Syrpa - 01.03.1949, Qupperneq 38
KANNTU AÐ LESA í LÓFA?
Frá alda öðli hafa menn haft þá hugmynd, að í mannslóf-
ann væru ristar dularfullar rúnir, er gæfu til kynna hæfileika
einstaklingsins, hneigðir hans og jafnvel örlög, og margar bæk-
ur hafa verið um þetta skráðar. Hin raunhæfu vísindi nútím-
ans viðurkenna ekki slíkar hugmyndir, en eigi að síður hafa
margir enn gaman af því að velta þeim fyrir sér. Syrpu hefur
nú dottið í hug að verja fyrst um sinn nokkru rúmi undir
dálitla tilsögn í þessari gömlu íþrótt, enda boðist til þess að-
stoð fróðs manns. Þó að blaðið vilji hreint ekki halda þeirri
trú að lesendum sínum, að líklegt sé að leyndardómar framtíð-
arinnar opinberist þeim í þessum þætti, þá gæti hann kannski
orðið einhverjum dægrastytting.
Þær línur lófans, sem mestu máli skipta, eru sjö:
Liflinan, sem segir til um langlífi eða skammlífi, og sveigist
utan um þumalfingurvöðvann.
Höfuðlinan, tákn hæfileikanna, þvert yfir lófann.
Hjartalinan, tilfinningarnar, jafnhliða'höfðulfnunni, nær fingr-
unum.
Örlagalinan, eftir lófanum miðjum frá úlnlið og framundir
fingur.
Sólar- eða haþpalinan, sem liggur utantil í. lófanum og stefnir
að baugfingri.
Heilsulinan, skáhalt eftir lófanum endilöngum og stefnir á
litla fingur, og
hjónabatidslinan, er stefnir frá handarjaðrinum inn í lófann,
nokkru ofan við litla fingurinn.
Hinar minni háttar línur eru þessar:
Innri liflinan (eða marzlínan) innan við aðal-líflínuna.
Venusbeltið, sem liggur í sveig upp frá og utan við baugfingur
og löngutöng.
Innsæislinan, í hálfbaug meðfram handajaðrinum.
Armböndin um úlnliðinn og
hringir Satúrnusar og Salómons, sein skýrt verður frá síðar.
Línurnar eiga að vera glöggar og hreinar, hvorki breiðar né
litlausar, sundurslitnar eða með krossum eða öðrum truflun-
um. Mjög daufar línur benda til óhreysti og þrekleysis.
Rauðleitar línur tákna framtakssemi, viljaþrek og bjartsýni.
Mjög dökkar línur bera vott um sjúklegt þunglyndi, hefni-
girni og langrækni.
(Framh.)
LÁRÉTT:
1. „Stefaníu". 5. Fugf. 7. Ferðast. 8. Vísan. 9. Tappi. 10.
Nærri. 12. Ná í sundur. 14. Rölt. 15. Lík sólskini. 17. Hvíla. 19.
Gamall skipstjóri. 20. Hælt hástöfum.
LÓÐRÉTT:
1. Afkomandi. 2. Svertir. 3. Gömul borg. 4. Tólið. 5. Tímatal.
6. Rólegra. 9. Það, sem allir vilja heyra. 11. Löðurmannlegasti
glæpurinn. 13. Fullkominn. 14. Blíðulátum. 16. Strákur. 18.
Fuglinn í fjörunni.
RÁÐNING á gátum í 1. hefti 3. árg.
1. Töfratalan er 34. 2. Dátarnir voru 58. 3. Ófeigur Oddsson
frá Mörk.
KROSSGÁT AN:
Lárétt: 7. Suðurheimsskaut. 8. Ámalegt. 10. Sígrænn. 11.
Tómas. 12. Ónáða. 14. Galli. 15. Innt. 16. Amað. 17. Hagi.
19. Óðan. 21. Ester. 22. Natin. 23. Egill. 25. Harðari. 26. Dúk-
lagt. 27. Viðbeinsbrotnar.
Lóðrétt: 1. Guðmundarstaðir. 2. Ruglaði. 3. Óhægt. 4. Ásdís.
5. Skartað. 6. Auðnuleysingjar. 9. Tómt. 10. Saga. 13. Annar.
14. Ganran. 17. Heiðabæ. 18. Ingi. 19. Óöld. 20. Naglæta.
23. Ermin. 24. Lúðra.
74
SYRPA