Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Síða 14

Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Síða 14
Óttar Einarsson: Svo sem fram hefur komið í blöðum, buðu Flugleiðir hf. blaðamönnum af landsbyggð- inni í þriggja daga ferð til Skot lands í tilefni 30 ára afmælis millilandaflugs íslendinga. Ferðin var farin dagana 8,— 11. okt. síðastliðinn. Það kom í hlut undirritaðs, að fara þessa aðrir þeir, sem til greina komu. Gleði mín yfir þessu happi var þó eilítið galli blandin, þar sem flug er sá ferðamáti, sem mér hefur einlægt fallið illa. Kemur þar til bæði lífhræðsla og loftveiki, — einkum líf- hræðsla. Gildir einu þótt búið sé að margsanna með tölum, að maður sé í miklu meiri hættu á eldhúsgólfinu heima hjá sér en í flugvél. En ævintýralöngunin varð sem sagt lífhræðslunni yfir- sterkari og á tilsettum tíma tók ég til vasahníf minn og dá- væna snærishönk að hafa með í útlandið, ef ístaðsól skyldi A Keflavíkurflugvelli stigum við upp í þjóðarstoltið, þotuna Gullfaxa og tókum kúrsinn til Glasgow í Skotlandi. Flogið var með 900 km hraða í u. þ. b. 10 km hæð og reyndist frostið fyrir utan vera 50 stig á Cel- síus, enda Iangaði engan til þess að fara út á dekkið að pissa, eins og manninn forðum. Flugið til Glasgow tók u. þ. b. eina og hálfa klukkustund, en hins vegar tók dálítinn tíma að komast í gegnum flugstöð- ina í Glasgow, því að skotar eru forvitin þjóð og vildu endi- lega gægjast í skjóður manna og pinkla. til botns á 5 cm dýpi, ýkjulaust. Mun ekki ofmælt, að þar hafi verið samankomið eitthvert hið ókræsilegasta baðvatn í saman lagðri kristni í „hinum frjálsa heimi“. Við vorum árrisulir hjá lands byggðarpressunni á Castle Ho- tel fimmtudaginn 9. október. Dagurinn hófst að sjálfsögðu með morgunverði og reyndist þar úr mörgu að velja á mat- seðli hótelsins. Beikon og egg voru þar ofarlega á lista, en þegar ég rak augun í orðið ,,porridge“ (hafragrautur) neð- arlega á matseðlinum, ákvað ég að gera skyndikönnun og bæina Alexandria og Bonhill og síðan með Clyde-ánni til Glasgow. í Glasgow höfðum við bæki- stöð á fyrsta flokks hóteli, In- gram Hotel, skammt frá aðal- stöðvum Flugleiða. Hótelstjór- inn var svo elskulegur að efna til smáfagnaðar í tilefni komu okkar til borgarinnar, en Flug- Ieiðir buðu síðan til hátíðlegs kvöldverðar á hótelinu. Um kvöldið höfðu menn heldur hægt um sig, — nokkrir fóru að rannsaka næturlíf stórborgarinnar, en við Ágúst efndum til fundar á herbergi 103 með blaðamönnum frá ÞRÍR DAGAR IVIEÐ SKOSKUIM Frá Largs. I þessari bugt Iagði „Ga mli-Pétur“ að Iandi eftir fyrsta milli- Iandaflug á vegum íslendinga fyrir þrjátíu árum. för fyrir hönd hins ágæta blaðs Alþýðubandal. blaðsins, mest- an part fyrir þá sök, að ég reyndist við könnun, eiga færri utanlandsreisur að baki, en Þessi vígabarðalegi1 skoti tók á móti okkur á flugvellinum í Glasgow og virtist eiga fyrir- liggjandi Ioftbirgðir í sekkja- pípunni sinni, sem hver meðal- þingeyingur mætti vera hreyk- inn af. slitna eða móttak bila. Héðan frá Akureyri fórum við fjögur, Sigrún frá íslend- ingi, Hjörleifur frá . Alþýðu- manninum, Erlingur frá Degi og undirritaður frá Alþýðu- bandalagsblaðinu. Urðum við öll samferða, óformlega að vísu, með kvöldvél suður þann 7. október. Hin eiginlega ferð hófst svo kl. 7,00 að morgni hins 8. okt. á Loftleiðahótelinu, en þaðan var ekið í rútum til Keflavíkur- flugvallar í kolsvarta-þreifandi myrkri og kuldastrekkingi, eins og ævinlega er fyrir sunnan. Heldur fannst mér lands- byggðarpressan lágreist í morg unsárinu, en úr því rættist, er á daginn leið. Þarna í anddyri Loftleiðahótelsins hitti ég gaml an skólabróður, Ágúst Jónsson, sem fór í þessa ferð sem full- trúi blaðsins Austurlands í Nes kaupstað. Reyndumst við á svipaðri bylgjulengd um marga hluti og tókst þarna með okkur vinátta, „sem ekkert skyggði á, og hélst, meðan báðir lifðu,“ eins og segir í minningargrein- um. Héldum við saman mestan part ferðarinnar og studdum hvor annan með ráðum og dáð. Eínn kost hafði Ágúst óum- deilanlega