Strandapósturinn - 01.10.2001, Blaðsíða 111
verið raskað með kartöfluræktun. Haukur Jóhannesson og Tom
Amorosi fundu þar lítil veggjabrot og þölda fiskbeina í rofabarði
sumarið 1987 og söfnuðu nokkru af beinum úr því.
Markmiðið með rannsóknunum sumarið 1990 var að kanna
eðli og gerð setsins í Akurvík og safna nægu magni af fornleif-
um og dýrabeinum í samhengi og reyna af aldursgreina
minjarnar. Þrátt fyrir stuttan rannsóknartíma og erfitt veðurfar
tókst hópnum (sem í voru vísindamenn frá Islandi, Kanada,
Grikklandi, Bandaríkjunum og Danmörku) að vinna frábært
starf við söfnun muna (aðallega óskert bein en þó fundust fáein-
ir manngerðir munir) og að mæla og lýsa litlum torftóftum (um
2 m á breidd og 3-5 m á lengd). Margar þessara tófta eru sjáan-
legar í löngu barði sem brimaldan hefur sleikt og aðrar nær fer-
hyrndar dokkir á óraskaðri grunnd nokkru suðvestar eru hugs-
anlega af svipuðum toga. I sandbakkanum sást auðveldlega lög
af ljósbrúnum jarðvegi, þykkari lög af grásvörtum skeljasandi og
nokkur lög af beinum og öðru lífrænu efni sem eru augljóslega
tengd tóftunum sem standa fram úr bakkanum eða öðrum sem
eru ofar og rof hefur ekki náð til. Þessi lög af beinum og öðru
lífrænu efni, sem eru frá 3 sm upp í 40 sm þykk, voru einnig
með töluvert af eldsprungnu gijóti auk nokkurra járnhluta (að-
allega bátasaum) og nokkur hvalbein sem voru með mannaverk-
urn á. Þegar sandbakkinn hafði verið lneinsaður og stunginn
inn um 30-50 sm kom í ljós mikið magn af beinaleifum sem
greinilega markaði mannvistarlög. Stungin var einnig inn ein
tóftin og hún könnuð bæði lóðrétt og lárétt. Tóftin var lítil,
veigalítil að uppbyggingu, nokkurn vegin ferhyrnd og aðallega
hlaðin úr torfi en í undirstöðum tveggja horna hennar voru
nokkur brot af stórum hvalbeinum (úr stórum skíðishvölum).
Torfveggirnir hafa að líkindum verið undirstöður fyrir létt þak
en hafa ekki getað borið þungt þak vegna þess hve sendið torf-
ið er. Tóftin hefur verið reist á eldra lagi sem í eru bein fiska,
fugla og spendýra en undir því er eldri fjörusandur sem ekki ber
með sér merki mannvistar. Tóftinni var fyllt nokkuð hörðum
lögum með beinum fiska, fugla og spendýra, eldsprungnu grjóti
(hugsanlega myndað ójafnt steingólf) auk töluvers magns mó-
ösku og lítilla flekkja af koluðum við. Þessi lög hafa myndað
109