Morgunblaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 4
2 5 10 7 13 10 11
38
56
78 82
95 88
71
123 123
129
124
154
86
68
109
116
151
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
Heimild: LSH
151 nýtt innan-
landssmit
greindist sl. sólarhring
1.136 einstaklingar eru
í skimunarsóttkví
1.988 einstaklingar
eru í sóttkví
2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær
Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti
150
125
100
75
50
25
0
8.508 staðfest
smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020
106 100
1.413 einstaklingar
eru undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
39 af þeim sem
eru undir eftir-
liti flokksat sem gulir
Enginn
flokkast
sem rauður
251 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
18 sjúklingar eru
inniliggjandi á
LSHmeð Covid-19
3 einstaklingar
eru á gjörgæslu
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4.
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
eftir stöðu bólusetningar
30. júlí 2021
154 smit
Esther Hallsdóttir
Logi Sigurðarson
Átján lágu inni á Landspítalanum
með Covid-19 á hádegi í gær. Þar af
voru þrír á gjörgæslu en enginn í
öndunarvél. 154 greindust með Co-
vid-19 á miðvikudag og voru alls
1.413 manns með virk smit.
Af þeim voru 1.356 einstaklingar
grænmerktir, það er með engin eða
væg einkenni. 39 voru merktir gulir,
með miðlungsmikil einkenni, og eng-
inn rauður. Þeir sem liggja inni eru
ekki litamerktir.
Fram kom í máli Páls Matthías-
sonar forstjóra Landspítalans á upp-
lýsingafundi almannavarna í gær að
um helmingur þeirra sem hafi þurft
að leggjast inn á spítala í þessari
bylgju séu óbólusettir. Í ljósi þess
hversu hátt hlutfall þjóðarinnar er
bólusett er mun líklegra að viðkom-
andi þurfi sjúkrahúsinnlögn sé hann
óbólusettur. Landspítalinn upplýsir
hins vegar ekki um það hvort að þeir
sem nú liggja á gjörgæslu hafi þegið
bólusetningu.
Páll sagði stöðuna á Landspítalan-
um afar erfiða, meðal annars vegna
mönnunar- og fráflæðisvanda. Inn-
lagnir Covid-19-sjúklinga bætast of-
an á núverandi álag. Hann biðlaði til
starfsfólks að snúa fyrr úr sumarfríi.
Unglingar verða bólusettir
Nú standa yfir endurbólusetning-
ar skólastarfsfólks sem fékk Jans-
sen-bóluefnið og verður þeim lokið í
þessari eða næstu viku. Síðar í ágúst
verða aðrir sem fengu Janssen-bólu-
efnið endurbólusettir einnig.
Þá er stefnt að bólusetningum
barna á aldrinum tólf til fimmtán ára
í kjölfarið og eru þær nú í undirbún-
ingi. Ekki var stefnt að víðtækum
bólusetningum barna á þessum aldri
fyrr í vor. Ragnheiður Ósk Erlends-
dóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins, sagði í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi, að líklega yrðu þau börn boð-
uð í bólusetningu við skólabyrjun, í
kringum dagana 23.-24. ágúst.
Spurð um orsakir þessarar breyt-
ingar sagði Kamilla S. Jósefsdóttir,
staðgengill sóttvarnalæknis, að kom-
ið hafi í ljós að sjaldgæfar aukaverk-
anir sem virðast fylgja bólusetning-
um barna á þessum aldri við Covid-19
séu vægar. Um er að ræða svokallaða
gollurshúsbólgu í hjartanu sem gangi
yfir á einni til þremur vikum og yf-
irleitt þurfi ekki að veita neina með-
ferð við henni. Þá hafi fjölgun smita
einnig haft áhrif á ákvarðanatökuna.
Þá er einnig í skoðun að gefa við-
kvæmum hópum örvunarskammt af
bóluefni gegn Covid-19 til að styrkja
enn frekar varnir þeirra gegn sjúk-
dómseinkennum.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefur óskað eftir því að lönd
sem ætla að gefa þegnum sínum örv-
unarskammt af bóluefni gegn Co-
vid-19 bíði með það að minnsta kosti
fram í lok september, þar til að tekist
hefur að bólusetja fleiri í fátækum
löndum í fyrstu umferð.
Fátækari lönd eru í vandræðum
með að fá bóluefnaskammta og hafa í
mörgum tilfellum ekki náð að bólu-
setja viðkvæma hópa og heilbrigðis-
starfsfólk.
„Getum ekki réttlætt annað“
Kamilla sagði á upplýsingafundi
almannavarna í gær afar mikilvægt
að stuðla að bólusetningu heims-
byggðarinnar enda sé faraldrinum
ekki lokið hér á landi fyrr en tök nást
á honum annars staðar.
Hins vegar verði Íslendingar að
vera í forgangi. „Ef við höfum tól í
höndunum til að verja okkar íbúa þá
er það fyrsta skylda okkar. Það er nú
þegar búið að semja um að gefa bólu-
efni héðan til annarra landa en við
munum samt sem áður setja íslensku
þjóðina og okkar innviði í forgang því
við getum ekki réttlætt annað,“ sagði
hún.
Spurð um þá einstaklinga sem
smituðust á Grund og eru einkenna-
lausir eða með lítil einkenni sagði Ka-
milla gott gengi þeirra mjög jákvætt
en hópinn of fámennan til að draga
ályktanir. Gögn erlendis frá bendi til
þess að aldraðir einstaklingar sem
eru bólusettir fái lítil einkenni, en enn
sé of snemmt að draga ályktanir.
Skólahald án takmarkana
Allsherjar- og menntamálanefnd
fundaði í gær með Lilju Alfreðsdótt-
ur menntamálaráðherra og fulltrúum
Kennarasambands Íslands. Páll
Magnússon, formaður nefndarinnar,
sagði í samtali við mbl.is í gær að
fundurinn hafi gengið vel og greið-
lega fyrir sig, og að Lilja hafi þar lýst
þeirri meginstefnu, að skólahald
verði án takmarkana og starfsemi
þeirra með eðlilegum hætti í upphafi
skólaársins.
Hann bætir við að menntamála-
ráðherra hafi ekki útlistað hvernig
þetta yrði útfært út frá sóttvarna-
sjónarmiðum, enda væri það ekki
hennar hlutverk að svara fyrir tækni-
legu hliðina. Þá segir Páll Kennara-
sambandið vera sammála þessari
stefnu.
Guðmundur Andri Thorsson, vara-
formaður nefndarinnar, tók undir
með Páli að fundurinn hafi gengið vel
fyrir sig en sagði að lítið af nýjum
upplýsingum hefði komið fram. „Mér
finnst eins og ríkisstjórnin viti ekki
alveg í hvorn fótinn hún eigi að stíga.
Það kom fram hjá menntamálaráð-
herra að það sé stefnt að því að skóla-
starf verði haldið með eðlilegum
hætti en leiðirnar til þess að svo megi
verða, eru óljósar,“ segir Guðmund-
ur.
Undirbúa bólusetningar unglinga
- Þrír á gjörgæslu vegna Covid-19 en enginn í öndunarvél - Upplýsa ekki um það hvort sjúklingar á
gjörgæslu séu bólusettir - 12-15 ára bólusett í lok ágúst - Stefnt að skólahaldi án takmarkana í haust
Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingafundur Kamilla S. Jósefsdóttir, Víðir Reynisson og Páll Matt-
híasson fóru yfir stöðuna í faraldrinum á fundi með fréttamönnum í gær.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
HVAÐER
PLANIÐ?
Kíktu á blaðsíðu 9!