Strandapósturinn - 01.10.2001, Page 32
fjármögnun og framkvæmd við vegarlagningu á leiðinni um
Arnkötludal og var þá skoðað hvort möguleiki væri að taka vega-
toll til að hafa upp í fjármögnun að hluta. Þann 1. desember var
síðan stofnað einkahlutafélag sem ber nafnið Leið ehf, sem
einnig hefur það að markmiði að fá framkvæmdum við þessa
leið flýtt frá því sem áætlanir gera ráð fyrir.
Veiðar og vinnsla
Aflabrögð voru ágæt á árinu og ýsuveiði var óvenjulega góð í
Húnaflóa og þorskveiði á línu ágæt. Handfæravertíð hjá smærri
bátum yfir sumarið var líka ágæt.
Grásleppuvertíðin var í slakara lagi á Ströndum, en verðið fýr-
ir hrognin er hækkandi.
Nokkrar trillur réru frá Norðurfirði og var afli sæmilegur. Að-
komubátar lönduðu þar einnig, en allur afli var fluttur burt á
markað. A Drangsnesi hefur samsetning flotans verið að breyt-
ast, rækjubátum af stærðinni Í5-30 tonn hefur fækkað og í stað-
inn komið smærri fiskibátar. Tveir rækjubátar voru seldir frá
Drangsnesi á árinu, Stefnir og Gunnhildur, en tveir smábátar
keyptir. Jón Magnússon keypti bát sem ber nafnið Stefnir ST-47
og Birgir Guðmundsson keypti Mumma ST-8. Nær allur
þorskafli sem berst að landi á Drangsnesi er unninn á staðnum.
Nokkuð er um að aðkomumenn hafi gert út báta frá Drangs-
nesi.
Már Ólafsson á Hólmavík keypti nýjan bát á árinu, sem heitir
Straumur ST-65. Þá fékk Magnús Gústafsson á Hólmavík afhent-
an nýjan bát í upphafi ársins, Hafbjörgu ST-77. Hafbjörg er af
nýrri gerð báta sem heitir Seigur 1000 og er framleidd af Seiglu
ehf. Báturinn er Í0 rnetra langur, þriggja metra breiður og tek-
ur i4 kör í lest. Aðalvélin er 420 hestafla Yanmar. Hafbjörg er
5,99 brúttórúmlestir.
Nýtt skip sem á heimahöfn á Hólmavík kom um býsna lang-
an veg til landsins þann 10. júlí. Þar var á ferðinni skipið Sigur-
björg ST-55, en það var smíðað í Kína ásamt átta öðrum 95
30