Alþýðu- húsinu og hefst kl. 13,30. Árshátíð Alþýðubandalagsins verður haldin laugardag- inn 17. jan. næstkomandi í Alþýðuhúsinu. Nánar aug- lýst síðar. I ? Ý f ? ? I I V V ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? * I I ? ? ? ? y ? ? ? ? ? ? I ? I t t ? ? t ? t I * t t t : t ? ? t t ♦:» •♦♦•.••.•vVV*.‘,.**.‘vWV*.‘VVV*.“.“.‘VVvvW*.*vvV*,‘VVV*«“«**»*,*****VV.*V****»*V A5 afloknu kvennaári 1975 „Ef vér lítum til liðinna alda og köllum sögu þjóðanna til vitnis, þá mun sýna sig, að undirokun konunnar eða for- dómurinn um menntun henn- ar hefur verið ein sú höfuð- bölvun, sem mest hefur tafið fyrir framför heimsins. Og mér er sannarlega óljóst, hvort mannkynið hefur úttekið þyngri hegning fyrir nokkura hlut annan en þennan. Því segi ég til alira foreldra: gjörið ekki greinarmun barna yðar eftir kynjum, berið öll jafnt fyrir brjósíi til menningar og hafið umfrarn allt hugfast, að á- kvörðun konunnar er ekki lægri en ákvörðun mannsins“. (Sr. Páll Sigurðsson í Gaul- verjabæ (1839 — 1887). Hið alþjóðlega kvennaár er senn á enda runnið, en Sam- einuðu þjóðirnar tóku um það ákvörðun á sínum tíma, að árið 1975 skyldi helgað rétt- indabaráttu kvenna. Ekki leikur vafi á því, að baráttuaðgerðir um allan heim hafa haft og munu hafa víð- tæka þýðingu, þótt engum megi sjást yfir þá staðreynd, að raunverulegt, virkt jafnrétti milli kynja er enn í órafjar- lægð, einnig í iðnvæddum, há- þróuðum ríkjum, sem kennd eru við velferð. Ákvörðunin um alþjóðlegt kvennaár hefur hrundið af stað stóraukinni umræðu um þjóðfélagsstöðu kvenna og knúð fleiri en nokkru sinui fyrr til þess að endurmeta fyrri viðhorf og leita svara við fjöl- mörgum spurningum og áleitn- um. Þær beinast einkum að því misrétti, sem konur búa við í atvinnulífinu, en þar eru þær að langstærstum hluta í lægstu launaflokkunum. Stúlk ur hafa ekki sömu möguleika og piltar til mennta og starfa í samræmi við löngum og hæfni. Konur njóta ekki atvinnuör- yggis, og atvinnuleysi þeirra fylgir ekki sami pólitíski óró- inn og atvinnuleysi karla. Það er að vissu leyti falið, og konur eru ekki viðurkenndar sem full gildir þjóðfélagsþegnar og fyr- irvinnur. Þær hafa fullar skyld ur, en takmörkuð réttindi. Hið líffræðilega hlutverk þeirra í viðhaldi tegundarinnar homo sapiens snýst einlægt gegn þeim og verður ein undirrót þess misréttis, sem gerir þær að annars flokks þjóðfélags- þegnum. Hin ýmsu samtök launafólks að verkalýðshreyfingunni með- talinni horfa upp á það salla- róleg, að því er virðist, að lögum um launajafnrétti er ekki framfylgt, heldur farið í kringum þa,u með hinum og þessum starfsheitum og með því einfaldlega að útiloka kon- ur frá ýmsum störfum og þá vitanlega hinum ábyrgðarmeiri og betur launuðu. Vanmetin kvennastörf. Varla fyrirfinnst það manns- barn, sem ekki veit, að ís- lenskar konur hafa nánast engin áhrif á stjórn þjóðfélags- ins. Þær standa utan hinna eiginlegu valdamiðstöðva smárra og stórra og eiga ekki hlut að því að ráða vandamál- um samfélagsins til lykta. Enn hafa þær engin þau á- hrif, sem geti knúð fram þær breytingar á sjálfri þjóðfélags - gerðinni, sem til þess þarf að skapa fullt jafnrétti milli kynja. Barátta verkalýðshreyf- ingarinnar er algerlega samofin jafnréttisbaráttu kvenna, og í báðum tilvikum er t. d. stefnt að launajafnrétti. Það eitt er víst, að árangursrík verkalýðs- barátta verður ekki háð án þátttöku kvenna fremur en ár- angur næst í jafnréttisbaráttu án víðtæks stuðnings og þátt- töku verkalýðshreyfingarinnar. Þau störf, sem konur vinna svo til eingöngu eru láglauna- störf, sem karlmenn líta ekki við. Þau eru vanmetin vegna þess, að þau eru unnin af konum, en það sást með á- þreifanlegum hætti 24. okt. s.l. að þetta vanmetna vinnuafl er þjóðfélaginu öldungis ómiss- andi. Ef samtök launafólks settu fram þá kröfu í væntanlegum samningum, að einmitt þeir launaflokkar, sem eru svo lág- ir vegna þess, að nær ein- göngu konur eru í þeim, hækki mun meira en aðrir flokkar, þá væri stórt skref stigið fram á við í átt til launajafnréttis. Þá mætti e. t. v. vænta þess, að karlmenn létu svo lítið að setj- ast við ritvél, skiptiborð eða ganga að hefðbundnum kvennastörfum í frystihúsum og verksmiðjum að ógleymdum bönkum og ýmsum opinberum stofnunum. Baráttuaðgerðir hér á landi. Á árinu 1975 hafa í tilefni kvennaárs verið settar nefndir á laggirnar, ráðstefnur hafa verið haldnar, og íslenskar konur lögðu niður vinnu 24. okt á degi Sameinuðu Þjóð- anna. Rauðsokkahreyfingin boðaði til ráðstefnu í janúar í samvinnu við nokkur verka- lýðsfélög um kjör láglauna- kvenna. Þessi félög voru Iðja, Sólm, Starfsmannafélag ríkis- stofnana og A. S. B. Þá var í febrúar haldin ráðstefna um dagvistunarmál í samvinnu við Fóstrufélagið, og í apríl var haldin ráðstefna í Neskaup- stað um kjör kvenna til sjávar og sveita. Starfshópur kvenna þar á staðnum stóð að undir- búningi, og hópur kom úr Reykjavík til þátttöku. í júní var svo haldin aðal- ráðstefna kvennaársins að Hó- tel Loftleiðum, og í september var ráðstefna haldin í Munað- arnesi á vegum B. S. R. B. og A .S. í. Á Loftleiðaráðstefn- unni var m .a. samþykkt að boða til kvennaverkfalls 24. okt. Sá atburður er í fersku minni og gæti markað tíma- mót í sögu jafnréttisbaráttu hér á landi. Hin víðtæka sam- staða íslenskra kvenna, er þær stöðvuðu hjól atvinnulífsins um allt land hefur vakið heims athygli, og margt hefur verið um þessar einstæðu aðgerðir ritað, bæði hér heima og er- lendis. í dreifibréfi frá nefnd, sem að undirbúningi stóð, seg- ir, að með þessu vilji konur leggja áherslu á mikilvægi vinnuframlags síns. Hugmynd- in um kvennaverkfall kom fram fyrir nokkrum árum af hálfu Rauðsokkahreyfingar- innar. Húri lagði einnig til, að 24. okt. yrði valinn og vildi með því tengja kvennaverkfall Frh. á bls. 10.

x

Alþýðubandalagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.