fram yfir mig, sem blaðamaður, en það var af- burða tækni við ljósmyndun. Gerði ég þegar í upphafi samning við hann um afnot af myndum hans með væntan- legri tímamótagrein minni um ferðalagið, og birtast þær hér, eins og sjá má. Við höfðum skamma við- dvöl í Glasgow að þessu sinni, en stigum upp í rútu hjá þeim eyrnarstærsta bílstjóra, sem ég hef séð um dagana og héldum til hádegisverðarboðs hjá viskí bruggara nokkrum, rámum og rauðnefjuðum. Að afloknum snæðingi á krá hans, bauð hann okkur að skoða bruggeríið sitt og hann og kona hans útskýrðu fyrir okkur leyndardóma góðrar viskíframleiðslu og rökstuddu mál sitt með ríkulega útilátn- um bragðsýnishornum. Var staður þessi yfirgefinn með nokkrum trega, en haldið til smábæjarins Largs, en þar á firðinum úti fyrir lenti Cata- línaflugbáturinn „Gamli Pét- ur“ fyrir 30 árum, eftir fyrsta íslenska millilandaflugið. Þarna í fjörunni afhenti Sveinn Sæmundsson, blaðafull trúi Flugleiða og fararstjóri okkar, bæjarstjóranum í Largs forláta gestabók með útskorn- um spjöldum. Bæjarstjórinn í Largs, sem er reyndar nafni „Gamla Péturs“, reyndist hinn alþýðlegasti maður, dökkrauð- ur á litinn, og tætti af sér brandarana, eins og honum væri borgað fyrir það. Um kvöldið var veglegur fagnaður haldinn á Castle Ho- tel í Largs með ræðuhöldum, kvæðalestri og söng, og gistum við svo þar um nðttina. Undirritaður gerði tilraun til þess að taka sér kerlaug á hó- telinu fyrir háttinn, en vatnið reyndist svo leirugt, að ekki sá samanburð á skoskum og þing eyskum hafragraut, sem ég ólst upp við á mínum sokkabands- árum austur í Þistilfirði. Mikil varð undrun mín, þegar skoski grauturinn reyndist nákvæm- Iega jafngóður og grautur á betri bæjum í Þingeyjarsýslu upp úr síðari heimsstyrjöld og fram á vora daga. Saknaði ég þá einskis þá stundina, utan hvað sneið af súrum blóðmör frá Holti í Þistilfirði hefði vita- skuld verið vel þegin. Prógram dagsins hófst með því, að skoðuð var risavaxin, skítug og óyndisleg skipasmíða stöð í Greenock, en síðan farið með ferju yfir til smábæjarins Dunoon og snæddur þar há- degisverður. Frá Dunoon var haldið sem leið liggur um skosku hálöndin, sem mjög eru rómuð fyrir fegurð. Gróður er þarna mjög gróskumikill, að vísu lítið eitt litaður af hausti, og stóð kvikfénaður þeirra skota víða á beit, risavaxin hross, skjöldóttar kýr, kollótt sauðfé með langa rðfu og holdanaut með bítlahár ofan í augu. Á Hotel Arrochar við enda Loch Long var drukkið mið- degiskaffi, en þaðan ekið, und- ir stjórn bílstjórans eyrnastóra, að hinu fræga vatni Loch Lo- mond. Er þar slík náttúrufegurð, að vart verður með orðum lýst. Nokkuð var orðið áliðið dags, er Loch Lomond var að baki og var þá ekið um smá- blöðum tengdum Alþýðubanda laginu. Fundinn sátu auk okkar Á- gústar, þeir Guðjón Friðriks- son frá Vestfirðingi, Hinrik Að alsteinsson frá Mjölni á Siglu- firði og Þorkell Sigurjónsson frá Vestmannaeyjum. Var skipst á upplýsingum og málin rædd af mikilli alvöru og festu. Það var samdóma niðurstaða fundarmanna, að þar sem þetta væri fyrsti fundur Al- þýðubandalagsins í Glasgow, markaði hann tímamót í sögu flokksins, hvað útbreiðslustarf semi snerti. Föstudaginn 10. des. var enn snemma risið úr rekkju og farið í skoðunarferð um Glas- gow-borg í tveggja hæða stræt- isvagni. Börðu sveitamenn af íslandi þar augum marga fom- fræga byggingu svo og ótalin mónument af ýmsum leiðin- legum kóngum, jörlum og lord- um, sem ég hirði aldrei að nefna. I lok skoðunarferðarinnar var boð í höfuðstöðvum Flug- leiða í Glasgow, en síðan höfðu menn daginn til frjálsrar ráðstöfunar fram til brottfarar. Þá stund notuðu flestir til þess að festa kaup á ýmsu smá- legu fyrir sig og sína, enda mun verð á fatnaði mega telj- ast fremur hagstætt í Skotlandi a. m. k. miðað við það, sem við eigum að venjast hér. Kl. 3,30 e. h. var svo enn stigið inn í rútuna hjá bílstjór- anum okkar veleyrða og ekið Framhald á bls. 6. 14 - ALÞÝÐUBANDALAGSBLAÐBE)

x

Alþýðubandalagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.